Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1993, Blaðsíða 3

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1993, Blaðsíða 3
LÍKARA Þann 13. mars sl. hélt Kvennalistinn 10 ára afmali sitt hátíðlegt á Hótel Borg. Raðukona kvöldsins var Magdalena Schram sem tók þátt í Kvennaframboðinu í Reykjavík allt frá fyrstu dögum þess í nóvember 1981. Hún gekk síðan til liðs við Kvennalistann og lagði þar gjörva hönd á flest verk allt til dauðadags þann 9. júní sl. Það sem hér fer á eftir eru tveir kaflar úr rœðunni sem Magdalena Schram flutti kvennalistakonum og öðrum samherjum á Hótel Borg. g var í veislu í vetur þar sem saman kom fólk á öllum aldri og þar var þó nokkur fjöldi ungra stúlkna, ætli þær hafi ekki verið svona að nálgast tvítugsaldurinn. Þær voru flestar dágóðar eftirlíkingar af Madonnu eða einhverju í þá áttina, á hrikalega háum hælum, hrikalega stuttum kjólum með hrikalega flegin hálsmál. Líklega voru þær gangandi dæmi um það sem sönnum femínistum á að mislíka mjög . . . ég hefði átt að hugsa: Guð minn góður, það er eins og þær séu allar á tilboðsverði, skelfing er að sjá hvernig þær gangast upp í kynveruhlutverkinu og þið vitið. En ég gerði það ekki. Ég held ég hafi öfundað þær. Ekki fyrir það að vera svona ungar og með framtíðina alla fyrir framan sig, heldur fyrir það hvernig þær umgengust sjálfar sig. Já, þær voru í kynhlutverkinu svo um munaði — og nú veit ég ekki hvort hægt er að orða þetta svona en þær voru það á sínum eigin forsendum. Þær voru ekki að bjóða upp á neitt nema kannski: Hér kem ég, gættu þín! Hvers vegna fór ég að segja frá þessu? Jú, vegna þessarar tilhneigingar kvenna til að segja „fyrirgefðu“. Þessar stelpur hefðu ekki farið í köku ef einhver hefði sagt við þær: Mikið rosalega eruð þið æðislegar. Þær hefði bara sagt: Já, finnst þéi það ekki, og haldið áfram að dansa - hver við aðra ef því var að skipta. Það, útaf fyrir sig, var óhugsandi í eina tíð. Ég held ekki að þessi sjálfstreystandi framkoma stelpnanna sé eitthvað sem við getum afskrifað sem ungæðishátt. Ég held það hafi átt sér stað raunveruleg breyting síðustu 10-15 árin. Þessar stelpur taka sem gefinn hlut réttindi sín án þess að vita að formæður þeirra gengu af sér skóna til að öðlast þau. Þær hafa alist upp við allt annars konar kvenímyndir en áður þekktust og það hvarflar ekki annað að þeim en að þeirra sé ríkið. Þessar stelpur voru innan við tíu ára þegar Kvennalistinn var stofnaður, þær líta eflaust á hann sem sjálf- sagðan hluta af kerfinu og e.t.v. heyri kvennabarátta sögunni til. Þessar stelpur eiga eftir að reka sig á veggi en þeir verða lægri en þeir sem við stóðum frammi fyrir, þeirra slóð verður greiðfærari en okkar. Konur hafa verið að troða þessa slóð í meira en hundrað ár og hún fer að líkjast meira götu en troðningi. Þessar stelpur eiga eftir að bregðast enn harkalegar við en við gerðum þegar þær uppgötva að réttindin eru ekki sjálfgefin heldur fjöregg sem alltaf þarf að standa vörð um. Þær munu verða enn reiðari en við nokkru sinni vorum. Vegna þess að þær eiga ekki von á öðru en að geta haldið áfram að finnast þær æðislegar og segja bara takk fyrir þegar þeim er sagt það. Þetta er breyting og ég hika ekki við að fullyrða að hún er okkur að þakka. Okkur konum sem höfum á einn eða annan hátt risið upp, mótmælt því hlutskipti sem konum er ætlað, og gert kröfur. Við skulum ekki vera ragar við að þekkja okkar eigin hlut í þeim breytingum sem hafa átt sér stað undanfarin ár. Oft var þörf, en nú er nauðsyn að láta af lítillætinu og fara að setja sig á háan hest í staðinn. Það er nauðsynlegt núna þegar á því er hamrað slitendalaust að kvennabarátta hafi gengið sér til húðar, að hún hafi gert meira ógagn en gagn, að hún sé leiðinleg og púkó. Núna þegar gömlu kvenhutverkunum er hampað hærra en nokkru sinni, móðurhlutverkinu, eiginkonunni, kynverunni, augnayndinu. Konum er att hverri gegn annarri hvenær sem færi gefst, gömlu klisjurnar sem við reyndum að kveða