SÍBS blaðið - 01.10.2008, Síða 26

SÍBS blaðið - 01.10.2008, Síða 26
26 Það er gott að koma í Múlabæ, sem er rekinn af SÍBS og Reykjavíkurdeild Rauða krossins en samtök eldri borgara eiga einnig mann. í stjórn. Þarna er dagvist aldraðra og andrúmsloftið er afslappað og gott. Fólk situr þarna við hann- yrðir, blaðalestur eða spilar. Þá er margvísleg þjónusta veitt, s.s. hárgreiðsla, hand- og fót- snyrting, nudd og ýmis heilsuþjálfun og hægt er að nota ýmis tæki til þeirra hluta líka. Í Múlabæ hitti ég Önnu Stígsdóttur, sem er rúmlega áttræð en létt í spori og bjart yfir henni. Hún sat að spilum en tók mér vel og fékk fararleyfi um stund hjá meðspilurum sínum. Anna fæddist á Horni á Hornströndum og ólst upp í Hornvíkinni, eins og hún segir sjálf, en fluttist til ung til Ísafjarðar og svo fljótlega til Reykjavíkur. Hún hefur komið í Múlabæ tvisvar í viku í fjögur ár og unir hag sínum vel. „Ég lét til leiðast til að þóknast lækninum mínum og ætlaði bara að koma hingað tvisvar eða þrisvar og hætta svo. Mér líkaði bara svo vel að vera hérna að hér hef ég verið síðan og finnst einstaklega gott að koma hingað. Ég kem á þriðjudögum og fimmtudögum frá því um klukkan níu til þrjú. Hér er frábært starfsfólk og gott atlæti. Ég held bara að ég hafi haft for- dóma gagnvart Múlabæ áður en ég kom hing- að. Ég hélt að hér væri bara gamalt og heilsu- laust fólk og heldur dauf tilvera, en reyndin er sú að hér fullt af skemmtilegu fólki og maður eignast vini hérna. Þó skipti séu mikil á fólki þá eru samt 10-15 þeir sömu og voru hér þegar „Maður eignast vini hérna“ A n n a S t í g s d ó t t i r t e k i n t a l i í M ú l a b æ ég kom fyrst og hér er gott að mynda tengsl við fólk.“ Á leið inn í herbergið þar sem við spjöllum saman hittum við heimilismenn sem sitja við lestur, handavinnu eða spil og aðspurðir bera þeir allir starfsfólkinu og heimilisbragnum góða sögu. Múlalundur er griðastaður mjög margra um stundarsakir og gegnir mikilvægu hlutverki. „Fyrst þú ert frá SÍBS þá get ég sagt þér að ég var á Vífilsstöðum með berkla 1949-50. Ég var að vinna á sjúkrahúsinu á Ísafirði áður en ég kom suður og hef sennilega smitast þar. Eftir Vífilsstaði fór ég á Reykjalund og var þar í fjögur ár. Það var yndislegur tími. Fyrst var ég á saumastofunni en lengst af að vinna í borðstofunni. Á Reykjalundi fékk ég svo nýju berklalyfin sem læknuðu mig. Ég vann hjá SÍBS í tvö ár eftir að ég kom út af Reykjalundi og síðan kom ég aftur þangað 1964 og var þá í 18 ár hjá Happdrætti SÍBS til ársins 1982. Eftir það vann ég lengi hjá Rauða krossinum svo ég er á heimaslóðum hér í Múlabæ undir stjórn þessara góðu félaga.“ Svo sest Anna við spilin á ný og „makker“ heilsar henni með forhandargrandi sem vinnst léttilega, en ég tek pjönkur mínar og myndavél og fer, eftir að hafa fengið góðan kaffisopa í Múlabæ. Pétur Bjarnason

x

SÍBS blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.