Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Síða 22
Vikublað 5–7. janúar 20164 Borðaðu hollt og gott - Kynningarblað
Kryddlegin hjörtu fyrir alla
V
eitingastaðurinn Krydd-
legin hjörtu er staður þar
sem allir gestir finna eitt-
hvað við sitt hæfi, hvort
sem um ræðir vegan,
grænmetisætur eða þá sem borða
allt, en sem dæmi má nefna að
staðurinn býður meðal annars upp
á mexíkanskan matseðil. Staðurinn
er einna vinsælastur fyrir súpu og
salatbarinn en á boðstólum eru
kraftmiklar súpur og lífræn salöt
sem starfsfólkið býr til frá grunni.
Dagbjört Norðfjörð, annar eigenda
staðarins, segir þau nota ekkert
hveiti, ger eða sykur við matar-
gerðina og því sé allt sem í boði er
mjög heilsusamlegt. „Til að þykkja
súpurnar til dæmis notum við
kasjúhnetur og glúteinfrítt maís-
mjöl,“ segir Dagbjört. Í framhaldinu
segir hún: „Brúnan sykur notum
við aðeins í kaffi og karmellu ásamt
frönsku súkkulaðikökuna og döð-
lukökuna sem við bjóðum upp á.“
Mjög heilsusamlegur mat
seðill: allt unnið frá grunni
Dagbjört segir: „Við hugsum mikið
um heilsuna hér og staðurinn býð-
ur upp á mjög heilsusamlegan mat.
Við erum með mat fyrir alla. Hér
getur hópur af fólki komið og allir
geta borðað saman. Við erum með
mexíkanskan matseðil líka og því er
úr mörgu að velja.“
Allt sem staðurinn býður upp
á er unnið frá grunni og einblína
eigendur staðarins á að nota al-
íslenskt hráefni og styðja íslenska
framleiðslu eins og mögulegt er.
„Sem dæmi má nefna vorum við að
gera samstarfssamning við Kaffitár
og bjóðum því upp á kaffi frá þeim,“
segir Dagbjört.
„Það er gaman að segja frá því
að við búum líka til okkar eigin
pestó fyrir salatbarinn sem inni-
heldur engar hnetur. Þau hráefni
sem við notum í pestóið eru með-
al annars graskers- og sólblóma-
fræ ásamt basilolíu sem við blönd-
um saman við íslenskt bankabygg.
Þetta hefur verið gríðarlega vin-
sælt hjá okkur. Auk þess handger-
um við brauðið okkar frá grunni og
inniheldur það meðal annars gróft
og fínt speltmjöl og íslenskt banka-
bygg frá fyrir tækinu Móður jörð.“
Réttir dagsins og
villisveppasúpan vinsælust
„Vinsælustu súpurnar í húsinu er
villisveppasúpan og kjúklinga-
salsasúpan. Þær svíkja engan,“
segir Dagbjört. Réttir dagsins eru
einnig gríðarlega vinsælir og seg-
ir hún að þeir sé í boði alla daga og
eru nú á kynningaverði á 1.890 kr.
en jafnframt er hægt að fá súpu og
salat á sama verði alla virka daga í
hádeginu til kl. 14.00. Réttir dagsins
eru þrír: kjúklinga murgh rezzala,
kjúklinga tikka masala og lamb
rogan josh með indverskum grjón-
um og popadums.
Þekktust fyrir hvítlaukssmjörið
„Við erum þekktust fyrir hvítlauks-
smjörið og hummusinn okkar,“
segir Dagbjört. „Óléttar konur elska
þetta sérstaklega,“ segir hún. „Þetta
er eitthvað sem við mæðgurn-
ar erum búnar að þróa í 25 ár og
náðum að fullkomna þegar við
opnuðum Kryddlegin hjörtu.“
Kryddlegin hjörtu er staðsett á
Hverfisgötu 33 og er í eigu Írisar
Heru Norðfjörð og dóttur henn-
ar, Dagbjartar Norðfjörð. Staðurinn
mun fagna átta ára afmæli á þessu
ári. Opnunartíminn er sem hér segir:
Mán. til mið. kl. 11.30 til 21.00,
fim. kl. 11.30 til 22.00, fös. og lau.
kl. 11.30 til 23.00, sun. kl. 11.30 til
22.00 n
Mynd ÞoRMaR VigniR gunnaRsson