Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.04.2017, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 05.04.2017, Qupperneq 8
orkumál Innan Orkuveitu Reykja­ víkur er það dregið stórlega í efa að leggja þurfi háspennulínu yfir hálendið, eða styrkja byggðalínuna, vegna rafbílavæðingar. Mjög er dregið í efa að leggja þurfi hálendis­ línu yfirhöfuð, og alveg örugglega ekki í nánustu framtíð. Þetta kom fram í máli Bjarna Bjarnasonar, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, á ársfundi fyrirtækis­ ins á mánudag. Bjarni var þar að fjalla um rafbílavæðingu fram­ tíðarinnar, en gerði að umtalsefni hvernig raforkukerfið er byggt upp í því samhengi. Hann sagði að styrkja þyrfti raforkukerfið á Norðurlandi og Austurlandi – þar hafi vandi verið mikill lengi við að tengja saman Fljótsdalsstöð [Kárahnjúka] og jarðhitasvæðin fyrir norðan, og hugsanlega Blöndu. Þegar það væri búið væri komið þúsund megavatta kerfi sem væri sterk blanda af jarð­ gufu og vatnsafli sem væri æskilegt. Það kerfi myndi fullnægja þörfum þessa víðfeðma svæðis á flestan hátt. Á Suðvesturlandi væri kerfið 2.000 megavött og mjög góð blanda af vatnsafli og jarðvarma – og flest­ um ef ekki öllum þörfum svæðisins fullnægt til næstu ára. „Þetta þýðir að engin þörf er fyrir hálendislínu, vegna rafbíla, og engin þörf á styrkingu byggðalínu meðfram ströndum heldur. Við drögum líka í efa að hálendislínu sé þörf yfir höfuð á næstu árum. Hugsanlega þegar til lengri tíma er horft, en það er alls ekki komið að því að okkar mati í Orkuveitunni,“ sagði Bjarni og bætti við að ítrekað hefðu verið sendar umsagnir þessa efnis til Orkustofnunar og Lands­ nets þar sem þessari skoðun hafi verið lýst. Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, segir aðspurður um þessa sýn Orkuveitunnar, sem er einn eiganda Landsnets, að hann sé henni ekki fyllilega sammála. Við fengum 200 athugasemdir við kerfisáætlunina sem margar voru jákvæðar. Tveir af viðskiptavinum Landsnets gerðu hins vegar athuga­ semdir við áform um styrkingu byggðalínunnar:Norðurál og Orku­ veita Reykjavíkur, og dótturfyrir­ tæki hennar. Guðmundur Ingi segir það skýrt sem kemur fram í kerfisáætluninni hvað verið sé að leggja til; fyrst skuli tengja Norðurland og Austurland, en þetta kom skýrt fram í máli Guð­ mundar Inga á ársfundi Landsnets í gær. „Við erum einfaldlega þeirrar skoðunar að það sé nauðsynlegt að tengja saman landshlutana, og að það sé umhverfisvænsta lausnin. Ef það er ekki gert þá eru tveir ágallar; nýting virkjananna verður áfram ekki nægilega góð. Við erum þá að fórna vissum umhverfisgæðum en ekki nýta þau til fulls. Áfram verður orkusóun í kerfinu. Í öðru lagi yrðu öryggismálin ekki nægjanlega góð. Við verðum að geta brugðist við og flutt orku á milli landshluta þegar frávik verða í náttúrunni og nátt­ úruhamfarir. Þetta verður að gera í sátt við markaðinn og fólkið í land­ inu svo orkan verði samkeppnis­ hæf,“ segir Guðmundur Ingi og bætir við að engin efnisleg rök hafi breytt þessari skoðun Landsnets, en fjárhagsleg rök séu skoðuð alvarlega enda um tugmilljarða fjárfestingar að ræða. svavar@frettabladid.is Telja línu yfir hálendið vera vera óþarfa Innan Orkuveitu Reykjavíkur er háspennulína yfir hálendið talin ónauðsynleg. Styrkja þurfi kerfið milli Norður- og Austurlands, en aðeins innan svæðis. Landsnet telur hálendislínu þarfaþing. Málið hefur verið afar umdeilt um árabil og kannski síðast vegna umræð- unnar um hálendisþjóðgarð. Fréttablaðið/VilhelM orkumál „Staðreyndin er sú að í raun er ekki til formleg orkustefna fyrir Ísland. Ég tel það bagalegt og mér finnst mikilvægt að stjórnvöld taki af skarið og marki formlega orkustefnu til lengri tíma. Sú vinna er raunar þegar hafin innan míns ráðuneytis,“ sagði Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála­, iðnaðar­ og nýsköpunarráðherra, á ársfundi Landsnets í gær. Þórdís sagði það jafn mikilvægt að hafa langtímastefnu á sviði orku­ mála og annarra mikilvægra mála­ flokka þar sem slík stefna hefur verið mótuð, eins og samgöngu­ mála, ferðamála, sjávarútvegs, heil­ brigðismála og menntamála. „Með orkustefnu gefst okkur tækifæri til að setja í sameiningu fram ákveðna langtímasýn í orku­ málum okkar Íslendinga, hvert við viljum stefna og hvaða áherslur við ætlum að hafa að leiðarljósi,“ sagði ráðherra. Mótun slíkrar stefnu er ekkert nýtt. Árið 2009 lagði forveri Þórdís­ ar, Katrín Júlíusdóttir, fyrir stýrihóp UM mótun heildstæðrar orkustefnu fyrir Ísland. Hún lá fyrir árið 2011. Þórdís telur að í grunninn ríki almenn samstaða um þau megin­ sjónarmið sem koma myndu fram í orkustefnu Íslands. Í grunninn sé um að ræða ákveðið jafnvægi milli efnahagslegra, samfélagslegra og umhverfislegra þátta. – shá Orkustefnan upp úr skúffunni Þórdís Kolbrún r. Gylfadóttir, ferða- mála, iðnaðar- og nýsköpunarráð- herra Við erum einfald- lega þeirrar skoð- unar að það sé nauðsynlegt að tengja saman landshlut- ana og að það sé umhverfis- vænsta lausnin. Guðmundur Ingi Ásmundsson, for- stjóri Landsnets 1 6 -0 2 5 0 -H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Nærandi millimál … er létt mál Gríptu með þér gríska jógúrt eða kotasælu Léttmál frá MS eru bragðgóðar nýjungar með hreinum grunni og hollum og stökkum toppi. Grísk jógúrt með döðlum, möndlum og fræjum eða kotasæla með berjum og möndlum. möndlur sólblómafræ chiafræ döðlur grísk jógúrt graskersfræ 5 . a p r í l 2 0 1 7 m I Ð V I k u D a G u r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a Ð I Ð 0 5 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :5 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 9 C -8 9 0 C 1 C 9 C -8 7 D 0 1 C 9 C -8 6 9 4 1 C 9 C -8 5 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 4 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.