Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1993, Blaðsíða 21

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1993, Blaðsíða 21
Ujósmyi'' .dir Vorsstei' KARW A UT UR KREPPUNNI af stað starfsemi sem nýtist körlum í kreppu ... Lions gæti rekið karlaathvarf og Kiwanis staðið fyrir ofbeldismeðferð, o.s. frv.,“ segir Sigurður. Af öðrum tillögum nefndarinnar má nefna að lagt er til að feður fái sjálfstæðan rétt til fæðing- arorlofs og að hlutur karla í jafnréttis-, félags- mála- og barnaverndarnefndum verði aukinn. Með því móti fengju sjónarmið karla meira vægi í jafnréttisbaráttunni og hún kæmi þá til með að höfða meira til karla og eflast samfara því. Einnig er lagt til að tilraunum með kynja- skiptingu í skólum verði haldið áfram, auðveld- ara yrði að taka á agavandamálum stráka og skorti á sjálfstrausti meðal stelpna. Körlum í uppeldisstéttum þarf og að fjölga. Nefndin leggur áherslu á að auka ábyrgð karla gagnvart fjölskyldum sínum. Stytta þarf vinnutíma og bæta vinnuskipulagið, lausn á dagvistunarvandanum er aðkallandi og greiðsla fyrir dagvistun á að vera tekjutengd. Síðast- töldu málefnin ættu að verða forgangsverkefni atvinnurekanda og hins opinbera. Þetta og fleira má lesa í skýrslu karla- nefndarinnar. Kynnið ykkur hana - hún fest í félagsmálaráðuneytinu. —sii Ut er komin skýrsla nefndar sem Jóhanna Sig- urðardóttir félagsmálaráðherra skipaði árið 1991 til að „vinna úttekt á stöðu karla í breyttu sam- félagi með jafnari verkaskipdngu og fjölskyldu- ábyrgð“. í skýrslunni eru niðurstöður nefndar- innar kynntar ásamt tillögum til úrbóta. „Jafnréttisbarátta skilar aldrei neinum ár- angri nema bæði kynin taki þátt í henni,“ segir Sigurður Svavarsson, einn fimm karla í sjö- mannanefndinni, í viðtali við tímaritið VERU (október'93). Karlar hafi hingað til litið á jafn- réttismál sem eitthvað sem tilheyri konum, enda að mestu verið skilgreind og rekin áfram af kon- um. „En karlar vilja líka koma inn á hefðbundin yfirráðasvæði kvenna á sínum forsendum.“ Tilvistarkreppa karlmennskunnar er staðreynd, og sést m.a. á því að ofbeldi mun að stærstum hluta vera á ábyrgð karla. Nefndin leggur til að íslenskir karlar taki sér kynbræður sína í Noregi og Svíþjóð til fyrirmyndar og leiði baráttuna gegn ofheldi í framtíðinni. Kvennaathvarf er engin lausn heldur felst hún í fyrirbyggjandi að- gerðum. Ein af rótum vandans er félags- og til- finningaleg einangrun karla. Þeir eiga sér t.d. síður trúnaðarvini en konur og það þarf að verða viðurkennt og sjálfsagt að karlar leiti sér hjálpar. „Það þarf að virkja þau samtök og hreyfmgar sem karlar hafa með sér - koma þeim af ræðumennsku- og vínsmökkunarstiginu yfir á þá braut að þau beiti sér fyrir umræðum og ýti Sfilitirti/ ~C*(í(l f i t aeAlarfo at gerata... aHvr ? ^ \»rffekki a/1faf x .,V>\ •í* ÐS' '• • tara t>v seQiir K)a I AUK / SÍA kl 16d11-110

x

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans
https://timarit.is/publication/1231

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.