Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1993, Qupperneq 24

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1993, Qupperneq 24
JTyrir hrun Berlínarmúrsins unnu 95% vinnufærra austur-þýskra kvenna utan heim- ilis. Þær fengu inni fyrir börn sín á barna- heimilum og atvinnuleysi var nánast óþekkt fyrirbæri. Konur voru að margra mati hinar raunverulegu hetjur sósíalismans. Hver man t.d. ekki eftir áróðursmyndunum af dætrum sósíalismans sem stýrðu stórvirkum land- búnaðarvélum? Hetjuskapur austur-þýskra kvenna fólst fýrst og fremst í því að þær urðu að sameina lengri vinnu- dag og heimilishald við mun erfiðari kringum- stæður en þekkist á Vesturlöndum. Eftir sameiningu þýsku ríkjanna hefur fjórðungur austur- þýskra kvenna verið rekinn heim. Tveir af hverjum þremur atvinnulausum eru konur. „Konur biðu ósigur við sameininguna," segir Sibyll Klotz, þingkona og kvennafulltrúi Græningja og Samtaka 90 í Berlín. „Konur eru fýrstar látnar fjúka þegar starfsfólki er fækkað og hafa einnig glatað því félagslega öryggi sem þær bjuggu við. Áður fengu þær t.d. launað ársleyfi frá störfum eftir barns- burð og aldrei var skortur á dagvistun.“ Fyrir vikið hefur fæðingum fækkað um meira en helming frá því árið 1989 og altalað er að fjöldi kvenna láti gera á sér ófrjó- semisaðgerðir til að vera samkeppnisfærari á vinnumarkaðinum. „Opinber“ enaalok kynjamisréttis Þó er fjarri lagi að Austur-Þýskaland hafi verið einhver paradís fýrir konur. Þrátt fýrir sókn kvenna inn á mörg hefðbundin svið karla hélst kynskipting vinnumarkaðarins í stórum dráttum óbreytt „sem gerði það að verkum að konur fengu að jafnaði þriðjungi lægri laun en karlar“, eins og Sibyll segir. „Samkvæmt kenningum sósíalismans var mismunun kvenna útrýmt um leið og stétta- Sybill Klotz „Konw hiðu ésigur pið sameimngi Óumflýjanlee „afbrot“ í stað þess að búa betur að fjölskyldum grípa stjórnvöld til aðgerða sem misbjóða konum. Eitt skýrasta dæmið um það eru breytingarnar sem nýverið hafa verið gerðar á fóstureyðinga- rnni. I Austur- mismun. Pólitísk umræða gat ekki fjallað um kynjamisrétti þar sem kúgun kvenna lauk „opinberlega“ með afnámi kapítalism- ans. Þar sem ekki var litið á kynjasamskipti sem valdabaráttu náði boðskapur kvennahreyfingarinnar ekki í neinum mæli til Austur-Þýskalands.“ Fyrstu raunverulegu kvennasamtökin, sem Sibyll átti sjálf þátt í að koma á fót, voru því ekki stofnuð fýrr en eftir októberbyltinguna 1989. Aðgerðir þýskra stjórnvalda í atvinnu- málum koma frekar til með að viðhalda fjöldaatvinnuleysi kvenna, að mati Sibyll. „Konum er boðið upp á tímabundna atvinnubótavinnu eða endurmenntun sem gefur þeim litla eða enga möguleika til að fá störf og eru ekki til annars en að halda þeim frá vinnumarkaðinum um einhvern tíma, sem gerir þeim að lokum æ erfiðara um vik að ná þar fótfestu. Það er von stjórnvalda að hagkerfið nái sér á strik á þeim tíma og að vinnumarkaðurinn geti tekið á móti þessum konum þegar fram í sækir.“ Sibyll segir hins vegar að þetta sé borin von. Harðast bitnar þetta ástand á konum sem eru fertugar og eldri. Margar þeirra eiga ekki afturkvæmt inn á vinnumarkaðinn. „Austur- þýskar konur vilja vinna,“ segir Sibyll „en stöðugt verða háværari raddir einstakra stjórnmálamanna sem segja að konur eigi að beina kröftum sínum að móðurhlutverkinu á nýjan leik. Vegna lágrar fæðingatíðni er óttast að eftirlauna- og ellilífeyrisgreiðslur verði ekki tryggðar til fram- búðar þar sem eldra fólki fjölgar stöðugt." Ljósm. Birgit Guðjónsdóttir Þýskalandi var farið mjög frjálslega með þessi mál og gátu konur vandkvæðalaust fengið fóstureyðingu fýrstu þrjá mánuði meðgöngunnar. Vestur-þýska löggjöfin var einnig rúm og ieyfði fóstureyðingu ef aðstæður konunnar gáfu tilefni til. „Nú er hins vegar búið að herða löggjöfina þannig að fóstureyðing af félagslegum ástæðum er talin lögbrot. Konur eru að vísu ekki sóttar til saka fýrir þetta „afbrot“ en þeim er gert að greiða fýrir fóstureyðinguna úr eigin vasa. Einungis læknisfræðileg rök eða nauðgun gefa konu rétt á löglegri fóstureyðingu.