Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Side 36
Vikublað 5.–7. janúar 201632 Fólk
Kr
in
gl
an
Kr
in
gl
um
ýr
ar
br
au
t
Miklabraut
Miklabraut
Við
erum
hér!
Tilb
oð
17 10 bitar fyrir 4-5
5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa.
Stór af frönskum og 2l. Pepsi.
F
átt jafnast á við gleðina þegar
börn eru væntanleg í heim-
inn. Þegar foreldrarnir eru
frægar stjörnur í Hollywood
nær spennan hámarki og
slúðurmiðlarnir fylgjast með hverju
skrefi verðandi foreldra. Hér er listi
yfir stjörnur sem vitað er að eigi von
á erfingja á árinu 2016. n
Stjörnubörn 2016
Hver á von á börnum númer fimm og sex?
Mikilvægasta
hlutverkið Anne Hathaway er að
undirbúa sig fyrir mikilvægasta hlutverk
lífs síns en leikkonan verður mamma á
árinu. Leikkonan er gift Adam Shulman en
þau gengu í það heilaga 2012.
Fimmta og sjötta barnið Ronnie Wood er að verða pabbi í
fimmta og sjötta skiptið. Tónlistarmaðurinn og eiginkona hans, Sally, eiga von á tvíburum í
júní. Ronnie á eitt barn með fyrstu konunni sinni, Krissy Findlay og þrjú með Jo Wood.
Fjórða barnið James Van
Der Beek, sem er frægastur fyrir hlutverk sitt
í Dawson's Creek, á von á sínu fjórða barni
með konu sinni, Kimberly. Hjónin giftu sig árið
2010 og eiga fyrir Oliviu, Annabel og Joshua.
„Christian Grey“
pabbi Jamie Dornan, sem lék Christian
Grey, er að verða pabbi í annað skiptið.
Leikarinn og eiginkona hans, Amelia Warner,
eiga dótturina Dulcie sem fæddist árið 2013.
Byrne mamma Leikkon-
an Rose Byrne er að verða mamma. Byrne,
sem lék meðal annars í Bridesmaids, og
Bobby Cannavale, hafa verið saman í þrjú ár
en eru ógift.
Loksins ófrísk Fyrirsætan
Chrissy Teigen fær loks ósk sína uppfyllta
en hún og John Legend eiga von á sínu
fyrsta barni. Parið hafði háð baráttu við
ófrjósemi og er því himinlifandi með vænt-
anlegan erfingja.
Ástfangin og ófrísk Ben McKenzie og Morena Baccarin urðu
ástfangin þegar þau léku saman í Gotham og nú er ljóst að Morena á von á barni. Um
fyrsta barn OZ-stjörnunnar er að ræða en Morena á fyrir tveggja ára son með Julius,
fyrrverandi eiginmanni sínum.
Tilkynntu fréttina á
Twitter Sjónvarpskonan Cat Deeley
og Patrick Kielty tilkynntu í september að
þau ættu von á sínu fyrsta barni árið 2016 en
parið notaði Twitter til að tilkynna fréttirnar.
Fyrsti 1D-pabbinn
Svo virðist sem Louis Tomlinson verði sá
fyrsti úr One Direction til að verða faðir.
Kærasta söngvarans, stílistinn Briana
Jungwirth, er ófrísk. Sumir aðdáendur Louis
brugðust reiðir við fréttunum en hafa nú
samglaðst söngvaranum sem er himin-
lifandi með væntanlegt föðurhlutverk.
Krúttleg tilkynning
Söngvarinn Michael Bublé og eiginkona
hans, Luisana Lopilato, tilkynntu um
væntan lega komu barns númer tvö á
afar krúttlegan máta. Hjónakornin deildu
myndbandi af eins árs syni þeirra þar sem
hann bendir á maga mömmu sinnar og segir
„barnið“.
Sagði tíðindin á
tónleikum Kelly Clarkson tilkynnti
tónleikagestum að hún væri ófrísk að sínu
öðru barni. Fyrri meðgangan fór afar illa
í söngkonuna sem missti einnig röddina
tímabundið eftir fæðinguna.