SÍBS blaðið - 01.10.2008, Page 34

SÍBS blaðið - 01.10.2008, Page 34
 Ég vissi ekki hvar ég var og vissi trauðla hvað hafði komið fyrir. Ég lá, slöngum vafinn og snúrum, í tjaldi, án þess að vita til þess að ég hefði farið í tjaldútilegu og alls ekki innan um fólk sem talaði tungum. Eina samband mitt við veruleikann var þétt hnýttur, og afskaplega fal- legur blómvöndur, ekki stór, en fagmannlega gerður. Litbrigðin glöddu mig. Það var hvítt í honum og blátt, og rautt. Hann var á borði nærri mér. Þetta var vöndur sem forseti Finnlands hafði látið færa íslenskri forsetafrú, 26. ágúst 1997, þegar hún, ásamt eiginmanni sínum, sótti þann finnska heim í Helsinki. Og smám saman rifjaðist þetta upp. Ég var að fylgja forseta í opinbera heimsókn til Finn- lands. Þungur verkur fyrir brjóstinu, ekki ólíkt því sem mætti ímynda sér að gerðist lenti maður fyrir mistök í risastórri þvingu sem verið væri að herða upp á. Svitinn sem spratt af mér perlaði í gegnum snyrtilegu jakkafötin sem ég hafði farið í vegna forsetaheimsóknarinnar. Og orðin sem hann hvíslaði að mér finnski sjúkra- flutningamaðurinn sem stumraði yfir mér þar sem ég lá flatur á gólfinu, nær dauða en lífi: - Det er en hjärtinfarkt på gång og den er mycket allvarlig.” Þegar ég rankaði við mér næst sat konan mín við sjúkrabeðinn. Hún var á þeirri tíð frétta- maður hjá Ríkisútvarpinu, af gamla skólanum, og hafði aflað sér nákvæmra upplýsinga um það sem gerst hafði og flutti mér fréttirnar. Myndin varð skýrari eftir að hafa hlýtt á frétt- irnar hennar. Það var ómetanlegt að vita af henni hjá mér. Menn verða ótrúlega meyrir við svona aðstæð- ur. Utanríkisráðherra var með forseta í för og næsta kvöld stóð hann og hélt um hönd mína þegar ég lauk upp augunum. Ég gat ekkert sagt, en ég sá í svip hans samúðina og fann hana, þar sem hann hélt um hönd mína. Ég var of veikburða til að láta hjartaslagið fara í taugarnar á mér á meðan ég var að jafna mig í Finnlandi. Það var ekki fyrr en ég kom heim að það fór að renna upp fyrir mér að nú hefði það strik verið sett í reikning minn gagnvart Guði sem ég yrði að taka tillit til. H e l g i M á r A r t h u r s s o n ...eitt lítið spor í morgundögg Og tilfinningin sem smám saman kviknar í manni eftir áfallið, hvernig er hún? Hún er eins og djúpvitur Matthías: Nú bíðum við þess að bráðum komi þessi broslausi dagur – og svo þetta högg. Þegar líf okkar er að lokum aðeins eitt lítið spor í morgundögg. Minnig um dreng, eftir Matthías Johannessen, úr Tveggja bakka veður Eftir skoðun á Landspítala tók við endurhæf- ing á Reykjalundi. Fyrir utan frábæra þjónustu þar, endurhæfingu hugar og handar, fannst mér mikilvægast að fá að vera í friði. Að fá að hugsa sjálfur um þær aðstæður sem ég var lentur í. Jafn undarlegt og það kann að hljóma, að fá frið frá daglegum skyldum við fjölskyldu og vini. Að vera einn með sjálfum sér. Þetta er af því maður verður svo meyr, viðkvæmur, og þarf á öllu sínu að halda til að hysja sig upp á hárinu sjálfur. Pústið sem ég fékk á Reykjalundi gerði sitt. Að geta velt fyrir sér lífinu og tilverunni í friði og

x

SÍBS blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.