SÍBS blaðið - 01.10.2008, Side 10

SÍBS blaðið - 01.10.2008, Side 10
10 frá landakaupunum þar til samþykktar teikningar lágu fyrir og bygging- arvinna hafin. Fyrst var ákveðið að byggja 10 smáhýsi og gekk illa að fá iðnaðarmenn til starfa. Niðurstaðan varð sú að fá múrara sem voru að byggja stórhýsi í Reykja- vík til að koma um helgar og hlóðu þeir upp eitt hús á hverri helgi. Með því að fá iðnaðarmenn úr ýmsum áttum til viðbótar sem unnu langan vinnu- dag tókst að ljúka fimm húsum fyrir áramót. Jafn- framt hafði bröggunum sem SÍBS náði að kaupa verið breytt í margvíslegar vistarverur, s.s. eldhús, borðstofu, saumastofu, tré- og járnsmíðaverk- stæði og þarna var líka bíósalur. Hinn 1. febrúar 1945 var Reykjalundi gefið nafn sitt og vinnuheimilið tók til starfa. Áfram rak hver framkvæmdin aðra og það má segja að þannig hafi það verið á Reykjalundi öll þessi ár, stöðug við- leitni til að bæta við húsum, tækjum og þekk- ingu. Hér verða ekki raktir allir áfangar í bygg- ingasögu Reykjalundar en þar hafa unnist margir sigrar. Nýjasti áfanginn er hið stórglæsilega þjálfunarhús sem tekið var í notkun snemma árs 2002. Í fjármögnun þess- arar uppbyggingar hefur Happdrætti SÍBS verið drýgst, en það tók til starfa árið 1949 og hefur allt til þessa dags lagt fram fjármagn til upp- byggingar á vegum SÍBS. Almenningur í land- inu hefur einnig lagt mikið af mörkum bæði með framlögum í söfnunum og með kaupum á merkjum, blöðum og með því að sækja ýmsa menningarviðburði sem SÍBS hefur staðið fyrir, ekki síst á fyrstu árum starfseminnar. Á Kristneshælinu var einnig rætt um nauðsyn þess að koma upp vinnustofum þar sem hægt væri að þjálfa sjúklinga eftir hælisvist og einnig til að gefa langdvalarsjúklingum færi á að stunda létt störf. Tilraunir voru gerðar í þessa átt fyrir daga SÍBS en framkvæmdir drógust. Árið 1948 kom SÍBS til liðs við framkvæmdina í Kristnesi, en þá var þar risið hús með rými fyrir vinnustofur. SÍBS tók að sér reksturinn og keypti vélar ásamt því að byggja hús fyrir verkstjóra vinnustofanna. Þarna var m. a. trésmíðaverk- stæði og saumastofa, en einnig voru framleiddar bindilykkjur til að binda steypustyrktarjárn. Um þetta leyti voru vistmenn allt að sjötíu talsins á Kristnesi og margir þeirra gátu unnið tvo til fjóra tíma á dag. Starfsemin lagðist svo af eftir tólf til fjórtán ár. Þá voru berkl- arnir að mestu yfirunnir og þeir sem eftir voru í Kristnesi voru of veikir til að geta unnið. Fjáraflanir af ýmsum toga Almenn fjáröflun fór fram um allt land á berklavarn- ardaginn, fyrsta sunnu- dag í október ár hvert. Þá var selt blað sam- takanna og einnig merki þeirra. Fljót- lega var farið að selja minningarkort og um Iðnskólinn á Reykjalundi Iðnskóli var starfræktur á Reykjalundi sem liður í endurhæfingu berkla- sjúklinga. Hann tók til starfa árið 1949 og var starfræktur til ársins 1965 er hann var lagður niður. nemendafjöldi var misjafn frá ári til árs, algengast um 10-15 nemendur en komst yfir 20 þegar flest var. Fyrstu árin eða til 1958 taldist hann deild í Iðnskóla Reykja- víkur, kostaður af Reykjalundi, en sjálfstæður skóli síðan. Áfram var þó góð samvinna við Iðnskólann í Reykja- vík um kennslu í sérhæfðum greinum. Algengt var að sjúklingar stunduðu nám í einhverjum bekkjum skólans á Reykjalundi en lykju svo námi annars staðar. Það fór að sjálfsögðu eftir því hve lengi þeir voru á Reykjalundi. Í þriðja tölublaði SÍBS blaðsins 2000 er viðtal við þrjá iðnskólabræður frá Reykjalundi, þá Guðmund Sv. Jónsson, Sigurþór Margeirsson og Svein Indr- iðason, en þeir töldu allir námið þar hafa nýst þeim vel. Sveinn fór í Garðyrkjuskólann eftir dvölina á Reykjalundi þar sem hann lauk prófi með ágætum og síðan lá leið hans til Bandaríkjanna þar sem hann stundaði nám við Cornell Univer- sity í New York. Starfsvettvangur hans hér heima varð síðan að byggja upp blómasölu bænda og reka Blómamið- stöðina. Sveinn segir á öðrum stað hér í blaðinu frá berklaveiki sinni og bar- áttu við hana.

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.