Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Side 38
Vikublað 5.–7. janúar 201634 Fólk Þotuliðið mætti í Þjóðleikhúsið A ð venju var mikið lagt í jóla­ sýningu Þjóðleikhússins en í ár var hið magnaða verk Sporvagninn Girnd eftir Tennessee Williams frumsýnt á annan dag jóla. Leik­ stjóri verksins er Stefán Baldurs­ son, fyrrverandi þjóðleikhússtjóri. Þeir sem eitthvert vit hafa á menn­ ingu og listum létu sig að sjálfsögðu ekki vanta á sýninguna, enda jóla­ sýningin hápunktur leikársins. n Leikverkið Sporvagninn Girnd var frumsýnt á annan í jólum Fjölskyldan Baltasar Kormákur og Lilja Pálmadóttir mættu með börnin sín í leikhúsið, en sonur Baltasars fer með eitt hlutverka í sýningunni. Fallegt fólk Edda Björg Eyjólfsdóttir, Stefán Magnússon, Árni Páll Árnason, Sigrún Björg Eyj- ólfsdóttir, Ástrós Gunnarsdóttir og Þorfinnur Ómarsson voru full eftirvæntingar fyrir sýninguna. Slá í gegn Fjóla Friðriksdóttir og Haraldur Jóhannsson, eigendur Bryggjunnar - brugg- húss, létu sig að sjálfsögðu ekki vanta. Bryggjan er að verða einn heitasti staðurinn í bænum, og það þykir enginn maður með mönnum nema hafa rekið nefið þar inn. Töff Leikarinn Atli Rafn Sigurðarson og kona hans Tinna Dögg Kjartansdóttir eru frekar töff týpur. Skál Fjárfestirinn Björgólfur Thor Björgólfs- son og eiginkona hans, Kristín Ólafsdóttir, voru glöð í bragði og lyftu glösum. Leikhúshjónin Ari Matthíasson þjóðleik- hússtjóri og Gígja Tryggvadóttir, kona hans, voru að sjálfsögðu létt í lund fyrir sýninguna. Leikarapar Björn Thors og Unnur Ösp Stefánsdóttir láta sig sjaldan vanta í leik- húsið, en faðir Unnar, Stefán Baldursson, leikstýrir einmitt sýningunni Fólkið á bak við tjöldin Starfsfólk Þjóðleikhússins tekur vel á móti leikhús- gestum. Það þarf að afhenda leikskrár, selja sælgæti, vísa til sætis og ýmislegt fleira svo upplifunin verði sem ánægjulegust. Glæsileg Hjónin Kristjana og Baltasar Samper voru stórglæsileg að vanda. Sonar- sonur þeirra, Baltasar Breki, fer með eitt hlutverka í sýningunni. Glæsimenni Albert Eiríksson og Bergþór Pálsson voru flottir í tauinu og og brostu sínu blíðasta. Feðgin Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mætti ásamt dóttur sinni, Guðrúnu Tinnu. Þjóðleikhússtjórinn tók á móti þeim. Kát Brynhildur Einarsdóttir, kona Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra, var heldur betur kát þegar ljósmyndari smellti af.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.