Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1993, Side 19
Það er með ólíkindum hve
erfitt getur verið að kveða
niður gamla drauga. Þeir
eru margir lífseigir og
taka á sig nýjar og nýjar
myndir. í Ríkisútvarp-
inu-Sjónvarpi er afskap-
lega reimt þessa dagana.
Fyrirbænir og vígt vatn
hafa ekki megnað að
kveða niður afturgöng-
ur sem þar eru á
sveimi.
í stuttu máli birtist
draugagangurinn í
Sjónvarpinu þannig að
vinnubrögð og sjónarmið
eru ekki í takt við tímann og sú samfélags-
mynd sem þar er sýnd, er í svart-hvítu og
heyrir fortíðinni til. Konur eru lítt sjáanleg-
ar, nema þá sætar stelpur upp á punt, og
svo sannarlega ekki þátttakendur í þjóð-
málaumræðunni. Þetta endurspeglaðist vel
í umræðuþáttum sumarsins. Á tímabilinu
1. maí til 31. ágúst sl. voru á dagskrá Sjón-
varpsins 15 umræðuþættir. í hópi 14
stjórnenda voru þrjár konur (ein þeirra
stýrði tveim þáttum). Þátttakendur voru
alls 75, þar af 20 konur. Ekki lagaðist slag-
síðan í september þegar ein kona var í hópi
þeirra 20 karla sem ræddu alvarleg málefni í
umræðuþáttum Sjónvarpsins.
Þessi saga er hvorki ný né draugurinn
óþekktur. En hitt er ekki eins algengt að
útvarpsráð samþykki einróma ályktanir um
þessi mál. Það gerðist þó á fundum út-
varpsráðs 15. og 22. október sl. Sú fýrri
gekk út á það að gerð skyldi könnun á hlut
kvenna í fréttum Útvarps og Sjónvarps og
fréttatengdum þáttum með það fyrir aug-
um að athuga hver þróunin hefði verið síð-
an 1987 þegar konur voru aðeins 12% við-
mælenda í fréttum Sjónvarps og það jafn-
framt í mjög afmörkuðum málafiokkum.
Viku síðar gagnrýndi útvarpsráð að við-
mælendur í sjónvarpsumræðum væru svo
til eingöngu karlar með áþekk stjórnmála-
viðhorf og fól útvarpsstjóra að sjá til þess að
grundvallarreglur væru í heiðri hafðar.
Nú er að sjá hvort veraldleg meðöl dugi
til að halda Móra í skefjum eða hvort sér-
stakar særingar þarf til.
—kaá
mmmem
■EKBBHBB
ssw--1
awfr***
“■e'*'Í£k
* ‘CSSkj
* ssss*
Kjaraseðlar DV er ný, kraftmikil sparnaðarleið fyrir
alla lesendur DV.
Kjaraseðlarnir munu birtast þriðjudaga, miðviku-
daga, fimmtudaga og föstudaga og gilda sem
raunverulegur afsláttur af þeirri vöru eða þjónustu
sem tilgreind er á hverium seðli.
Þú klippir kjaraseðlana út úr blaðinu og framvísar
í viðkomandi verslun þegar þú kaupir þá vöru sem
tilgreind er á seðlinum.
Einfaldara gæti þaö varla veriö.
Reyndu kraftmikinn sparnað f raun og
nýttu þér kjaraseðla DV.
Langar þig að
starfa með
Kvennalistanum
- eða bara
fylgjast með?
Hringdu á skrifstofú samtakanna
f síma 91-13725 (fax 91-27560).
Skrifstofán er opin á mánudög-
um og miðvikudögum frá ld. 13
til 16 og á þriðjudögum, fimmt-
udögum og föstudögum kl. 15
til 18.
Kvennalistinn gefúr út frétta-
bréf í hverjum mánuði. Áskriftin
er ókcypis! í fréttabréfinu er birt
yfirlit yfir fundi, sagt frá starfinu
úti í öngunum og á þingi, auk
alls þess sem ástæða þykir að
vekja athygli á.
Fyrir þær konur sem búa á
Suðvcsturhorninu gæti næsta
skref verið að mæra í laugardags-
kaffi. „Köffin" hafa unnið sér
fastan sess í vetrarstarfi Kvenna-
listans. Við fáum til okkar gesti
sem spjalla um allt milli himins
og jarðar. I haust höfúm við t.d.
rætt um konur í karlasporti og
heilsufar kvenna. Laugardags-
kaffið er á Laugavegi 17, 2. hæð,
og stendur frá ldukkan 11 til 13.
Það eru allir velkomnir!
Félagsfundir Reykjavíkur- og
Reykjanesanga eru auglýstir í
fréttabréfinu góða. Þeir eru
haldnir einu sinni í mánuði að
vetri tii. Þær konur sem búa úti
á landi og vilja komast í tæri við
kvennalistakonur eru bcðnar unt
að hringja í starfskonu á skrif-
stoftinni í Reykjavík. Hún gefur
upplýsingar um hvert best cr að
snúa sér á hverjum stað og
getur vonandi auðveldað
áhugasömum konum að
kynna sér starfið.
19