Fréttablaðið - 13.02.2017, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 13.02.2017, Blaðsíða 11
1 3 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M Á N U D a G U r sport Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi er Volkswagen Caddy. Hann er áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum - hefðbundinni lengd og lengri gerð (Maxi). Caddy má fá með fjórhjóladrifi sem eykur enn við öryggi og aksturseiginleika bílsins. Fjórhjóladrifinn Caddy hentar einstaklega vel við íslenskar aðstæður og eykur til muna notkunarmöguleika Caddy, hvort heldur er í snjó, hálku eða erfiðu færi. Volkswagen Caddy kostar frá 2.550.000 kr. (2.056.452 kr. án vsk) www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Góður vinnufélagi HEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu. Volkswagen Caddy fótbolti Eftir hnífjafna og spennu- þrungna kosningabaráttu hafði Guðni Bergsson betur í formanns- kjöri Knattspyrnusambands Íslands á ársþingi þess í Vestmannaeyjum um helgina. Guðni hlaut 83 atkvæði í kjörinu en Björn 66. Þátttaka á þinginu var afar mikil en af 153 mögulegum þingfull- trúum voru 149 á þinginu í Eyjum. Af úrslitunum að dæma hefur knatt- spyrnuhreyfingin skipst í tvær fylkingar en það mátti heyra á þing- fulltrúum um helgina að ekki væri búist við öðru en að íslensk knatt- spyrna myndi sameinast á ný undir forystu Guðna. Engin hallarbylting strax Guðni segir að hans fyrsta verk verði að setja sig inn í hlutina á skrifstofu KSÍ. Ræða við starfsfólk og meðlimi aðalstjórnar. Í kosn- ingabaráttunni talaði hann fyrir því að ráða inn yfirmann knattspyrnu- mála en þess fyrir utan hefur Guðni ekki fyrirfram boðað stórtækar breytingar á rekstri sambandsins. „Ég vil koma inn í starf sambands- ins og kynna mér hlutina áður en ég tek ákvörðun um framhaldið í samráði við stjórn og starfsmenn,“ sagði Guðni. „En það er ljóst að þær breytingar sem ég hef talað fyrir snúa að skipuriti og skipulagi, eins og með faglegum yfirmanni knatt- spyrnumála. Ég tel það gæfuspor fyrir íslenskan fótbolta.“ Vanda til verka Guðni bauð sig fram áður en Geir Þorsteinsson, sem lét af embætti formanns á þinginu um helgina, hafði ákveðið að bjóða sig ekki fram á nýjan leik. Guðni segir að bara sú staðreynd að hann hafi boðið sig fram, sýni að hann hafi viljað breytingar. „Geir hefur skilað góðu búi og á heiður skilinn en ég taldi að það væri kominn tími á breytingar hjá KSÍ. En ég vil líka byggja á því sem gott er.“ Vill bæta ímyndina Ímynd KSÍ hefur ekki alltaf verið góð undanfarin ár. Hitamál hafa ratað í fjölmiðla með reglulegu millibili en Guðni vonast til að þeir dagar séu að baki. „Besta leiðin til að bæta ímynd- ina er að vanda til verka. Bæði ég og Björn settum á oddinn ákveðið gagnsæi í aðdraganda kosninganna og er vilji innan stjórnar til að auka það. Ef okkar fólk hefur það í huga og vandar sig við það sem þeir fást við, tel ég að þetta verði ekki vanda- mál í framtíðinni.“ Launamál verði skýr Meðal þess sem hefur reglulega orðið að umfjöllunarefni fjölmiðla er hversu óskýr laun formanns KSÍ eru í ársreikningi sambandsins. Guðni vill gera breytingu á því. „Launamál formanns verða algjörlega gegnsæ. Það er vilji til að hafa það þannig og verður það svo. Í huga margra hafa þessi mál ekki verið nógu skýr og umræða skapast um það. En ég vil færa það til betri vegar.“ Hann undirstrikar þó að rekstur KSÍ hafi verið góður hingað til og að hann taki við góðu búi. „Landsliðin okkar eru í hæstu hæðum og starfið sem KSÍ hefur unnið á mörgum sviðum hefur verið mjög gott. Nú er markmið mitt að hafa starfið sem öflugast fyrir alla okkar aðildarfélaga. Ég vil til dæmis vinna að því að bæta aðstöðu þeirra og skoða hvort hægt sé að tækla ferðakostnað betur en hann hefur verið að sliga félögin á landsbyggð- inni. Það eru svo mörg mál og vanga- veltur sem ég er með og mun koma í ljós með tíð og tíma hverjar þær eru.“ eirikur@frettabladid.is Kominn tími á breytingar hjá KSÍ Guðni Bergsson var um helgina kjörinn nýr formaður Knattspyrnusambands Íslands eftir spennandi kosningabaráttu við Björn Einarsson. Guðni boðar breytingar og meira gagnsæi í rekstri KSÍ. Hann vill bæta ímynd sambandsins með góðum vinnubrögðum. Nýkjörinn formaður KSÍ, Guðni Bergsson, heldur hér ræðu á ársþinginu í Eyjum. myNd/hiLmar þór 1 3 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :1 7 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 3 7 -E B 5 8 1 C 3 7 -E A 1 C 1 C 3 7 -E 8 E 0 1 C 3 7 -E 7 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.