SÍBS blaðið - 01.10.2008, Side 32

SÍBS blaðið - 01.10.2008, Side 32
2 Astma- og ofnæmisfélagið hefur efnt til átaks í samvinnu við lyfjafyrirtækið AstraZeneca, World Class og fleiri aðila. Tilgangur þess er að sýna fólki með astma að með réttri notkun astmalyfja, reglulegri líkamsrækt og skynsam- legum lifnaðarháttum þá er full ástæða til að lifa lífinu til fulls. Lokamarkmið verkefnisins er að þátttakendur gangi á Hvannadalshnjúk, hæsta tind Íslands í maí 2009. Nú þegar hafa 60 manns skráð sig í verkefnið og hafið þátt- töku. Í verkefninu er fólgið að mæta í fjallgöngur einu sinni í mánuði og munu þær verða æ erf- iðari þar til að því lýkur með lokatakmarkinu sem er ganga á Hvannadalshnjúk. Í þessar ferðir er að jafnaði farið á laugardögum. Einu sinni í mánuði er þrekæfing úti eða inni undir stjórn Fríðu Rúnar Þórðardóttur. Einnig er fyr- irhuguð fræðsla um þjálfun, astma, næringu og útbúnað og kennsla í fjallamennsku. Ráðgert er að gera þolpróf tvisvar á tímabilinu og að þátttakendur haldi astmadagbækur og mæl- Á u p p l e i ð m e ð a s t m a ! Astmafjallgöngur 2009 ingar á lungnastarfsemi. Í maí 2009 verður farið í rútuferð í Öræfasveit og undir leiðsögn reyndra fjallamanna verður gengið á Hvanna- dalshnjúk. Farin verður svokölluð Sandfellsleið. Áætlað er að um hér geti verið að ræða allt að 14 klukkustunda göngu í erfiðu landslagi með margbreytilegu veðurfari og að hún geti reynt verulega á fólk, bæði líkamlega og andlega. Áður fyrr var því haldið fram að þeir sem væru með astma ættu sem minnsta að gera af því að hreyfa sig og sérstaklega úti við í kulda og vindi. Að hluta til var þetta vegna þess að þá voru ekki til eins öflug lyf við astma eins og eru nú. Nú hafa fjöldamargar vísindarann- sóknir sýnt fram á notagildi líkamsþjálfunar fyrir astmaveika. Með því er hægt að draga úr einkennum og fækka versnunum og stuðla að vellíðan og létta öndunina. Margir sem eru með astma eru verri við áreynslu. Mikilvægt er fyrir þá að taka lyfin fyrir áreynslu og tryggja það að þeir andi ekki að sér mjög köldu lofti. Fjallgöngur eru ólíkar annarri áreynslu á

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.