Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1993, Qupperneq 29

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1993, Qupperneq 29
skelfilega einfalt. Þau eru rænd hugsun og dæmd til að tapa í lífsbaráttunni. Ingibjörg Hafstað hefur það eftir dönsk- um sálfræðingi að það sé grundvallarmis- skilningur að menn læri af mistökum, maður læri nefnilega af velgengni. Þess- ara barna bíður hins vegar lítil velgengni ef þau geta ekki tjáð sig, ef þau fá ekki verkefni við hæfi og fá aldrei að sýna hvað í þeim býr. Sum eru þó svo heppin að geta bjargað sér með því að sýna hvað í þeim býr á öðrum sviðum, s.s. í íþrótt- um eða tónlistarnámi. Við verðum að breyta í samræmi við veruleikann en lög og reglur samrýmast honum illa. Ingibjörg er þeirrar skoðunar að við séum að missa af tækifæri til að ala upp tvítyngda íslendinga. íslendinga sem síðar meir gætu auðveldað okkur hvers konar samskipti við aðrar þjóðir. Hún segir að nú sé mikilvægast að fá móður- mál barna, sem eiga erlenda foreldra, við- urkennt sem aðalmál þeirra í skóla og ís- lenska verði annað mál. Skyldur nýbúans og samfélagsins hljóta að vera gagn- kvæmar, þ.e. nýbúans að aðlagast því þjóðfélagi sem hann hefur sest að í og samfélagsins að auðvelda honum að ger- ast fúllgildur þjóðfélagsþegn. Fullgildum þjóðfélagsþegni á að veita menntun sem gerir honum kleift að skiptast á skoðun- um við samborgara sína. ^ 'K. • Kvindepartiet arbejder i din interesse. Tag aktiv del ^A>J* ^ TUöfJ^-TP~? BAfJ - **“■"** s*r c*~H uá i kampen! • T°' • The Women 's Alliance Cares About You — Give Us A Hand! • • Sinunkin asiasi ovat Naistenpuolueen sydámellá. Yndessá meillá on voimaa! • • La íiste des femmes défend tes intéréts. S^ "I ' - Rejoins-nous dans notre combat! • (J’HT<é/i<á'pA Trfé r- • Kvennalistinn berjistfyri vœlferð tíni - rætt okkum eina hjálgandi hond! • - J • Kvennalistip ilinnut íluaqutaasinnaasut ilumiorai, ikio- qatigiilluta ingerlatsigu • • E1 partit de la dona lluita pels teus drets. Lluita amb nosaltres! • • Sieviesu vélétdjbloks més cínámies par júsu tiesíbám - SA3aCtTbohtEce pievienojieties mums! • * Kvinnelisten tar dine behov paa alvor. Gi oss din stötte! # # *L ff $. tí pj Jt ! • Kvinneiisten tar dine behov paa alvor. (ori oss O partido feminista é também de vocés. Trabalbamos pelos interessos das mulheres. Necessitamos o vocco ajudo! • • Zenska-stranka vodi racuna o tvojoj koristi - pomozi nam u borbi! • jé Tj ! • Strana zien bojuje tiez za Teba a za Tvoje záujmy. Spolahame sa na Teba i na Tvoju úcast v nasom spolocnom boju • 6opeTc"*3a TBOM^HHTep^oB^ * La alianza de las mujeres lucha por tus derechos. jLucha con nos otros! • jy*my» HMtT*emnHl!,’6e * Kvinnopartiet tar dina frágorpá allvar. Gör gemensam sak med oss i kampen! • • Strana zen bojuje také za Tebe a Tré zájmy. Spoléháme se na Tvoji úcast u nasem spolecném boji! • a Partija Kobiet walczy w parlamentcie tez za /i i\uk i artja a le eraekeiacrt harcol - auj mel- ciebie. • Pomoz nam w bitwie za lepsze 'zycie kobiet! Eine bessere Gesellschaft ist unser Ziel, mach doch mit! ',u' ÍvJíQ'ví.m . 