Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Qupperneq 21
Vikublað 5–7. janúar 2016 Kynningarblað - Borðaðu hollt og gott 3
Lífrænt hráefni – íslenskt hráefni
Í
s á ekki bara að vera hvítur sykur,
maískornsíróp, gervibragðefni,
fylliefni eða bindiefni. Við notum
aðeins hráefni beint úr náttúr-
unni og þannig verður ísinn ekki
bara miklu hollari heldur miklu
bragðbetri,“ segir Pranava Rúnar
Gígja, eigandi ísbúðarinnar Joylato
(Hamingjuís!) sem var opnuð föstu-
daginn 13. nóvember, að Lauf-
brekku 30 (Dalbrekkumegin) í
Kópavogi, í sama húsi og heilsu-
verslunin Mamma veit best.
„Við notum ekki tilbúin ís-
blöndunarefni eða önnur efni sem
eru búin til í verksmiðjum held-
ur notum við mat – alvöru vanillu-
baunir, alvöru lífrænan hrásykur, líf-
rænan kókossykur, lífrænt hlynsíróp
og lífænar döðlur – við erum að nota
mat, lífrænan mat eins og móðir
náttúra gerir best! Út úr þessu kem-
ur ís sem er einstaklega bragðgóður
en líka þannig að manni líður virki-
lega vel eftir að hafa borðað hann,“
segir Pranava
Allt hráefni Joylato er unnið á
staðnum en Joylato gerir ís úr eigin
kókos-, möndlu- og kasjúmjólk og
allt sem er í boði er glútenlaust og
lífrænt nema kúamjólkin, en hún
kemur frá Rjómabúinu Erpsstöðum
í Búðardal og er ófitusprengd, og
jarðarberin, sem eru íslensk, eru frá
Sólbyrgi og ræktuð án eiturefna; og
loks aðalbláberin sem eru tínd í ís-
lenskri náttúru.
Ískexið sem stungið er í
ísskúlurnar er einnig lífrænt og
glútenlaust og búið til á staðnum.
Ísinn er allur unninn frá grunni
og aldrei er á boðstólum ís sem búið
er að geyma í frysti.
Joylato býður líka upp á lífrænt
kaffi, heitt súkkulaði, indverskt chai,
affogato og lífrænt hrásúkkulaði.
Það er sjaldgæft ef ekki eins-
dæmi að heyra um ís sem er jafn-
framt heilsufæði og mörgum kann
að detta í hug að slíkur ís sé ekki
mjög sætur á bragðið eða ljúffengur.
En það er öðru nær – flestir sem
hafa smakkað Joylato finnst hann
einstaklega bragðgóður en jafn-
framt fyllir hann fólk vellíðan sem
fylgir því löngu eftir að ísinn er far-
inn sína leið í gengum meltinguna.
Viðskiptavinir Joylato segja yf-
irleitt að þetta sé langbesti ís sem
þeir hafa nokkurn tíma bragðað
og um ánægju þeirra vitna margar
lofs fullar umsagnir viðskiptavina á
Facebook-síðu Joylato:
Besti ís sem ég hef fengið! Mæli með
ísbíltúr í Kópavog.
Hef aldrei áður skrifað review um
stað, en ég er bara ástfanginn af þess-
um … mæli sérstaklega með kókos-
base ísnum með saltaðri karmellu.
Mjög gott framtak og frábær ís, góð-
ur valkostur við gamla sykurjukkið.
Ótrúlega góður ís og besta kaffið á
höfuðborgarsvæðinu.
Klárlega besti ísinn í bænum!
Ice cream, ice cream, ice cream, ice
cream! You are my heart’s sweetness-
fulfilled dream. You halve my mind’s
melancholy; You make my life once
more jolly.
- Sri Chinmoy
Umsagnirnar hér að ofan eru aðeins
lítið brot af lofinu sem viðskiptavin-
ir ísbúðarinnar skrifa inn á Face-
book-síðu hennar. Eins og fyrr segir
er Joylato til húsa að Laufbrekku 30,
Kópavogi, Dalbrekkumegin. Opið er
til 21 öll kvöld nema miðvikudaga,
en þá er lokað. Búðin er opnuð á há-
degi virka daga en kl.13 um helgar.
Joylato: Eitthvað Fyrir Alla!
M:Kúamjólk
A:Möndlumjólk
H:Hnetumjólk
Hamingjuís sem bragðast betur
og lætur manni líða miklu betur
Joylato:
M
y
n
d
ir
Þ
o
r
M
a
r
V
ig
n
ir
g
u
n
n
a
r
ss
o
n