Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Síða 24
Vikublað 5.–7. janúar 201620 Lífsstíll
Borðaðu þetta á nýju ári
n Hugmyndir að hollum mat sem bætir heilsuna n Best er að borða grænmeti hrátt
Þ
að eru fastir liðir eins og
venjulega að fólk setji sér
markmið á nýju ári, og þá
gjarnan hvað mataræðið
varðar. Að snúa til betri
vegar, viðhafa heilbrigðari lífsstíl og
borða hollari mat getur bara verið
af hinu góða. En gott er að hafa í
huga að fara ekki of geyst af stað
í breytingarnar, því það er alltaf
hætta á því að slíkt flas verði fólki
að falli. Það er um að gera að byrja
á því að skipta óhollari fæðu út
fyrir hollari hægt og rólega og gera
þannig nýja fæðu að fastri breytu í
mataræðinu á sem eðlilegast hátt.
Hér eru nokkur dæmi um einstak-
lega holla fæðu sem ætti að vera
hluti af mataræði þínu á nýju ári.
Spínat
Spínat ætti að vera
sem oftast á borðum,
en rannsóknir hafa
meðal annars sýnt
að það geti spornað
við sykursýki 2.
Þá er spínat upp-
fullt af vítamínum
sem eru líkamanum
nauðsynleg. Best er að
borða spínatið hrátt eða létt
gufusoðið til að vítamínin fari ekki
til spillist. En svo eru að sjálfsögðu
til margir góðir réttir sem þarf að
fullelda, en innihalda spínat. Það
er þó alltaf betra en ekkert spínat.
Möndlur
Möndlur eru klárlega hollasta
snakkið, en þó ber að varast að
borða of mikið af þeim. Þær eru
ríkar af hollri fitu sem draga úr og
viðhalda eðli-
legu magni
kólesteróls
í blóð. Þar
fyrir utan
eru þær
uppfullar af
vítamínum,
steinefnum
og trefjum
Avókadó
Avókadó eða lárpera
er með því hollara
sem þú getur borðað.
Að borða eitt avókadó á
dag kemur heilsunni í lag
– eða allt að því. Það getur alla-
vega bætt hana verulega. Ávöxtur-
inn er mjög fituríkur og um 75 pró-
sent af kalóríunum sem þú færð úr
avókadó koma úr fitu. Þar er hins
vegar um holla fitu að ræða sem
gerir líkamanum
gott. Þá er avókadó
ein trefjaríkasta fæða
sem þú getur innbyrt
og því sérlega gott fyrir
meltinguna.
Hafragrautur
Að borða hafragraut á hverjum
morgni er allra meina bót. Það er
sérstaklega gott fyrir þá sem eru
með of hátt kólesteról í blóðinu
því rannsóknir hafa sýnt fram á að
með neyslu á haframjöli sé hægt
að lækka það. Haframjölið er líka
ríkt meðal annars af B-vítamíni og
Omega-3 fitusýrum
Brokkolí
Brokkolí eða spergilkál er sérstak-
lega ríkt af trefjum, kalsíum og ýms-
um öðrum vítamínum, eins og C-
vítamíni. 100 grömm af spergilkáli
gefa af sér um 150 prósent af dag-
legri C-vítamín þörf einstaklings.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að
neysla á spergilkáli geti dregið úr
líkum á hjartasjúkdómum, sykur-
sýki 2 og ákveðnum tegundum af
krabbameini.
Það ber hins
vegar að var-
ast að elda
spergilkál-
ið of mikið
því þá
tapast flest-
öll næringar-
efnin.
Bláber
Það er mjög gott að neyta ýmiss
konar berja mjög reglulega. Til
dæmis bláberja. Þau eru rík af trefj-
um og andoxunarefnum og talið er
að neysla á bláberjum hafi jákvæð
áhrif á of háan blóðþrýsting – geti
lækkað hann um allt að 10 pró-
sent. Þá hafa rannsóknir sýnt fram
á að eldra fólk sem neytir reglu-
lega bláberja er ólíklegra til að þróa
með sér elliglöp en jafnaldrar þess
sem gera það ekki. Það virðist að
minnsta kosti ekki gerast jafn hratt.
Lax
Lax og annar
feitur fiskur
ætti að vera
á borðum
einu sinni
eða tvisvar í
viku. Jafnvel
oftar. Hann er
fullur af Omega-3
fitusýrum sem hafa jákvæð áhrif á
hjarta- og taugakerfið. Neysla á
feitum fiski er líka talin sporna
gegn liðagigt.
Sætar
kartöflur
Sætar
kartöflur
eru ríkar
af trefjum,
karótíni,
flóknum kol-
vetnum og fjölda
vítamína. Fyrir vikið eru þær frá-
bær orkugjafi og ekki skemmir fyrir
hvað þær eru einstaklega góðar. n
Hollur og góður Það er tilvalið að byrja daginn með fullri skál af hafragraut.
Verið velkomin!
20%
AFSLÁTTUR
af
kæli- og frystiskápum