“ Sibyll segir þessar breytingar hafa ýmsar hættur í för með sér. „Félitlar konur hafa ekki ráð á svona aðgerð og má búast við að fóstureyðingum framkvæmdum af fúskurum fyrir lægri greiðslu fari fjölgandi.“ Samkvæmt nýju lögunum er konum í fós- tureyðingarhugleiðingum skylt að fara í ráðgjöf og er tilgangurinn með henni að hvetja konur til að eiga barnið. „Slík ákvæði eru í hrópandi mótsögn við aðgerðaleysi stjórnvalda hvað raunverulega stöðu kvenna varðar, því ekkert er gert til að greiða fýrir konum sem ákveða að halda barninu.“ Kvennaverkfall Hatrömm barátta kvenna dugði ekki til að koma í veg fýrir breytingar á fóstureyðinga- löggjöfinni og má búast við því að þessi atlaga að konum dragi enn frekar úr baráttu- þreki austur-þýskra kvenna. Umbyltingar síðustu ára hafa kippt undan þeim fótunum og konur, eins og reyndar allir Austur- Þjóðverjar, þurfa tíma til að átta sig á nýjum aðstæðum. „Við þurfúm að læra að tjá þarfir okkar og krefjast réttar okkar,“ segir Sibyll Klotz að lokum. „Við ætlum að fara að dæmi íslenskra kvenna og hvetja konur í Þýskalan- di til verkfalls, á kvennadaginn 8. mars 1994, til þess að gefa ótvírætt til kynna að nú sé nóg komið.“ Sigríður Þorgeirsdóttir heimspekingur, Berlín Þar sem kvenfrelsið þýðir „aftur inn á heimilið“ Ég var nýlega stödd í St. Pétursborg og hitti pá m.a. Valentínu Grigorjevnu Ushakovu, forstöðukonu Rannsóknarstofu í kvennafraðum við Pétursborgarháskóla. Valentína er svonefnd „ofurkona“ í Rússlandi, því henni hefúr tekist að samræma starfsframa og fjölskyldulíf, er hamingjusamlega gift og á 2 böm og þau hjónin reyna að skipta umönnun bús og barna eftir bestu getu. Viðhorf margra til slíkrar verkaskiptingar eru þó mjög neikvæð og maðurinn hennar oft kallaður „gólftuska“ eða eitthvað þaðan af verra. „Aðgreining kynhlutverka er afar skýr að því leyti að húsverk, matseld og uppeldi eru talin kvennaverk, á meðan karlinn hvílir sig. En nær allar konur vinna líka utan heimilis og þá teljast byggingavinna og önnur erfiðisstörf ekkert síður vera kvennastörf." Af orðum Valentínu að dæma virðist stöðu rússneskra kvenna að mörgu leyti svipa til stöðu kynsystra þeirra í Austur-Þýskalandi, enda bakgrunn- urinn keimlíkur. „Frelsið sem konur öðluðust við byltinguna 1917 fólst í raun í því að mega fara út af heimilinu . . . til að vinna erfið og illa launuð störf,“ segir Valentína. „Kvenfrelsi táknar því í hugum margra kvenna það að losna undan ánauðinni að þurfa líka að vinna úti.“ Einhverjum þeirra hefúr kannski „orðið að ósk sinni“! 70% þeirra sem hafa misst vinnuna eftir fall Sovétríkjanna eru konur. Valetitína Grigorjevna Ushakova „Kvennavandinn“ var leystur árið 1929 að áliti Stalíns og þá voru öll kvennasamtök upprætt. „Þó voru alltaf til neðanjarðarsellur og meira að segja var til kvenfrelsisblað á þessum tíma — en yfir slíkri starfsemi vofði alltaf hættan á Síberíuvist.“ Það var því mikil breyting þegar Gorbatsjov lét þau boð út ganga að stofnuð skyldu kvennasovét innan Kommúnistaflokksins. Valentína var í forsvari fýrir þess háttar sellu í Púskinhéraði. „Við þurftum að byrja frá grunni og spyrja konur sjálfar um hagi þeirra og hugmyndir. Upp úr því gerðum við félagsfræðikönnun og hófum rannsóknir á sögu kvenna, sérstaklega þeim þáttum sem ekki mátti nefna áður, bæði hér heima og erlendis.“ Valentína fór víða og hélt fýrirlestra um stöðu kvenna og kvenfrelsi en talaði oftar en ekki einnig um kynlíf og getnaðarvarnir, enda „höfðu margar ekki hugmynd um hvers konar snerting við karlmann kveikti í þeim líf nýrrar mannveru." Aðspurð um framfarir á pólitíska sviðinu brosir Valentína mæðulega og segir pólitíska stöðu rússneskra kvenna engu betri en pólitíska stöðu Rússlands almennt. „Yið konur eigum langt í land á öllum sviðum en verðum enn sem komið er að vinna innan þess kerfis sem nú er til staðar, enn er ekki kominn tími til að efast um kerfið sjálft.“ Ásta Kristjana Sveinsdóttir heimspekinemi, Boston 24

x

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans
https://timarit.is/publication/1231

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.