niður, að konum séu konum verstar, að köld séu kvennaráð. Til þeirra er gripið og þeim núið um nasir okkur með öllum tiltækum brögðum. Þetta eru merki bakslags, víst er það, en gætum okkar á því á láta umtalið um bakslagið draga úr okkur kjarkinn og fúllkomna þar með bakslagið. Og gleymum því ekki að það er okkar að spyrna við fótum. Einmitt á slíkum tímum, sem fyrir enga tilviljun eru samferða atvinnuleysi og kreppu, er okkur nauðsynlegt að líta yfir farinn veg, ekki til þess að hlæja að hrakfallasögunum heldur til að minna okkur á hvernig ástandið var þegar við lögðum af stað. Mátum daginn í dag við dagana áður en baráttan byrjaði. Hvemig var umhorfs þegar Rauðsokkarnir lögðu upp fyrir rúmum 20 árum, hvernig var ástandið þegar Kvennaframboð og Kvennalistinn voru stofnuð? Að okkur hafi tekist að breyta á við um fleira en innihald umræðunnar. Það á líka við um þátttakendur umræðunnar. Umræðuþættir í útvarpi og sjónvarpi eru núna óhugsandi án a.m.k. einnar konu og ef undantekning er þar á þykir gagnrýni eðlileg. Þannig var það ekki í eina tíð. Þó svo að íslenskir fjölmiðlar standi sig ekki nálægt því nógu vel hvað t.d. þetta varðar, hefúr samt orðið stórkostleg breyting. Konur eru miklu sýnilegri núna en fyrir 10 árum, sýnilegri held ég en óþolinmæði okkar vill viðurkenna. Auðvitað finnst manni oft að sumar konur nýti sér ekki aðstöðu sína til að leggja málefnum kvenna sérstakt lið. En þrátt fyrir það megum við ekki vanmeta hlut allra þessara kvenna sem hafa komið sér þangað sem hljóðnemarnir og myndavélarnar eru. Við verðum að vera trúar þeirri hugmynd, þeirri hugsjón okkar, að hver kona eigi að njóta þess frelsis að velja sér sína eigin leið. Því það eru ekki hlutverkin sjálf sem við höfnum, það er hitt, að hlutverkunum sé þröngvað upp á konur, sem við höfnum. Það eitt, að konur skuli yfirhöfúð vera að velja sér leiðir, er framför og fagnaðarefni. Við getum óskað okkur til hamingju með það. Með okkur á ég ekki við Kvennalistann einan og sér, þó svo ég þori reyndar að fúllyrða að án hans hefðu skref síðustu 10 ára verið smærri og veigaminni. Með okkur á ég við allar konur, alveg frá því Bríet hóf upp raust sína, konur sem létu sér ekki nægja að hvísla umkvörtunarefnunum og kröfunum og reiðinni í eyru vinkonunnar yfir morgunkaffinu, heldur báru kröfúrnar á torg og hrópuðu hátt og snjallt þangað til eitthvað varð undan að láta. Ég talaði áðan um þessa tilhneigingu kvenna til að gera lítið úr sjálfúm sér, þessa áráttu að taka meira mark á öðrum en sjálfúm sér. Mig grunar að þessi tilhneiging sé, ásamt með karlveldinu, stór þránd- ur í götunni til draumalandsins. Kannski er hún dyggasta þjónustustúlka karlveldisins. Ég sé ekki betur en það sé þegar konur fara að hlusta grannt eftir sinni innri rödd og hlýða henni öðrum fremur sem kvennabarátta rís hæst og afrekar mest. Það er þá sem nýjar hugmyndir kvikna og gera byltingar. Það er þá, held ég, sem markmiðin eru sýnilegust. Formæður okkar börðust fyrir og öðluðust grundval- larréttindi. Sú barátta og þeir sigrar urðu til vegna þess að þær hlustuðu betur eftir eigin vilja, lögðu sjálfar á sig mat og skelltu skollaeyrum við dómum heimsins, þ.e. karlanna. Það leið langur tími þangað til konur fúndu kjarkinn til að gera einmitt þetta aftur, hlusta á sinn innri mann, — næsta uppsveifla kom með Rauðsokkahreyfingunni. Það var ekki alveg eins löng bið eftir þar næstu uppsveiflu, sem fólst í sérframboðunum ”82 og ”83. Kynslóðabilið minnkar, það er skemmra á milli öldutoppanna, öldudalirnir eru grynnri og svona skal þetta halda áfram þangað til þessi barátta verður ein samfelld alda sem skilar okkur heilum á land. Um það er ég sannfærð og þess vegna hlakka ég til næstu tíu ára. Ef þau færa okkur jafnmikið og þessi sem nú eru að líða, þá þurfúm við engu að kvíða. Ljósm. Anna Fjóla Gísladóttir

x

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans
https://timarit.is/publication/1231

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.