0 C/U zv? FULL- KOMIÐ EFTIRLIT MEÐ UTLENDINGUM ! Um efdrlit með útlendingum gilda sérstök Iög. Þau lúta að því að takmarka aðgang útlendinga að landinu og möguleika þeirra til bú- setu hér. í þeim er hvergi kveðið á um lágmarksþjónustu eða upplýsingaskyldu hins opinbera við fólk sem sest hér að. Skyldur ríkisins við það fólk sem tekur upp búsetu á íslandi eru því fremur litlar hvernig sem á málið er litið. Ingibjörg Þorsteinsdóttir lögfræðingur hef- ur orðað það þannig að í lögum og framkvæmd sé eins og okkur varði ekki um annað en það að útlendingar séu rétt skráðir inn og út úr landinu og passi upp á að endurnýja þau leyfi sem þeir hafa til dvalar og atvinnu. Skyldurnar eru allar þeirra. En ríkið hefur að sjálfsögðu ákveðnum skyldum að gegna gagnvart þeim sem fá dvalar- og atvinnuleyfi hér á landi og verða síðar margir hverjir íslenskir ríkisborgarar. Þess vegna þarf að marka stefnu í málefnum nýbúa og sjá til þess að allir sem hingað vilja flytjast sitji við sama borð þegar mál þeirra eru tekin fýrir. Þingkonur Kvennalistans hafa lagt fram tillögur til þingsályktunar um skipulega fræðslu og leiðsögn fyrir útlendinga sem taka sér búsetu á íslandi og einnig um ráðgjafar- og fræðsluþjónustu fyrir nýbúabörn. Þær hafa því miður ekki verið samþykktar. Á fslandi eru ekki til reglur um hvernig skuli fara með mál þeirra sem leita hælis hér á landi. Pierre Sané, forseti mannréttindasamtak- anna Amnesty Internadonal, var staddur hér á landi fyrr í haust og benti íslenskum stjórnvöldum m.a. á þá staðreynd að þeir sem er neitað um inngöngu í landið, geti hvergi skotið máli sínu áfram. Þessu fólki er oftast snúið við af starfsmönnum Útlendingaeftirlitsins í Leifsstöð. Vegna þess að engar almennar reglur gilda um veitingu hælis á íslandi er unnið úr hverju máli fyrir sig, vanalega í samvinnu Rauða kross íslands og Útlendingaeftirlits. Stundum kemst fólk inn um „bakdyrnar", eins og sagt er og er veitt dvalar- og atvinnuleyfi af mannúðarástæðum. Eiginlegir flóttamenn á íslandi eru aðeins þeir sem hingað hafa komið í hópum þegar stjórnvöld hafa orðið við beiðni Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna þar um. Slíkir hópar komu hingað síðast árin 1990 og 1991, 30 Víetnamar í hvort sinn. Af þessu má ljóst vera að flóttamenn eru aðeins lítill hluti þeirra útlendinga sem hér hafa búsetu. Að lokum þetta: íslendingar hafa löngum talið sig umburðarlynda og víðsýna þjóð en það er auðvelt að stæra sig af mannkostum sem sjaldan eða aldrei reynir á. Eftir því sem fólki af erlendum uppruna hefur fjölgað hér á landi hafa fordómar í þess garð því miður skotið upp kollinum. Nú fyrst reynir á hversu opin og fordómalaus við erum. Fordómarnir geta byrgt okkur sýn og þess vegna verðum við ávallt að vera á varð- bergi gagnvart þeim um leið og við fögnum því fólki sem með okkur vill búa. Nýbúar auðga og bæta mannlífið á Fróni. Þeir eru kær- komin viðbót í flóru íslensks samfélags. Þórunn Sveinbjarnardóttir, starfskona Kvennalistans 29

x

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans
https://timarit.is/publication/1231

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.