SÍBS blaðið - 01.10.2008, Side 41

SÍBS blaðið - 01.10.2008, Side 41
1 Ég var hins vegar þrjóskari en allt og sann- færð um að þetta myndi lagast og keypti ekki lyfin. Mér leið betur dagsdaglega, losnaði smám saman við hjartsláttinn og var það greinilega eitthvað tímabundið ástand. Ég hélt mínu striki við æfingarnar sem voru auðvitað ekkert í lík- ingu við það sem þær áttu að vera. Fór svo í keppnisferð erlendis um vorið og gekk mjög illa og ferðin ónýt! Byrjaði upp frá þessu að nota lyfin og var í miklu “struggli” í byrjun og fannst þetta ekkert vera að gera neitt einasta gagn. Gunnar skipti þá um lyf og fór mér loksins að líða betur og að hafa betri stjórn á astmanum. Hver og einn þarf að prófa sig áfram með það hvað hentar honum best og hef ég sjálf prófað mismunandi útfærslur á lyfjatöku fyrir álag og þá sérstaklega fyrir keppni. Ég hef til að mynda prófað að taka lyfin 10 mínútum fyrir upp- hitun, klára upphitun og taka svo 2 hraða 150 – 200m spretti til að “rífa aðeins í lungun” en hætti því svo var ekki alveg að gera sig, fannst púlsinn fara svo hátt upp. Einnig hef ég prófað að pústa mig 15 mínútum fyrir létta upphitun sem hefst einni klukkustundu fyrir tímasetn- ingu hlaupsins og pústa mig svo aftur 15 mín- útum fyrir keppni. Það sem ég geri í dag er að pústa mig 20 mínútum fyrir upphitun og aftur 20 mínútum fyrir keppnina. Þetta kerfi hefur reynst mér mjög vel og dregur úr óþægilegum aukaverknum eins og hraðari hjartslætti. Mikilvægt er þó að forðast mikið stress hvort heldur á keppnisstað eða klukkustundirnar á undan því mikið stress og tímahrak espar upp einkennin og skemmir verulega fyrir árangr- inum. Ég tel að það að fáir á Íslandi í frjálsíþróttum og kannski íþróttum almennt eru með astma dragi úr meðvitund þeirra sem ekki eru með astma fyrir því hversu hamlandi astminn getur verið. Ég hef til dæmis upplifað að fólk gleymir og hefur engan skilning á því að ég sé raun- verulega með astma og þurfi því stundum að fá vissan stuðning og skilning af þeim sökum. Astmalyf eru eingöngu leyfð þeim sem þurfa virklega á þeim að halda og hef ég þurft að fara tvisvar í metacolin test til að staðfesta það fyrir alþjóðlegri lyfjaeftirlitsnefnd að ég þurfi á lyfjunum að halda. Hér hefur starfsfólk lungnadeildar Landspítala í Fossvogi reynst mér einstaklega vel í þessum efnum. Spurning margra er hvort árangurinn hafi dvínað eftir að ég fékk astmann. Það er í raun óraunhæfur samanburður vegna þess að minn besti árangur er síðan árin 2003-2005 sem voru mín bestu íþróttaár frá upphafi. Hins vegar þá hef ég náð fínum árangri eftir að astminn kom til sögunnar, til að mynda bætt minn besta tíma í 10000m hlaupi og náð fjórða og fimmta besta tímanum mínum í 5000m hlaupi. Fínn árangur á heims-, evrópu- og norð- urlandameistaramótum öldunga hefur náðst á síðustu þremur til fjórum árum. Auk þess að vera enn í fremstu röð á Íslandi komin hátt á fertugs aldur sýnir hvað hægt er að gera þegar öflugar og skynsamlegar æfingar og hollt mat- aræði í takt við þörf er haft í hávegum til við- bótar við góð lyf og rétt notkun þeirra í mínu tilfelli. Ekki má gleyma heilbrigðu og jákvæðu hugarfari ásamt ómetanlegum stuðningi nán- ustu. Þegar Bjarnfríður Guðmundsdóttir hjá Astra Zeneca hafði samband við mig og viðraði við mig þá ótrúlegu hugmynd að ég myndi þjálfa hóp astmasjúklinga til að hlaupa maraþon í Reykjavíkur Maraþoni hélt ég að hún væri ekki með réttu ráði. Mér fannst ég engan veginn hafa næga reynslu af þjálfun hvað þá heldur astmasjúklinga til að gera þetta auk þess sem mig vantaði ekki verkefni. Sannfæringarkraftur hennar, mín góðmennska og tilhneiging til að geta ekki sagt nei varð hins vegar til þess að ég lét til leiðast og sem betur fer segi ég nú. Þegar astmamaraþoninu lauk og tími kom- inn til að sleppa hendinni af hópnum (sem var mér mjög erfitt) fór ég að gera verkefnið upp í huganum. Það sem fyrst kemur upp í hugann er hvað þetta hafi í raun verið frábært tími, frábært fólk sem ég kynntist og góð reynsla í reynslupokann. Einnig fór ég að hugsa hvort að það að ég sjálf fékk áreinsluastma hafi kannski orðið til góðs þegar upp er staðið. Ef ég hefði ekki greinst með astmann, fengið svona góða meðferð og frábæran stuðning í staðinn fyrir vorkunn, þá hefði ég ekki haft reynslu eða þekkingu til að láta gott af mér leiða fyrir þá sem ég hef verið svo lánsöm að fá að kynnast, þjálfa og ráðleggja um hreyfingu undanfarið ár. Það er algerlega á hreinu að hentug hreyf- ing eflir líkama og sál og ekki síst ef sjúkdómur eins og astmi er til staðar. Sjúkdómur þar sem gott líkamlegt form og öflugt ónæmiskerfi er lykillinn að hreysti og vellíðan. Fríða Rún Þórðardóttir Hlaupari Næringarfræðingur Þjálfari astmamaraþons og astmafjallgöngu AstraZenece, Astma og Ofnæmisfélags Íslands og World Class

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.