Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Side 2
2 Fréttir Vikublað 5.–7. janúar 2016
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • Opið kl. 12-18
Lengri og breiðari
parketpLankar
200 dúfur
drápust
Liðlega 200 skrautdúfur drápust
í eldsvoða í Kapelluhrauni
í Hafnarfirði aðfaranótt
mánudags. Um hundrað
fermetra hús brann til grunna
en Jón Magnús Guðmundsson
eigandi sagði við RÚV að
tekist hefði að bjarga 14
dúfum af næstum 200. Fjórir
slökkviliðsbílar voru ræstir út
til að ráða niðurlögum eldsins
en í eldsvoðanum varð áratuga
ræktunar- og kynbótastarf Jóns
Magnúsar að engu. Dúfnahús,
sem stendur við hlið þess sem
brann rataði í fréttirnar 2009,
þegar kona fannst þar látin.
Vilja upp-
lýsingar um
handblys
Neytendastofa hefur kallað eftir
upplýsingum og aðstoð vegna
slysa sem hlutust af handblysum
um áramótin. Grunur leikur á að
blysin hafi verið gölluð.
Stöð 2 greindi frá því að sjö af
þeim tíu sem urðu fyrir flugelda-
slysum á nýársnótt hafi orðið fyr-
ir meiðslum vegna handblysa.
Neytendastofa óskar eftir frek-
ari upplýsingum um slysin og
óhöppin og hverrar gerðar blysin
voru og hvar þau voru seld.
L
ögreglustjórinn á höfuðborgar-
svæðinu hefur framlengt verk-
efni þar sem lögreglumaður
aðstoðar foreldra og barna-
verndarnefndir við leit að ungmenn-
um, undir átján ára aldri, sem af ein-
hverjum ástæðum skila sér ekki heim
til sín eða á viðeigandi stofnun. Lög-
reglan leitar um það bil annan hvern
dag að týndum ungmennum, en það
er aðalvarðstjórinn Guðmundur sem
hefur sinnt verkefninu. Guðmundur
var fenginn að láni frá ríkislögreglu-
stjóra en hefur nú verið fastráðinn hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
og hefur verkefnið fengið fjármagn út
árið. Það hefur þótt skila mjög góðum
árangri frá upphafi þess árið 2014.
Barnaverndarnefndirnar, sem
starfa vítt og breitt um landið, og
lögreglan eru í miklu samstarfi og
fyrir vikið hefur hefur leitarbeiðn-
um fjölgað og viðbragðstími lögreglu
er orðinn styttri. Guðmundur leit-
aði að meðaltali að 15,6 börnum á
mánuði á árinu 2015. Bara í desem-
ber leitaði lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu sautján sinnum að börnum,
átta stúlkum og níu drengjum. n
astasigrun@dv.is
Verkefni Guðmundar framlengt
Mun áfram leita sérstaklega að týndum ungmennum
Framlengt Verkefnið
hefur fengið fjármagn
út árið. Mynd Sigtryggur Ari
R
eykjavík trónir á toppi ár-
legs lista útgáfufyrirtækis-
ins Rough Guides yfir þær
tíu borgir sem ferðamenn
verða að heimsækja árið
2016. Um er að ræða talsverða veg-
semd því Rough Guides er einn öfl-
ugasti útgefandi ferðahandbóka
í heimi. Fyrirtækið, sem gefur út
bækur um meira en 200 áfanga-
staði, er í eigu Penguin Random
House sem er líklega stærsti bó-
kútgefandi heims. Alls starfa um
10 þúsund manns hjá fyrirtækinu
sem árlega gefur út um 15 þúsund
bókar titla.
Í umfjöllun Rough Guides kemur
fram að helsta aðdráttarafl höfuð-
borgarinnar sé menningar lífið, töff
næturlíf og náttúruperlurnar sem
eru við þröskuld borgarinnar. Þá
virðast litrík hús borgarinnar hafa
heillað dómnefndina sem og ferskt
sjávarfangið sem alls staðar býðst.
Ferðamenn eru hvattir til þess að
upplifa „rúntinn“ og séu menn
ryðgaðir eftir ævintýri næturinnar
þá er talið nauðsynlegt að upplifa
heitu pottana í sundlaugum höfuð-
borgarsvæðisins.
Talið er að 1,3 milljónir ferða-
manna hafi lagt leið sína til lands-
ins á þessu ári sem er talsvert meira
en bjartsýnustu menn gerðu ráð
fyrir. Samkvæmt spá Icelandair,
sem flytur tvo af hverjum þremur
ferðamönnum sem koma til lands-
ins, er gert ráð fyrir að fjöldi ferða-
manna fari yfir eina og hálfa millj-
ón árið 2016. Ljóst er að kynning
Rough Guides á landinu er mik-
ilvæg en að sögn Ingvars Arnar
Ingvars sonar, verkefnastjóri hjá Ís-
landsstofu, er erfitt að meta hversu
mikil virði í krónum talið auglýs-
ingin er. Að hans sögn er hins vegar
óhætt að fullyrða að tilnefning sem
þessi sé mikilvæg. „Þetta kemur
fram í niðurstöðum leitarvéla og
einnig er tímabilið afar hagstætt
þar sem lykilmarkhópar okkar eru
að huga að sumarleyfum sínum
á þessum árstíma og bóka ferðir.
Einnig hefur fólk almennt gaman
af svona listum, þeir vekja athygli
og umtal, ekki síst á samfélagsmiðl-
um,“ segir Ingvar.
Að sögn Ingvars eru tilnefningar
sem þessar í sumum tilvikum óbein
afleiðing markaðsstarfs Íslands-
stofu. „Við erum sífellt að benda á
okkur sem mögulegan áfangastað
og vekja athygli þeirra sem starfa
í bransanum og það getur síðan
skilað sér í formi umfjöllunar eins
þeirrar sem nú birtist hjá Rough
Guides,“ segir Ingvar. n
Reykjavík í fyrsta
sæti hjá Rough Guides
Höfuðborgin trónir á toppi lista yfir borgir sem fólk verður að heimsækja árið 2016
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Listinn í
heild sinni
1. Reykjavík
2. Mexíkóborg, Mexíkó
3. Seúl, Suður-Kórea
4. Ljublana, Slóvenía
5. Wroclaw, Pólland
6. Nashville, Bandaríkin
7. Amsterdam, Holland
8. Hull, England
9. Vancouver, Kanada
10. Agra, Indland
1. REYKJAVÍK, ICELAND
ingvar Örn ingvarsson Segir að tilnefn-
ing Rough Guides komi á frábærum tíma þar
sem lykilmarkhópar séu að íhuga sumarleyfi
sín um þessar mundir. Mynd KriStján MAAcK
Fyrsta sæti Myndin sem blasir við
lesendum vefsíðunnar roughguides.com