Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Blaðsíða 30
Vikublað 5.–7. janúar 201626 Menning
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu
Ég lifði af
H
valveiðar virðast óðum vera
að komast í tísku. Tvær af
bestu bókum síðasta árs,
Hundadagar og Spámenn
irnir í Botnleysufirði, fjalla öðrum
þræði um hvalveiðimenn. Og nú eru
þeir komnir í bíó.
Það hlýtur að teljast ansi djarft
af hinum ástsæla Ron Howard að
gera bíómynd um eina hötuðustu
stétt samtímans, en svo vill til að eitt
meginverk bandarískra bókmennta,
Moby Dick, fjallar einmitt um þá
stétt og ritun hennar kemur við sögu
hér. Sagan gerist fyrir 200 árum þegar
hvorki Anonymous né Paul Watson
voru að fetta fingur út í starfsemina.
Myndin treystir á að við skiljum rétt
Þegar nauðsynlegt þótti að skjóta þá
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
In the Heart
of the Sea
IMDb 7,1 RottenTomatoes 42% Metacritic 47
Leikstjórn: Ron Howard
Aðalhlutverk: Chris Hemsworth, Benjamin
Walker og Cillian Murphy
Handrit: Chris Leavitt
122 mínútur
Hvalveiðihetjan Chris Hemsworth létti sig
umtalsvert fyrir hlutverk sitt í Heart of the sea.
Úr listheiminum
Bangsímon
heillar Breta
Bækurnar um Bangsímon, eftir A. A. Milne, eru uppáhaldsbækur bresku þjóðar
innar, og þá sérstaklega Húsið á
Bangsastræti. Þetta er niður
staða könnunar sem unnin var
af Nicolette Jones, barnabókarit
stjóra Sunday Times, og kynnt
var nýlega í sérstökum sjón
varpsþætti á Channel 4. Barna
bókahöfundurinn David Wall
iams var kynnir og fjallaði um
þær 50 barnabækur sem bresku
þjóðinni þykir vænst um. Í öðru
sæti voru Narníubækur C. S.
Lewis og var Ljónið, nornin
og skápurinn sögð best í þeirri
seríu. Harry Potterbækurn
ar lentu í þriðja sæti og af þeim
þykir Harry Potter og visku
steinninn bera af.
Minimalisti
deyr
Þann 27. desember síð
astliðinn
lést banda
ríski mynd
listarmaðurinn
og höggmyndagerðarmaður
inn Ellsworth Kelly, 92 ára að
aldri. Hann vakti fyrst athygli
á sjötta áratugnum fyrir björt,
marglaga og oft einlita málverk.
Hann vann oft með striga sem
var óvenjulegur í laginu og
vann áfram með hugmyndir um
óvenjuleg form og rýmisupplif
un í skúlptúrum sínum. Hann
hafði áhrif á næstu kynslóðir
naumhyggjumálara, abstrakt ex
pressjónista og poplistamanna.
Vitrun varð að listahátíð
n Mireya Samper heldur alþjóðlegu listahátíðina Ferskir vindar í Garði á Reykjanesi
E
rlendu listamennirnir eru
flestir að koma til Íslands í
fyrsta sinn. Þeir nýta oft upp
lifun sína af landi og þjóð í
verk sín. Það er áhugavert
að sjá túlkun þessara erlendu lista
manna á okkar menningararfi,“ segir
myndlistarkonan Mireya Samper,
skipuleggjandi alþjóðlegu listahá
tíðarinnar Ferskra vinda, sem verður
formlega opnuð þann 9. janúar. Há
tíðin er nú haldin í fjórða sinn í Garði
á Reykjanesi, en hún fór fyrst fram
árið 2010.
