SÍBS blaðið - 01.06.2006, Page 33

SÍBS blaðið - 01.06.2006, Page 33
33 Í júní og júlí verður dregið um tæplega 40 milljónir króna í hvorum flokki. Meðal vinninga verður smábíllinn Honda Jazz, sem varð mjög vinsæll í fyrra en þá voru 20 slíkir bíla í boði. Núna höfum við boðið Honda CR- 10 Honda Jazz í júní og júlí V lúxusbíla sem voru dregnir út í janúar og í maí, en ,,Jazzinn” verður í boði í júní og júlí, fimm stykki hvorn mánuð. Nú er bara að treysta á heppnina, fá sér miða og trreysta uppbygginguna á Reykjalundi um leið. Happdrætti SÍBS gekkst fyrir söluátaki í byrjun maí enda voru vinningar glæsilegir að vanda, þeirra á meðal lúxusjeppi af gerðinni Honda CR-V með leðurinnréttingu og ýmsum auka- búnaði og tíu einnar milljón króna vinningar. Reynslan er sú að vinningur að upphæð ein milljón getur breytt miklu fyrir þá sem hreppa og því hefur þeim viningum frekar verið fjölg- að í stað þess að hafa fáa mjög háa vinninga. SÍBS dagur á Rás 2 í maí Rás 2 helgaði SÍBS drjúgan hluta útsendingar sinnar þann 5. maí og ræddi m.a. við lækna á Reykjalundi og fólk frá SÍBS ásamt því að sjúk- lingar sögðu frá dvöl sinni og endurhæfingu á Reykjalundi. Rás 2 eru færðar bestu þakkir fyrir framtakið sem studdi mjög vel við söluátak happdrætt- isins og vakti athygli á hinum góða málstað SÍBS og Reykjalundar. H a p p d r æ t t i S ÍB S

x

SÍBS blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.