SÍBS blaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 35

SÍBS blaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 35
5 ró, að hafa átt þess kost að ná sér á eigin for- sendum af sjokkinu sem alvarlegt hjartaáfall hefur í för með sér hefur hjálpað mér síðar, þegar samskonar og afleidd áföll hafa orðið. Meiri hjartveiki og misalvarlegir blóðtappar bæði í ökla og eyra, ef svo má að orði komast. Það var einhvern tíma sagt við mig í Finnlandi að ég hefði verið heppinn. Í fyrsta lagi að fá hjartaáfall í forsetahöllinni og láta hringja eftir sjúkrabíl þaðan. Í öðru lagi að lenda á hjarta- deildinni á HYKS háskólasjúkrahúsinu í Hels- inki, sem þá var nýuppgerð og fín til að geta tekið sómasamlega við Jeltsin Rússlandsforseta sem stuttu áður hitti Clinton á leiðtogafundi og var veill fyrir hjarta, og í þriðja lagi að lenda hjá heimsþekktum hjartalæknum. Þetta var sjálfsagt mikil heppni, en lukkuleg- astur hef ég orðið að njóta þjónustu íslenskra heilbrigðisstarfsmanna. Þá fyrst er maður hepp- inn. Það er sama hvort við tölum um Unni á hjartadeildinni, Árna Kristins, Ragnar Daní- elsen, Guðmund Þorgeirs, Gizur, Kristján Eyj- ólfsson, Bjarna Torfa eða alla aðra sem vinna með í hjörtunum. Íslenskir hjartasjúklingar eru heppnir að eiga þetta fólk og ekki síður ríkan almennan vilja þjóðarinnar til að kosta gott heilbrigðiskerfi fyrir alla. Við sem sem höfum lent í alvarlegum áföll- um gerum okkur grein fyrir þessu. Við vitum hve dýrmæt þessi samfélagsstoð er. Því miður er það svo að menn velja sér ekki sjúkdóma og það er ekki hægt að banna þá með lögum. Hvorki krabbameinið sem ungabarnið fær né hjartaáfallið sem ungt fólk og hraust fær. Þeir sem verða fyrir áföllum læra að meta góða heilbrigðisþjónustu af því tagi sem við eigum öll aðgang að. Hún er jafn mikilvæg og sú góða fjölskylda, sem við eigum, og hjálpar okkur aftur af stað. Helgi Már Arthursson fékk hjartaáfall 46 ára og endurtekið síðar. Hann fékk blóðtappa í heila tíu árum síðar.

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.