SÍBS blaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 21

SÍBS blaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 21
21 Hlíðabær er til húsa á Flókagötu 53 og tók til starfa 22. mars 1986. Það var jafnframt fyrsta dagþjálfunin sem sérstaklega var ætluð þeim sem greinst hafa með heilabilunarsjúkdóma. Rekstraraðilar eru þeir sömu og hjá Múlabæ, SÍBS og Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands. Auk þess koma fulltrúar eldri borgara í Reykja- vík að stjórn heimilanna. Allt að 20 manns eru í þjálfun hvern virkan dag. Markmið starfsins: 1. Að bæta líðan skjólstæðinganna með mark- vissri þjálfun. 2. Að auka möguleika þeirra á að búa lengur á eigin heimili. 3. Að styðja aðstandendur. Í Hlíðabæ er lögð áhersla á jákvæða virkni, virðingu fyrir einstaklingnum og vellíðan bæði skjólstæðinga og starfsfólks heimilisins. Skipulögð dagskrá skiptist í þjálfun, afþrey- ingu og hvíld. Leitast er við að koma til móts við áhuga og hæfni hvers og eins þannig að allir fái viðfangsefni við hæfi, nýti sínar sterku hliðar og njóti þess að vera þáttakendur í starfi og leik. H l í ð a b æ r Virðing – virkni – vellíðan Fastir liðir í dagskránni: Líkamsrækt, t.d. leikfimi, sund, gönguferðir og dans. Þjálfun í ýmsum athöfnum daglegs lífs. T.d. heimilisverk, bakstur, sultugerð, garðrækt o.fl. Fjölbreytt starf er í vinnustofum Hlíðabæjar, smíðavinna, kertagerð, kortagerð, prjón, saumar og margt fleira. Söngur, lestur, umræður og ýmislegt fleira sem stuðlað getur að aukinni virkni og ánægju. Ferðir á söfn, kaffihús o.fl. Einnig eru farnar lengri ferðir t.d. á sumrin. Lögð er áhersla á góð samskipti við fjölskyldur skjólstæðinga. PROCESS litir CYAN 43 MAGENTA 0 YELLOW 100 SVART 60

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.