SÍBS blaðið - 01.10.2008, Side 18
18
Sirkus Zoo
Forsvarsmenn SÍBS á fyrstu árunum voru mjög
hugmyndaríkir og stórtækir í fjáröflun fyrir
samtökin. Engin hugmynd var svo fjarstæðu-
kennd að henni væri vísað á bug án umræðu
og þeir létu sér fátt um finnast þegar þeim var
bent á að sumar hugmyndirnar væru ófram-
kvæmanlegar. Gott dæmi um slíkt er Sirkus
Zoo. Þessi sænski sirkus var fenginn hingað
árið 1951, en vegna ófyrirséðra atvika, sum-
arvertíðar sirkussins ytra og erfiðleika á að fá
tilskilin leyfi þá dróst koma sirkusins fram á
haustið. Hann kom ásamt sirkustjöldum, dýrum
og listafólkinu með Dronning Alexandrine
um miðjan október. Margir töldu fyrirtækið
dauðadæmt á þessum árstíma en ekki okkar
menn. Þeir leigðu flugskýli nr. 3 á Reykjavík-
urflugvelli og settu sirkustjaldið upp þar inni.
Þarna voru einir tíu hvítabirnir, fíll, ljón, apar
og fleiri dýr sem vöktu mikla athygli. Þar að
auki voru skemmtikraftar og stjórnendur sem
Morgunblaðið segir hafa verið sundurleitan
hóp: „Ljóshærðar fimleikastúlkur frá Danmörku
og Svíþjóð, snaggaralegir loftfimleikamenn, þel-
dökkir Marokkómenn og unglingar og tæplega
meters hár dvergur, pólskur,“ segir í blaðinu.
Það er skemmst frá að segja að þrátt fyrir allar
hrakspár og mikið framboð á skemmtunum af
ýmsu tagi þá flykktist fólk í flugskýlið að sjá
Sirkus Zoo. Yfir 40.000 miðar seldust og eftir
50 sýningar pakkaði sirkusinn saman og sigldi
heimleiðis með gamla Gullfossi í nóvemberlok,
en SÍBS menn undu glaðir við sitt. Hagnaður
varð góður af fyrirtækinu þrátt fyrir mikinn til-
kostnað og framtakið mæltist yfirleitt vel fyrir.
Snoddas, Scymberg og Alice Babs
Árið 1953 var ekki tíðindalaust
á menningarsviðinu hjá SÍBS.
Gösta Nordgren, „Snoddas“ kom
hingað frá Svíþjóð þar sem hann
hafði skotist upp á stjörnuhim-
ininn á skömmum tíma. Söngstíll
hans var ekki óumdeildur og hann
hafði ekki söngnám að baki heldur
skaust upp á sænskan stjörnu-
himin á einu kvöldi. Það var í
útvarpsþættinum „Karruselen“ þar
sem hann söng lagið sem þekkt-
ast var hér á landi undir heitinu:
Hadderian, haddera, en fékk nafnið Ástir sjóar-
ans í ágætu ljóði Lofts Guðmundssonar. Hann
hélt alls 10 tónleika og var uppselt á þá alla.
Hann þá engin laun fyrir önnur en ferðakostn-
að og uppihald. Frægðarsól hans reis mjög
hratt í Svíþjóð en ljómaði ekki mjög lengi.
Gösta Nordgren hélt þó áfram að syngja allt
fram á síðasta dag, en hann lést aðeins 54 ára
er hann var að skemmta á sjúkrahúsi í Svíþjóð
1981.
Næst kom mjög þekkt söngkona frá konunglegu
óperunni í Stokkhólmi, Hjördís Scymberg. Hún
hélt söngskemmtun fyrir SÍBS í Þjóðleikhús-
inu og gaf SÍBS allan hagnaðinn. Þjóðleikhúsið
fékkst að auki frítt og stafsfólkið þar gaf vinnu
Sirkus og
söngskemmtanir