Listamennirnir sem taka þátt eru
50 talsins, úr öllum listgreinum og af
um það bil 20 þjóðernum. Þeim er
boðið að koma til Íslands, í Garð, til
að kynnast landi og þjóð. „Ég borga
þeim ekki fyrir að koma,“ segir Mireya
og bætir við að listamennirnir greiði
sjálfir flugmiðann til landsins en séu
svo í fríu uppihaldi hjá skipuleggj
endum. Ásókn listamanna í að fá að
taka þátt í hátíðinni er mikil þrátt fyr
ir að þeir þurfi að greiða fargjald úr
eigin vasa. „Það eru þrisvar sinnum
fleiri sem sækjast eftir því að taka
þátt í hátíðinni.“
Efla menningu á Suðurnesjum
Listafólkið dvelur í fimm vikur í
Garði og undirbýr hátíðina, frá 15.
desember til 17. janúar. Á þeim tíma
eru haldnar kynningar á listafólkinu
og verkum þeirra. Sýningunni er
ætlað að efla menningu og listir á
Suðurnesjum og Íslandi og laða að
ferðamenn, jafnt erlenda sem inn
lenda, sem koma utan háanna ferða
mannatímans.
„Þetta er áhugavert fyrir alla
listunnendur og öðruvísi en fólk á að
venjast í galleríum. Hátíðin er ókeyp
is og vinnustofur listamannanna
opnar. Á kvöldin eru listamennirn
ir kynntir, haldnar pallborðsum
ræður, tónleikar og gjörningar. Eina
sem kostar höfuðborgarbúa að berja
listina augum eru nokkrir lítrar á
tankinn,“ segir Mireya. Hún bætir við
að áhugavert sé að fylgjast með lista
mönnum frá hinum ýmsu löndum
nýta upplifun sína á landi og þjóð
í verk sín. „Fyrir síðustu lista hátíð
las erlend listakona Eddukvæðin
spjaldanna á milli og málaði síðan
upplifun sína. Þannig fáum við jafn
vel nýja sýn á verk sem við teljum
okkur þekkja í þaula.“
Ásmundur stakk upp á Garði
Mireya bendir á að eftir að hátíðinni
lýkur standi eftir ótal útilistaverk sem
setji svip sinn á bæinn. „Með hátíð
inni er verið að tengja Ísland og Garð
við menningu og listafólk víða að úr
heiminum og koma á tengslum ís
lenskra listamanna við alþjóðlegt
listafólk til að efla íslenska list.“
Hvernig hófst hátíðin?
„Í mörg ár var ég með þá hug
mynd að halda alþjóðlega lista hátíð
á Íslandi. Um tíma taldi ég að það
væri ekki hægt hér á landi þar sem
það væri of kostnaðarsamt,“ segir
Mireya sem fékk hugljómun í Japan
fyrir sex árum. „Ég hugsaði hvar
væri hægt að halda hátíð af þessari
stærðargráðu. Ég var að sofna þegar
ég fékk vitrun og hrópaði upp yfir
mig: „Reykjanesið. Þar verður þessi
hátíð haldin“.“
Í fyrstu taldi hún að Keflavík
myndi henta best. Ásmundur Frið
riksson, alþingismaður og fyrrver
andi bæjarstjóri í Garði, hafði spurn
ir af áformum Mireyu og stakk upp á
að hún kæmi með sýninguna í hans
heimabæ. Þar með byrjaði boltinn
að rúlla.
Þemað er sjávarföll
Mireya hugsar um rýmið og heildar
útkomuna þegar hún velur lista
mennina til að halda ákveðnu
jafnvægi. Þá gefur hún ungum og
upprennandi listamönnum tæki
færi.
„Ég reyni að finna
fólk sem vinnur
með hjartanu en fylgir
ekki einungis tísku-
straumum.
Kristjón Kormákur
kristjon@dv.is
Ferskir vindar Mireya Samper
heldur alþjóðlegu listahá-
tíðina Ferskir vindar í Garði á
Reykjanesi í fjórða skipti um
helgina. MynD SIGTRyGGuR ARI
Alþjóðleg hátíð Með
hátíðinni er verið að tengja
Ísland og Garð við menn-
ingu og listafólk víða að úr
heiminum. MynD SIGTRyGGuR ARI