SÍBS blaðið - 01.10.2008, Page 46
6
Einn þeim starfsmönnum sem lengst hafa unnið
í Múlalundi er Pétur Guðbjörn Jóhannesson.
Pétur á afmæli á verkalýðsdaginn þannig að
það er alltaf mikið um að vera á afmælinu
hans. Samt meira en venjulega 1. maí s.l. því
þá varð hann sextugur og það var haldið upp á
það með veglegri veislu.
Pétur hefur unnið í Múlalundi í um fjörutíu
ár. Hann sagðist hafa unnið ýmsa vinnu áður,
m.a. við byggingavinnu, en með hjálp systkina
sinna þá var honum útveguð vinna í Múlalundi
og þar hefur hann unnið síðan og missir nán-
ast aldrei dag úr vinnu. Hann kemur hjólandi
til vinnu í öllum veðrum, jafnt vetur og sumar
og setur nagladekk undir hjólið þegar hálkan
kemur. Oft er hann mættur snemma, jafnvel
upp úr kl. sjö á morgnana, en þá er góður
tími til að setjast niður með félögunum, fá sér
morgunandakt með kaffisopa og leggja línurnar
fyrir daginn en vinna hefst svo klukkan 8.
Pétur gengur í mörg störf í Múlalundi. Mjög
oft vinnur hann á skurðarvél og sker plast auk
margs annars. Hann hefur yfirumsjón með
flokkun og frágangi á afskurði og afgöngum
sem fara til förgunar eða endurvinnslu, tekur
það víðsvegar um vinnusalinn og skilar á sinn
stað. Þar að auki sér hann um að hringja í
kaffi- og matartíma auk margs annars sem
hann starfar á staðnum. Sjálfur segist hann
frekar vinna léttari vinnu nú en þegar hann
var yngri. Að sögn verkstjórans er Pétur mjög
traustur starfsmaður og rækir hlutverk sín af
mikilli trúmennsku.
Pétur fór í september s.l. í fjögurra daga
ferð til Manchester að sjá átrúnaðargoð sín í
Hjólar til vinnu allt árið
H e i m s ó k n í M ú l a l u n d
Manchester United leika við Bolton. Strákarn-
ir brugðust honum ekki því þeir unnu leikinn
2-0. Pétur var ánægður með ferðina og sagði
hana hafa verið góða. Farið var á föstudegi og
komið á mánudegi. Ferðin hefði ekki mátt vera
mikið lengri, því strax var allt úr skorðum í
Múlalundi, fötur og stampar fullir af afskurði
og varla nokkur regla á kaffi og matartímum.
Þetta komst samt allt í lag þegar Pétur mætti
aftur.
Pétur segist vera mjög ánægður í Múlalundi.
Þetta er nánast annað heimili hans. Hann tekur
þátt í ferðalögum og öðru sem snýr að félagslífi
starfsmannanna. Oftast hefur hann líka mætt
á Opið hús á SÍBS deginum og heilsað upp á
starfsliðið þar og fengið kaffi og vöfflur.
Helgi Kristófersson, framkvæmdastjóri Múlalundar ásamt
Dorrit Moussaief og Ólafi Ragnari Grímssyni forseta
Pétur gengur í mörg störf í Múlalundi
Pétur og Gunnar Albert Ottósson.