Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1993, Page 17
þeir telji sig snillinga í hagræð-
ingu geta þeir ekki hagrætt sér á
tvo staði í einu. Þeir þiggja laun
á stofnunum þar sem þeir sjást
ekki nema endrum og sinnum
og ofitar en ekki eru það konur
með miklu lægri laun sem í raun
vinna verkin þeirra.
Þekking og
heilbrigði, byggingar
qg vegir
Það er undarleg meinloka að sjá
ekki að hús og vegir eru ekki það
eina sem þarf að byggja upp og
viðhalda. Hægt er t.d. að byggja
upp þekkingu, með því að rann-
saka og athuga og miðla niður-
stöðum til almennings. Á þeim
sviðum eru konur engir eftirbát-
ar karla. f íslenskum skólum er
mikill skortur á kennsluefni sem
á sjálfsagt, ásamt stuttum skóla-
degi, sinn þátt í því að þekking
og færni íslenskra barna er mun
minni á ýmsum sviðum en jafn-
aldra þeirra í nágrannalöndun-
um. Nefna má t.d. að nýlega var
gerð könnun á náttúrufræði-
kennslu í íslenskum skólum og
niðurstaðan var sú að námsefnið
væri svo lélegt að það yrði að
byggja alveg upp á nýtt, á nýjum
grunni. Framtíð íslenskrar þjóðar
er þó háð því að hún þekki nátt-
úruauðlindir sínar og kunni með
þær að fara.
I yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
var tekið fram að framkvæmdir
nú megi ekki leiða til aukins
rekstrarkostnaðar síðar. Ef
ákveðið hefði verið að byggja
upp þekkingu ekki síður en
byggingar og viðhalda menningu
og heilbrigði þjóðarinnar ekki
síður en vegum, þá hefði það
minnkað ails konar rekstrar-
kostnað til langrar framtíðar og
komið í veg fýrir slys af ýmsum
toga. Auk þess sem slíkar ráðstaf-
anir hefðu virt rétt allra þegna
þjóðfélagsins til vinnu - óháð
kyni þeirra.
Sigrún Helga-
dóttir
náttúru-
fræðingur
E.s. Þess ber að geta sem vel er
gert. Þegar þessi grein hafði verið
skrifuð og beið prentunar lýsti
umhverfisráðherra því yfir að
þær 15 milljónir sem ríkisstjórn-
in ætlar Náttúruverndarráði, af
milljónunum þúsund, skuli fara í
umönnun friðlýstra svæða, upp-
byggingu gagnagrunns o.fl., en
ekki í steinsteypu.
Jarðarberjasulta.
Góð með sunnudagssteikinni.
Rabarbarasulta.
Góð á súkkulaðikökuna.
Rifsberjahlaup.
Gott með osti og út í sósu.
Drottningarsulta.
Góð á vöfflur með rjóma.
Bláberjasulta.
Góð með villibráð.
Sólberjasulta.
Góð með lambakjöti.
Ástríðusulta.
Góð með osti.
Appelsínumarmelaði.
Gott með morgunkaffinu.
BÚBÓT hf. sultugerð
Skemmuvegur 24m • 200 Kópavogur
Sími 79977 • Fax 671215
Gráfíkjusulta.
Góð í jólabaksturinn.
Tytteberjasulta.
Góð með svínasteikinni.
Y,
4
M
sultur eru ljúffengar
og henta við 511 tækifæri
Veljum íslenskt
þegar gæðin eru meiri.
Aprikósumarmelaði.
Gott með hafrakexi.
Ananasmarmelaði.
Gott með heilhveitikexi.
Gulrótarmarmelaði.
Gott með öllu kexi og brauði.
Blönduð ávaxtasulta.
Góð í bakstur.
Hindberjasulta.
Góð með kjúklingi.
Sveskjusulta.
Góð í hálfmánana.
17
AUÚLÝSINGASTOFA REYKJAVÍKUR