SÍBS blaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 19
19
sína þetta kvöld en húsfyllir varð.
Í nóvember þetta sama ár kom svo Charles
Norman tríóið og söngkonan Alice Babs. Þetta
listafólk var mjög þekkt um þessar mundir og
naut mikilla vinsælda hér á landi. Haldnir voru
12 tónleikar fyrir fullu húsi og mjög góðar
undirtektir. Verulegur hagnaður varð af þessu.
Sarah Leander, Helena
Eyjólfsdóttir og enskir rokkarar
Árið 1953 var því helgað sænsku listafólki og
enn komu sænskir listamenn í ágúst árið1954
á vegum SÍBS.Nú voru það söngkonan Sarah
Leander og tenórsöngvarinn Lars Rosén. Tón-
leikar þeirra í Austurbæjarbíói voru hins vegar
ekki vel sóttir og 50.000 króna tap varð á þessu
fyrirtæki. Síðar þetta sama ár komu Normans
kvartett ásamt söngvurunum Marion Sundh
og Ulf Carlén og héldu tónleika. Nokkur hagn-
aður varð af þessum tónleikum, eða um 27.000
krónur. Þegar árið var skoðað í heild töldu
stjórnarmenn SÍBS að nú væri rétt að fara sér
hægt í fjáröflun af þessu tagi, þar sem hagn-
aður væri engan veginn öruggur.
Því voru ekki fengnir fleiri skemmtikraftar
að sinni. Í maí 1957 var efnt til stórtónleika
í Austurbæjarbíói þar sem annars vegar kom
fram íslensk stórsveit Gunnars Ormslev ásamt
ungri söngkonu, Hel-
enu Eyjólfsdóttur
en hins vegar lék
enska rokksveitin
Tony Crombie and
his Rockets. Þetta
gafst vel og skilaði
SÍBS um 80.000
krónum. Þarna
var þó farið með
gát, því aðrir
aðilar fluttu inn
skemmtikraftana
og ábyrgðust
halla ef yrði,
en fengu ágóðahlut
af hagnaðinum. Sömu aðilar buðust
til að koma næst með stórsöngvarann Tommy
Steele og mættu á fund stjórnar með hliðstætt
tilboð og fyrr. Stjórnin taldi hins vegar kostnað
mikinn og ekki ljóst með hagnaðinn og óskaði
frekari upplýsinga sem ekki virðast hafa komið
og virðist málið þar með úr sögunni af hálfu
SÍBS samkvæmt fundargerðabókum. Tommy
Steele kom til landsins og skemmti ungu fólki
en líklega þó ekki á vegum SÍBS. Því virðist
þessum þætti í sögu SÍBS hafa lokið um þetta
leyti eftir umtalsverð umsvif í nokkur ár.