Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Page 14
Vikublað 5.–7. janúar 2016
Vesturhrauni 5
Garðabæ
S: 530-2000
Bíldshöfða 16
Reykjavík
S: 530-2002
Tryggvabraut 24
Akureyri
S: 461-4800
Bætiefni
www.wurth.is - www.facebook.com/wurthisland
BENSÍN BÆTIEFNI
Fyrir allar bensínvélar
með eða án hvarfakúts
· Hreinsar bensíndælu, leiðslur
· Kemur í veg fyrir botnfall í
soggrein, túðum, ventlum og
ventlasætum.
· Minnkar eldsneytisnotkun
· Lengir líftíma hvarfakúts og
súrefnisskynjara.
· Tryggir nákvæma stjórnun
eldsneytisloka.
· Kemur í veg fyrir tæringu í elds-
·
· Bætir útblásturinn og minnkar
DÍSEL BÆTIEFNI
Fyrir allar díselvélar
þ.m.t. common rail
og önnur olíuverk
·
· Bætir útblásturinn og
minnkar losun út í
· Kemur í veg fyrir botnfall
í túðum, ventlum og
ventlasætum.
· Minnkar eldsneytisnotkun.
· Tryggir nákvæma stjórnun
eldsneytisloka.
· Kemur í veg fyrir tæringu í
eldsneytisgeymi.
· Minnkar bank í mótor.
tæringar- og ryðvörn.
tæringar- og ryðvörn.
SÓTAGNASÍUHREINSIR
Hreinsiefni til að hreinsa kolefni
og sótagnir úr sótagnasíum.
· Losar um og arlægir kolefn -
isagnir úr sótagnasíu.
· Ekki þarf að taka kút úr við
hreinsun.
· Sparar peninga þar sem ekki
þarf að skipta um sótagnasíu.
(þetta fer eftir ástandi á
sótagnasíu)
·
· Málm- og öskulaus formúla
· Gufar upp án þess að skilja
eftir sig óhreinindi
fyrir allar vélar
14 Fréttir Erlent
H
onum brá nokkuð, farþega
um borð í flugvél á leið til
Delí þegar konan sem sat
við hlið hans benti honum
á að hann væri, ólöglega,
að sýna öllum farþegum vélarinn-
ar Bollywood-kvikmynd sem væri
nýkominn í kvikmyndahús. Mað-
urinn taldi sig eflaust vera að gera
góðverk, með því að sýna samferða-
fólki sínu sjóræningjaeintak af kvik-
myndinni Dilwale í gegnum símann
sinn. Hann óraði þó ekki fyrir því að
sjálf aðalleikkona myndarinnar, Kriti
Sanon, sæti við hliðina á honum.
Hún var eðli málsins samkvæmt
frekar ósátt og lét hann heyra það.
Kvikmyndin Dilwale er tiltölulega
nýkomin í kvikmyndahús, en hún
þykir ein glæsilegasta Bollywood-
mynd síðustu ára. Maðurinn sem
sýndi hana í flugvélinni notaði til
þess iPhone-símann sinn og lét
varpa myndinni á vegg vélarinnar,
en hann sat við neyðarútgang, eins
og sést á meðfylgjandi mynd, við hlið
Kriti Sanon og móður hennar. Mað-
urinn lét sér ekki segjast þrátt fyrir
ábendingar hennar og vildi frekar
sýna henni tækin sem hann notaði
til að varpa myndinni á skjáinn. Kriti
Sanon segir þetta vera sorglegt og
vanvirðingu gagnvart henni og sam-
starfsfólki hennar.
Þegar ljóst var að maðurinn
ætlaði ekki að hætta birti leikkonan
myndir af honum á Twitter og tísti
um aðfarir hans. „Maðurinn er að
horfa á sjóræningjaútgáfu af Dilwale
hérna við hliðina á mér í fluginu. Svo
pirruð,“ skrifaði hún. Síðar birti hún
fleiri myndir af manninum og út-
skýrði málið.
„Ég sagði honum vinsamlegast
að hann gæti séð myndina og notið
hennar betur í kvikmyndahúsi. En
hann vildi frekar sýna mér skjávar-
pann sinn,“ segir hún og biður fólk
um að stela ekki höfundaréttarvörðu
efni en fara frekar í bíó eða kaupa
myndina með lögreglum hætti. Að-
dáendur hennar hafa tekið misvel
í myndbirtinguna, en flestir styðja
hana og hvetja fólk til þess að styðja
frekar við listamennina og aðstand-
endur myndarinnar með því að
nálgast hana löglega. Aðrir segja að
það sé dýrt að fara í kvikmyndahús
og horfa, það séu ekki allir sem geti
látið það eftir sér. Þess má geta að
Kriti Sanon var hér á landi við tökur
á myndinni fyrr á árinu ásamt sam-
leikurum sínum. n
Stal myndinni við
hlið leikkonunnar
Farþegi gripinn glóðvolgur við að horfa á sjóræningjaeintak af Dilwale
Skjávarpi Maðurinn vildi frekar sýna Kriti
Sanon skjávarpann en hætta að horfa.
Lét ekki segjast Maðurinn sat við hlið Kriti
Sanon og móður hennar. Mynd Kriti Sanon / twitter
dilwale Myndarinnar hefur verið beðið
með mikilli eftirvæntingu.
Kriti Sanon Kriti Sanon var ekki sátt við
manninn og taldi hann vanvirða vinnu þeirra
sem komu að gerð myndarinnar Mynd ePa
Mynd Kriti Sanon / twitter
„Ég sagði honum
vinsamlegast að
hann gæti séð myndina
og notið hennar betur í
kvikmyndahúsi.