Fréttablaðið - 13.02.2017, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 13.02.2017, Blaðsíða 8
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Mitsubishi Outlander hefur fengið frábærar viðtökur. Betur búinn fjórhjóladrinn fjölskyldubíll er vandfundinn og ekki skemmir verðið fyrir. Komdu í reynsluakstur og nndu ánægjuna á öllum. Mitsubishi Outlander Sjálfskiptur, fjórhjóladrinn frá: 5.350.000 kr. FYRIR HUGSANDI FÓLK MITSUBISHI OUTLANDER 4x4 5 ára ábyrgð ÁNÆGJA Á ÖLLUM Bandaríkin Frá aldamótum og fram til ársins 2010 er talið að nærri 248.000 barnabrúðkaup hafi farið fram í Bandaríkjunum. Þetta er niðurstaða rannsóknar Unchained at Last, banda- rískra samtaka sem hjálpa konum að sleppa úr hjónaböndum sem þeim er haldið í nauðugum. Fraidy Reiss, framkvæmdastjóri Unchained at Last, skrifaði um rannsóknina á fréttasíðu Washington Post. Samtökin söfnuðu gögnum frá 38 ríkjum Bandaríkjanna og fengu þar staðfest að rúmlega 167.000 barna- brúðkaup hafi farið þar fram. Í nærri öllum tilfellum var barnið sem gift var stúlka og voru þær allt niður í tólf ára gamlar. Í flestum tilfellum voru þær giftar karlmönnum eldri en átján ára. Tólf ríki, auk höfuðborgarinnar Washington, afhentu samtökunum ekki gögn um barnabrúðkaup. „Ef við miðum við hlutfall barnabrúðkaupa af fólksfjölda teljum við að heildarfjöldi giftra barna í Bandaríkjunum á árun- um 2000 til 2010 sé nærri 248.000,“ skrifar Reiss. Í lögum flestra ríkja er kveðið á um að einstaklingar þurfi að vera átján ára til að gifta sig. Hins vegar eru gerðar undantekningar í öllum ríkjum. Þær eru háðar samþykki foreldra og/eða dómstóla. Í 27 ríkjum er ekki kveðið á um neinn lágmarksaldur í tengslum við þessar undantekningar. Reiss heldur því fram í pistli sínum að ríkisþingin hafi ekki ráðist sérstak- lega gegn barnabrúðkaupum „vegna þess að þau telja ranglega að það gæti brotið á trúfrelsi eða vegna þess að þau telja brúðkaup það besta í stöðunni fyrir óléttar unglingsstúlkur“. Þá segir í pistlinum að mörg barnanna hafi verið gift einstakling- um mun eldri en þau voru sjálf. Að minnsta kosti 31 prósent barnanna var gift maka 21 árs eða eldri. Þó segir í pistlinum að talan sé líklega hærri þar sem sum ríkin hafi ekki gefið upp aldur fullorðna einstaklingsins. „Mörg ríkjanna gáfu upp aldur barnanna í flokknum fjórtán ára og yngri án þess að tilgreina nákvæm- lega hversu miklu yngri sum barnanna voru. Þannig eru tólf ára börnin sem við fengum upplýsingar um frá Alaska, Louisiana og Suður-Karólínu ekki endilega þau yngstu sem voru gift á tímabilinu,“ skrifar Reiss. Þá feng- ust ekki upplýsingar um brúðkaup bandarískra barna sem fóru fram utan landsteinanna. Upplýsingar sem Unchained at Last fékk frá ríkjunum voru ekki per- sónugreinanlegar og ekki var hægt að greina hverrar trúar fjölskyldur barnanna voru. „Unchained hefur hins vegar vitneskju um barnabrúðkaup úr nærri öllum bandarískum menning- ar- og trúarsamfélögum, þar á meðal í samfélögum kristinna, gyðinga, mús- lima og trúlausra,“ skrifar Reiss. „Af minni reynslu gifta flestir for- eldrar börn sín af trúarlegum ástæð- um. Þeir vilja stýra hegðun og kynlífi barns síns,“ skrifar Reiss enn fremur. thorgnyr@frettabladid.is Hundruð þúsunda barna gefin í hjónaband í Bandaríkjunum Hundruð þúsunda barna voru gift í Bandaríkjunum frá aldamótum og fram til ársins 2010. Yngstu börnin eru að minnsta kosti tólf ára. Þó er talið að yngri börn kunni að hafa verið gift. Framkvæmdastjóri samtaka sem rannsökuðu barnabrúðkaup segir þingmenn ekki aðhafast því að þeir vilji ekki brjóta á trúfrelsi fólks. Yngstu börnin eru tólf ára, jafnvel yngri. Nordicphotos/GettY Ef við miðum við hlutfall barnabrúð- kaupa af fólksfjölda teljum við að heildarfjöldi giftra barna í Bandaríkjunum á árunum 2000 til 2010 sé nærri 248.000. Fraidy Reiss, framkvæmdastjóri Unchained at Last Sjávarút veg u r Loðnuveiðar norskra báta hafa gengið vel að undanförnu og streymdu bátarnir inn á Austfjarðahafnir til löndunar fyrir helgi, eftir því sem fram kom á heimasíðu Síldarvinnslunnar í Nes- kaupstað. Á fimmtudag og aðfaranótt föstu- dags komu fjórir bátar til Neskaup- staðar; Brennholm með 500 tonn, Haugagut með 420 tonn, Gardar með 400 tonn og Nordfisk með 400 tonn. Talbor kom til hafnar í gær með 500 tonn. Öll loðnan fer til manneldis- vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnsl- unnar og að sögn Jóns Más Jónsson- ar, framkvæmdastjóra landvinnslu, sem talað er við í frétt Síldarvinnsl- unnar, er hráefnið miklu betra en það var fyrir nokkrum dögum þegar loðnan var full af átu. Norðmenn fá 40.000 tonn af 57.000 tonna útgefnum loðnukvóta í sinn hlut. Hafrannsóknastofnun leitar loðnu fyrir norðan – brátt skýrist því hvort loðnuvertíðin er fyrir bí eða ekki. – shá Norskum gengur vel á loðnu Norskir bátar landa í Neskaupstað. MYNd/KristíN s. hávarðsdóttir 1 3 . f e B r ú a r 2 0 1 7 M á n u d a g u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð 1 3 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :1 7 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 3 8 -0 8 F 8 1 C 3 8 -0 7 B C 1 C 3 8 -0 6 8 0 1 C 3 8 -0 5 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.