Fréttablaðið - 05.04.2017, Síða 14

Fréttablaðið - 05.04.2017, Síða 14
Þegar ég ákvað að skrifa meist-araritgerð í hagfræði um fram-leiðni á byggingamarkaði á Íslandi og bera saman við fram- leiðni á byggingamarkaði í Noregi þá varð mér strax ljóst að erfitt gæti reynst að fá gögn og mikil- vægar upplýsingar. Gagnaöflunin tók langan tíma og á tímabili var ég efins um að þetta tækist. En með frábæran leiðbeinanda, dr. Þórólf Matthíasson, tókst þetta að lokum. Fæðingin var sum sé mjög erfið. Til að byrja með fór ég til Sam- taka iðnaðarins, Samtaka atvinnu- lífsins og ASÍ. Mér til mikillar furðu þá höfðu þau ekkert velt þessum málum fyrir sér og það sem verra var að mér fannst, þá höfðu þau engan áhuga á viðfangsefninu. Á tyllidögum kjarasamninga er tönglast á því að framleiðni þurfi að aukast svo að ekki sé samið um hækkanir umfram framleiðni. Ann- ars fer það bara út í verðlagið. Jú, það er alveg rétt. En af hverju þetta áhugaleysi gagnvart afkastagetu einstakra starfsgreina? Þegar ég gekk á fund þessara sam- taka árið 2015 sýndi ég þeim hvað hefði verið byggt á árunum 2009- 2014. Þetta voru tölur beint frá Hagstofunni þannig að ég býst við að þessir aðilar hafi verið meðvit- aðir um þennan uppsafnaða skort … eða hvað? Á þessum árum var full- kláruð 4.141 íbúð á höfuðborgar- svæðinu samkvæmt Hagstofunni sem gerir um 690 íbúðir á ári. En árleg eftirspurn er um 1.600-1.800 íbúðir á ári. Þarna var strax ljóst í hvað stefndi. Í Kastljósi þann 21. mars var við- tal við framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. En þar kom hann inn á eftirfarandi atriði: 1) Þeir töldu að framleiðslan yrði 2001 íbúð árið 2017 en í raun varð framleiðslan 1.598 íbúðir. Þar sem ég reiknaði framleiðni í byggingariðnaði í minni mast- ersritgerð er áhugavert að sjá hvað rúmlega 20% framleiðni- aukning hefði haft mikil áhrif á þessar tölur. Í rannsókn minni kom í ljós að við erum með 66% af framleiðslugetu Noregs. Segjum að við hefðum 80% af framleiðslugetu Noregs, þá hefði þessi spá verið nærri lagi. Þannig að augljóslega skiptir framleiðni miklu máli. 2) Framleiðsla á minni íbúðum er dýrari. Vinnustundir aukast um 6% við hverja 10 fermetra minnkun á íbúðum, sem segir að uppbygging á minni íbúðum tekur lengri tíma. 3) Hann segist ekki hafa áhyggjur af vinnuaflsskorti í byggingar- iðnaði. Við erum með frjálst flæði vinnuafls innan EES og því liggur það ljóst fyrir að besta vinnuaflið í Evrópu leitar þangað sem raunlaunin eru hæst og það er ekki á Íslandi, auk þess sem eftirliti með fagskírteinum er mjög ábótavant hérlendis. Í dag gengur mjög erfiðlega að manna byggingariðnaðinn og því finnst mér ákveðið virðingarleysi felast í þessum ummælum. Það tekur langan tíma að ná upp færni og ef menn halda að hvaða Jón sem er geti sinnt þessu þá eru menn á villigötum. Við þurfum 80% meiri tíma til innanhússfrágangs miðað við Noreg en það er akk- úrat þessi innanhússfrágangur sem þarfnast hæfni og aukins vinnuhraða sem næst bara með nokkurra ára þjálfun. Þannig að aukning á faglærðu vinnuafli skilar betri árangri. Óraunhæf spá Iðnaðarmenn sem ég tala við dag- lega eru sammála um að spá Sam- taka iðnaðarins sé ekki raunhæf, og þá sérstaklega vegna ruðningsáhrifa af hótelbyggingum og eins og fyrr segir, vegna skorts á faglærðu og vel þjálfuðu vinnuafli. Þessi atvinnu- grein þarf að fá meiri athygli og hefja þarf vinnu við stefnumótun til langs tíma. Við erum ekki sjálfbær með svo fáa iðnaðarmenn og við erum einfaldlega ekki samkeppnis- hæf um besta vinnuaflið í Evrópu. Við erum með góða iðnaðarmenn en þeir eru bara of fáir til þess að ráða við svona mikla uppbyggingu á svona stuttum tíma. Staðan sem við erum komin í er mjög erfið en því miður verður hún ekki leyst með skyndilausnum og mun staðan því vera erfið áfram næstu árin. Menn verða hins vegar að vera hreinskilnir með þessa stöðu. Það er ekki til neins að búa til væntingar sem standast ekki. Framleiðslugetunni verður ekki breytt eins og hendi sé veifað, en við getum allavega búið okkur undir framtíðina og reynt að koma í veg fyrir að svona gerist aftur. ASÍ, SI og SA … úlfur, úlfur Ævar Rafn Hafþórsson iðnaðarmaður og hagfræðingur Iðnaðarmenn sem ég tala við daglega eru sammála um að spá Samtaka iðnaðarins sé ekki raunhæf, og þá sérstak- lega vegna ruðningsáhrifa af hótelbyggingum og eins og fyrr segir, vegna skorts á fag- lærðu og vel þjálfuðu vinnu- afli. Þessi atvinnugrein þarf að fá meiri athygli og hefja þarf vinnu við stefnumótun til langs tíma. 365.is Sími 1817 Á MORGUN KL. 21:50NