Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Side 6
Vikublað 5.–7. janúar 20166 Fréttir
Rússar loka á fjórar
íslenskar fiskvinnslur
n FISK Seafood og Ísfélagið á bannlista n Sendinefnd skoðaði fyrirtækin í haust
M
atvælastofnun Rússlands
hefur sett tímabundið
innflutningsbann á vör-
ur fjögurra íslenskra sjáv-
arútvegsfyrirtækja til
Tollabandalags Rússlands, Hvíta-
Rússlands og Kasakstans. Fyrirtæk-
in FISK Seafood á Sauðárkróki og
Búlandstindur á Djúpavogi mega
því ekki selja til Hvíta-Rússlands
og Kasakstans ofan á innflutnings-
bann Rússa á íslenskar sjávarafurðir
sem tók gildi í ágúst síðastliðnum.
Afurðir af Vilhelmi Þorsteinssyni EA,
fjölveiðiskipi Samherja á Akureyri,
lentu einnig á bannlistanum ásamt
vörum frá fiskvinnslu Ísfélags Vest-
mannaeyja á Þórshöfn.
Ákveðið á aðfangadag
Ákvörðunin um að setja fyrirtækin
fjögur á bannlista var tekin 24. des-
ember síðastliðinn og tekur gildi
fimmtudaginn 7. janúar næstkom-
andi. DV greindi í september frá úttekt
sex manna sendinefndar rússnesku
matvælastofnunarinnar, sem þá stóð
yfir, á íslenskum fiskvinnslum í eigu
nokkurra stærstu sjávarútvegsfyrir-
tækja landsins. Óttuðust útflytjendur
sem DV ræddi þá við að sala þeirra til
Hvíta-Rússlands og Kasakstans yrði
stöðvuð ofan á ákvörðun Rússa um
að setja innflutningsbann á allar ís-
lenskar sjávar afurðir. Einnig óttuð-
ust þeir að heimsóknirnar gætu leitt
til þess að fyrirtæki þeirra yrðu áfram
í innflutningsbanni til tollabanda-
lagsins færi svo að Rússar ákvæðu
að leyfa aftur sölu á íslenskum fiski.
Vöktu þeir athygli á tímasetningu
heimsóknarinnar en úttektin fór
fram fáeinum vikum eftir að Rússar
ákváðu að svara viðskiptaþvingunum
Evrópusambandsins (ESB) og banda-
lagsþjóða þess með banni á innflutn-
ing íslenskra sjávarafurða.
Úttekt sendinefndarinnar hér
á landi tók um eina viku og heim-
sótti hún þá níu fiskvinnslur í eigu
HB Granda, Samherja, Síldarvinnsl-
unnar, Ísfélags Vestmannaeyja,
Skinneyjar-Þinganess, Eskju, FISK
Seafood og Búlandstinds.
Lokuðu á fleiri
Matvælastofnunin sendi einnig
sendinefnd hingað til lands í nóv-
ember 2014 og þremur mánuð-
um síðar voru níu fyrirtæki svipt
innflutningsleyfum til tollabanda-
lagsins. Átta þeirra, þar á með-
al sjávarútvegsfyrirtækin Skinn-
ey-Þinganes, Vinnslustöðin í
Vestmannaeyjum og kjötframleið-
endurnir Kaupfélag Skagfirðinga
og Sláturfélag Suðurlands, eru enn
á bannlistanum. Alls 51 íslenskt
matvælafyrirtæki hafði þá sótt um
innflutningsleyfi, 82 voru þá þegar
með leyfi, og ákvað matvælastofn-
unin rússneska að afturkalla leyfi
allra þeirra fyrirtækja sem sendi-
nefndin skoðaði.
Sú ákvörðun að setja fyrirtækin
á bannlista var meðal annars rök-
studd með vísun í auknar kröfur
um sýnatökur og örverurannsóknir.
Yfir maður hjá HB Granda, eina
fyrir tækinu sem hefur fengið bann-
inu aflétt, fullyrti í samtali við DV í
lok apríl 2014 að það hefði uppfyllt
skilyrði matvælastofnunarinnar um
endurbætur í verksmiðjunni. Mat-
vælastofnun (MAST) fullyrðir að ís-
lensku fyrirtækin sem lentu á bann-
listanum á fyrri hluta síðasta árs hafi
öll lagt í heilmiklar úrbætur á fram-
leiðsluferlum sínum. Lítið hafi verið
um svör frá rússnesku systurstofn-
uninni um hvort þær hafi verið full-
nægjandi og hvenær banninu verði
aflétt.
