Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1993, Qupperneq 20

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1993, Qupperneq 20
VEISTU... — að á þessu ári eru liðin 200 ár frá því baráttukonan Olympe de Gougcs var hálshöggvin í frönsku byltingunni. Hún skrifaði mann- réttindayfirlýsingu kvenna og hafði sig mjög í frammi. Þetta lík- aði „ógnarstjórninni“ ekki. — að á þessu ári eru liðin 170 ár frá fæðingu Þóru Melsteð. Hún stofnaði fyrsta kvennaskólann á ís- landi og var skólastýra um áratuga skeið. Kvennaskólinn ungaði út fjölda kvenréttindakvenna þótt það hafi ekki beinlínis verið mark- miðið. — að á þessu ári eru liðin 90 ár frá dauða Þorbjargar Sveinsdóttur ljósmóður. Hún var hápólitísk kona og sveið það mjög að hafa hvorki kosningarétt né kjörgengi. Hún hélt ræður á opinberum vettvangi og var í nokkur ár for- maður Hins íslenska kvenfélags. Það var stofnað 1894 og var fýrsta félagið sem hafði réttindi kvenna á stefnuskrá sinni. — að á þessu ári eru liðin 85 ár frá því fyrstu konurnar voru kjömar í bæjarstjórn á íslandi. Fjórar konur buðu sig fram á kvennalista í Reykjavík og komust allar að. Þetta er stærsti kosningasigur kvenna á íslandi hingað til. — að á þessu ári eru liðin 80 ár frá því að Brfet Bjamhcðinsdóttir fór á alþjóðaþing kvenna i Búdapest, ásamt Laufeyju dóttur sinni. — að á þessu ári eru liðin 75 ár frá dauða Torfhildar Hólm en hún var fyrsta íslenska konan sem lifði (rétt svo) af ritstörfúm. Hún skrif- aði m.a. bók um Brynjólf biskup Sveinsson. — að á þessu ári eru liðin 30 ár frá því að tímamótaverk Bettv Fried- an - The Feminine Mystique - kom út. Sú bók varð ein af bibl- íum kvennahreyfingarinnar. — að á þessu ári eru liðin 10 ár frá því að Kvennalistinn bauð ffam í fyrsta sinn, í þremur kjördæmum landsins, og fékk 3 konur kjörnar á þing. Þá fjölgaði konum á Alþingi úr 5% í 15% á einu bretti. Eftir síðustu kosningar voru konur 24% þingmanna. Vania dömubindin eru í mörgum stærðum og gerðum. Vania Fitness er nýtt rakadrægt dömubindi. í ytra byrði bindisins er efni sem heldur vætunni frá húðinni. í innra byrði bindisins er efni sem bindur vætuna. Á hliðum þess eru börð sem auka öryggið enn frekar. Vania Fitness dömubindin eru að sjálfsögðu með vængi. — að áður en Kvetmalútinn bauð fram árið 1983 höfðu aðeins 12 konur setið á Alþingi frá upphafi! Fyrsta konan kjörin til þingsetu var Ingibjörg H. Bjarnason og var í framboði fýrir sérstakan kvenna- listaárið 1922 ■, 20 3Cl

x

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans
https://timarit.is/publication/1231

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.