SÍBS blaðið - 01.10.2008, Page 22

SÍBS blaðið - 01.10.2008, Page 22
22 Samtök lungnasjúklinga hafa starfað í rúm 11 ár og hafa frá upphafi lagt mikla áherslu á félagslegu hliðina. Því er það að á mánudög- um hittast félagar frá kl. 16 – 18 í Síðumúla 6, SÍBS húsinu. Nefndum við það Rölt og rabbhópinn. Þessar samverustundir hafa gef- ist vel og margir segja að þeir hlakki alltaf til mánudaganna því þeir séu svo upplífgandi og algjörlega ómissandi í þeirra lífi. Það vill nú oft verða svo, því miður, að fólk sem greinist með ólæknandi sjúkdóma og smám saman missir þrek til allrar hreyfingar vegna mikillar mæði vill oft einangrast, og veigrar sér við að fara út á meðal fólks. Því er samveran á mánudögum oft það eina sem fólk treystir sér til að fara. Þess vegna er það svo mikilvægt að nýta sér þessa fínu aðstöðu sem er í SÍBS húsinu. Við höfum fengið ýmsa fagaðila úr heilbrigð- isstétt til okkar með fræðslu sem er mjög gagn- legt og oftar en ekki mjög skemmtilegt. Einnig fylgjumst við með öllum nýjungum á sviði lungnajúkdóma, hvað varðar ný lyf á mark- aðnum og einnig ýmsum nýjungum er varða aðgerðir t.d. lungnasmækkun o.fl. Við erum með heimasíðu sem hefur, sem betur fer, hjálpað okkur til þess að ná til landsmanna og þannig höfum við haft samband við marga lungnasjúklinga á landsbyggðinni. Á síðasta ári var stofnað „útibú“ á Akureyri sem nefnir sig Líf og loft og þeir eru einnig með opið hús einu sinni í viku og hittast þar í húsi Krabbameins- Frá Samtökum lungnasjúklinga félagsins. Er það von okkar að það megi opna fleiri „útibú“ t.d. bæði á Austfjörðum og Vest- fjörðum. Verður stefnt að því fljótlega. En, aðalatriðið er að ná saman og miðla ýmsum upplýsingum á milli manna, þannig lærum við mest um okkur sjálf. Skrifstofa SLS er opin á mánudögum frá kl. 16 – 18. Síminn er 560 4812 og er hann einnig áframtengdur í síma formanns, svo það er alltaf hægt að ná til okkar utan skrifstofutíma. Megi veturinn verða ykkur mildur og þægilegur á allan hátt. Jóhanna Pálsdóttir, formaður. Tveir úr rabb- og rölthópnum ræðast við, Friðjón Sigurjónsson og Gísli Guðbrandsson. GARÐABÆR www.ga rdabae r. i s

x

SÍBS blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.