Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Blaðsíða 24
Vikublað 5.–7. janúar 201620 Lífsstíll Borðaðu þetta á nýju ári n Hugmyndir að hollum mat sem bætir heilsuna n Best er að borða grænmeti hrátt Þ að eru fastir liðir eins og venjulega að fólk setji sér markmið á nýju ári, og þá gjarnan hvað mataræðið varðar. Að snúa til betri vegar, viðhafa heilbrigðari lífsstíl og borða hollari mat getur bara verið af hinu góða. En gott er að hafa í huga að fara ekki of geyst af stað í breytingarnar, því það er alltaf hætta á því að slíkt flas verði fólki að falli. Það er um að gera að byrja á því að skipta óhollari fæðu út fyrir hollari hægt og rólega og gera þannig nýja fæðu að fastri breytu í mataræðinu á sem eðlilegast hátt. Hér eru nokkur dæmi um einstak- lega holla fæðu sem ætti að vera hluti af mataræði þínu á nýju ári. Spínat Spínat ætti að vera sem oftast á borðum, en rannsóknir hafa meðal annars sýnt að það geti spornað við sykursýki 2. Þá er spínat upp- fullt af vítamínum sem eru líkamanum nauðsynleg. Best er að borða spínatið hrátt eða létt gufusoðið til að vítamínin fari ekki til spillist. En svo eru að sjálfsögðu til margir góðir réttir sem þarf að fullelda, en innihalda spínat. Það er þó alltaf betra en ekkert spínat. Möndlur Möndlur eru klárlega hollasta snakkið, en þó ber að varast að borða of mikið af þeim. Þær eru ríkar af hollri fitu sem draga úr og viðhalda eðli- legu magni kólesteróls í blóð. Þar fyrir utan eru þær uppfullar af vítamínum, steinefnum og trefjum Avókadó Avókadó eða lárpera er með því hollara sem þú getur borðað. Að borða eitt avókadó á dag kemur heilsunni í lag – eða allt að því. Það getur alla- vega bætt hana verulega. Ávöxtur- inn er mjög fituríkur og um 75 pró- sent af kalóríunum sem þú færð úr avókadó koma úr fitu. Þar er hins vegar um holla fitu að ræða sem gerir líkamanum gott. Þá er avókadó ein trefjaríkasta fæða sem þú getur innbyrt og því sérlega gott fyrir meltinguna. Hafragrautur Að borða hafragraut á hverjum morgni er allra meina bót. Það er sérstaklega gott fyrir þá sem eru með of hátt kólesteról í blóðinu því rannsóknir hafa sýnt fram á að með neyslu á haframjöli sé hægt að lækka það. Haframjölið er líka ríkt meðal annars af B-vítamíni og Omega-3 fitusýrum Brokkolí Brokkolí eða spergilkál er sérstak- lega ríkt af trefjum, kalsíum og ýms- um öðrum vítamínum, eins og C- vítamíni. 100 grömm af spergilkáli gefa af sér um 150 prósent af dag- legri C-vítamín þörf einstaklings. Rannsóknir hafa sýnt fram á að neysla á spergilkáli geti dregið úr líkum á hjartasjúkdómum, sykur- sýki 2 og ákveðnum tegundum af krabbameini. Það ber hins vegar að var- ast að elda spergilkál- ið of mikið því þá tapast flest- öll næringar- efnin. Bláber Það er mjög gott að neyta ýmiss konar berja mjög reglulega. Til dæmis bláberja. Þau eru rík af trefj- um og andoxunarefnum og talið er að neysla á bláberjum hafi jákvæð áhrif á of háan blóðþrýsting – geti lækkað hann um allt að 10 pró- sent. Þá hafa rannsóknir sýnt fram á að eldra fólk sem neytir reglu- lega bláberja er ólíklegra til að þróa með sér elliglöp en jafnaldrar þess sem gera það ekki. Það virðist að minnsta kosti ekki gerast jafn hratt. Lax Lax og annar feitur fiskur ætti að vera á borðum einu sinni eða tvisvar í viku. Jafnvel oftar. Hann er fullur af Omega-3 fitusýrum sem hafa jákvæð áhrif á hjarta- og taugakerfið. Neysla á feitum fiski er líka talin sporna gegn liðagigt. Sætar kartöflur Sætar kartöflur eru ríkar af trefjum, karótíni, flóknum kol- vetnum og fjölda vítamína. Fyrir vikið eru þær frá- bær orkugjafi og ekki skemmir fyrir hvað þær eru einstaklega góðar. n Hollur og góður Það er tilvalið að byrja daginn með fullri skál af hafragraut. Verið velkomin! 20% AFSLÁTTUR af kæli- og frystiskápum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.