Kvennalistinn - 01.04.1983, Qupperneq 4
4SIÐA
Aprfl 1983
Útgefandi:
Samtök um Kvennalista
Reykjavík 1983
Ritnefnd:
Anna Ólafsdóttir Björnsson,
Elín Guðjónsdóttir,
Guðbjörg Grétarsdóttir,
Guðný Guðbjörnsdóttir,
Guðrún Kristmundsdóttir,
Helga Thorberg,
Hrefna Róbertsdóttir,
Kicki Borhammar,
Sigrún Jónsdóttir,
Þórunn Klemensdóttir.
Teiknari: Ólöf Nordal.
Ábyrgðarmaður:
Helga Thorberg.
Póstfang: Hverfísgata 50,
Reykjavík.
Prentstaður: Blaðaprent.
Setning:
Prentsmiðja Þjóðviljans
w
»> w im. «■» y* «K a»
Hinn þögli meirihluti er oft nefndur, sjaldan sýnilegur.
Hinn þögli meirihluti, þaö erum viö konur og annaö „minn-
iháttar" fólk, sem sést ekki - heyrist ekki og breytir engu -
því aö þögn er sama og samþykki.
Einstaka sinnum hefur hinn þögli meirihluti gert sig
sýnilegan þann veg aö eftir væri tekiö. Svo var t.d. á
kvennafrídaginn 1975. Þá stóöum viö svo ótrúlega marg-
ar, ungar sem aldnar, þétt saman, fundum ylinn og sam-
hygðina hver frá annarri. Nú var brotiö blaö, nú hlaut
stundin aö vera upp runnin. Nú brytum viö af okkur okiö,
sæktum fram og gerðum okkur gildandi fyrir alvöru viö
mótun þjóöfélagsins.
En því miður. Aö kveldi fór hver til síns heima, lítiö
geröist og ekkert breyttist. Staöa okkar kvenna í samfél-
aginu var áfram sú sama og hefur verið um aldir. Algjört
áhrifaleysi, nema á mjög afmörkuðu sviði, var og er okkar
hlutskipti.
Viö forstööu heimilis, þ.e. meöal annars hagstjórn
þess, aödrætti, alla úrvinnslu, þrif, umönnun aldraöra,
uppeldisstörf og önnur álíka ólaunuö og lítilsmetin störf,
fengum viö flestar aö vera óáreittar. Auk þessa voru og
eru margar okkar, eöa um 80 af hundraði giftra kvenna
jafnframt í launuöum störfum. Allt þetta hefur þótt svo
sjálfsagt aö eftir því hefur varla verið tekið. Sú litla aðstoð
sem veitt hefur verið, hefur verið þakksamlega þegin. Viö
kvökum, þökkum og þegjum, eða hvaö?
Viö stjórnsýsluna á ríkisheimilinu og í sveitarstjórnum
hefur málunum veriö þveröfugt fariö. Þar hafa karlarnir
nær eingöngu sýslaö. Þar höfum viö konur harla lítið
fengið aö koma nærri. Aðstoð sem við höfum boöiö fram
á þeim vettvangi, hefur verið aö mestu afþökkuö.
Aftur gerist þaö svo á síöastliönu vori aö hluti hins
þögla meírihluta reis upp, baröi í borðið og kvaddi sér
hljóös. Þegar þárna var komiö sögu var ástandið þannig
aö af 1172 sem sátu aö völdum í sveitarstjórnum landsins
voru konur 71 eða 6,2 af hundraöi.
Þessu varö að breyta og viö buöum fram sérstaklega
konurnar. Þá jókst hlutur kvenna um helming í sveitar-
stjórnum landsins og er nú þannig, aö af 1192 eru konur
149 eöa 12,5 af hundraði. Þennan árangur má þakka
óbeint framtakssemi okkar kvenna. Til fróöleiks og sam-
anburöar má geta þess aö á hinum Norðurlöndunum
náöist þessi árangur fyrir áratugum, svo ekki var seinna
vænna fyrir okkur hér á Fróni að grípa í taumana. Ef viö
lítum til Alþingis þá er ástandið þar enn dekkra. Þar sitja
núna 3 konur eöa 5 af hundraöi, og frá upphafi hafa þar
aðeins setiö 12 konur.
Þessu verðum viö að breyta. Þessu ætlum viö að
breyta.
Viö trúum því að þaö sé ekki aðeins réttur kvenna aö
fá aö vera meö í ákvörðunum á þjóðarheimilinu, heldur sé
þaö þjóðarnauðsyn aö verðmætamat kvenna komi þar
fram.
Við trúum því aö konur eigi ekki aðeins rétt á aö vera
með í aö ákveöa hvernig farið er meö fé landsmanna, í
hvað því er variö og í hvaöa röð verkefnin eru leyst, heldur
sé brýnt að sá réttur sé virtur.
Viö trúum því aö viö konur höfum ekki síöur vit á þess-
um málum en karlar og vegna okkar sérstöku reynslu og
þekkingar höfum viö margt nýtt til málanna að leggja. Því
ber okkur skylda til aö styðja þær konur sem hafa gefið
sig fram til aö koma sjónarmiðum okkar kvenna á fram-
færi á Alþingi. Konur hafa verið sniðgengnar nógu lengi
við kjör til alþingis íslendinga.
Viö látum okkur ekki hafa þetta lengur.
Viö heimtum uppreisn æru.
Viö erum hættar að þegja.
STÖNDUM SAMAN ALLAR SEM EIN.
Elín G. Ólafsdóttir
** )%í tx x «m v> *A>rt
a\ M V A%
Kona
Ég vil ekki
þurfa að vera
eins og karlmaður
til þess að fá sama rétt og
hann.
Ég vil ekki
þurfa að hugsa
eins og karlmaður
til þess að vera ekki fyrirlitin.
Ég vil ekki
þurfa að tala
eins og karlmaður
til þess að tekið sé mark á
mér.
Því ég er kona
og ég vil vera kona.
Ólöf Sverrisdóttir.
X>XX X X
x
6 v*V *
X X x >
í í x x
> X X X *
XX > XX
Xx XX.
XX
X
X
xxx
X K
K X x X
i xx x
* xxxx
X5 XX x
xx x x >r
X X X 2
„ x X x x
x> x xx x
XX XX
XX XV X
X
XX
xxx.
KXK
* X*
XX X XX XX
XX X Xx
« ** viíi « *» »» iy v«. xxk* <pin kK «v m n
r
Hinn þögli meirihluti