Milljarða markaður
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
(SFS) vilja að íslensk stjórnvöld
endurskoði stuðning sinn við við-
skiptaþvinganir ESB, vegna inn-
rásar Rússa í Úkraínu og innlimun
Krímskaga, sem leiddu til þess að
Rússar lokuðu á innflutning ís-
lenskra sjávarafurða og landbún-
aðarvara að frátöldu lambakjöti,
ærkjöti, hrossakjöti og niðursoðnu
fiskmeti í dósum. SFS hafa bent á
að Rússland var vaxandi markað-
ur fyrir íslenskar sjávarafurðir og
að útflutningur þangað hafi leik-
ið stórt hlutverk í gjaldeyrisöflun
þjóðarinnar. Meta samtökin tjón ís-
lenskra fiskútflytjenda á átta til tólf
milljarða á ársgrundvelli. ESB mun
framlengja viðskiptaþvinganir sín-
ar gegn Rússlandi í sex mánuði en
viðskiptaþvinganirnar hefðu ella
fallið niður í lok janúar 2016. Ekki
náðist í Kolbein Árnason, fram-
kvæmdastjóra SFS, eða Jens Garð-
ar Helgason, formann samtakanna,
við vinnslu fréttarinnar.
Hvíta-Rússland og Kasakstan
eru þar að auki mikilvægir markaðir
enda hefur talsvert af makríl og
fleiri fisktegundum verið flutt út til
landanna tveggja á síðustu árum.
Samkvæmt útflutningstölum Hag-
stofunnar seldu íslensk fyrirtæki
sjávarafurðir til Hvíta-Rússlands
fyrir 891 milljón króna árið 2014. n
Bönnuðu
fisk og kjöt
Nú eru tólf fyrirtæki á tímabundnum
bannlista rússnesku matvælastofn-
unarinnar vegna innflutnings til
Tollabandalags Rússlands, Hvíta-Rúss-
lands og Kasakstans. Innflutningsleyfi
eftirtalinna fyrirtækja hafa verið
afturkölluð:
n Skinney-Þinganes hf.*
n Vinnslustöðin hf.*
n Frostfiskur ehf.*
n Huginn ehf. *
n Kaupfélag Skagfirðinga.*
n Sláturfélag Suðurlands (SS)*
n Sláturshús KVH*
n Loðnuvinnslan hf.**
n Ísfélag Vestmannaeyja hf.
(Skelfiskur)***
n Vilhelm Þorsteinsson EA 11
(Samherji)***
n FISK Seafood hf.** *
n Búlandstindur ehf.***
Leyfið afturkallað:
* 17. febrúar 2015
** 26. ágúst 2015
*** 24. desember 2015. Tekur
gildi 7. janúar 2016.
Viðskipta-
bannið erfiðast
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráð-
herra sagðist í viðtali við DV í desember
hafa fundið fyrir miklum þrýstingi um að
falla frá stuðningi við viðskiptaþvinganir
Vesturlanda gegn Rússum. Benti Gunnar
þar á að Rússar hafi í Úkraínudeilunni
brotið alþjóðalög.
„Lög sem Íslendingar leggja mikið
upp úr og þess vegna mótast þessi
afstaða,“ útskýrði Gunnar Bragi.
Aðspurður svaraði ráðherrann að
málið væri umdeilt innan hans flokks,
Framsóknarflokksins, en að hann hefði
sterkt bakland innan flokksins.
„Ég hef til dæmis fundi það í kjör-
dæmi mínu, þar er stuðningurinn mikill.
Það er mikla hvatningu að fá þaðan. En
það eru vissulega aðilar innan flokksins
sem hafa ekki verið hrifnir af þessu. Þeir
hafa sín rök, þó að ég sé ekki sammála
þeim,“ sagði Gunnar.
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Tvöfalt bann Fiskvinnslur í eigu níu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja mega ekki selja vörur til Tollabandalags Rússlands, Hvíta-Rússlands og
Kasakstans. Þar að auki má ekkert fyrirtæki hér á landi selja fisk til Rússlands vegna innflutningsbannsins sem tók gildi í ágúst síðastliðnum.
Sendinefndin Þrír fulltrúar Matvæla-
stofnunar Rússlands heimsóttu í september
meðal annars fiskvinnslu Ísfélags Vest-
mannaeyja á Þórshöfn á Langanesi.
Mynd MaTvæLaSTofnun
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609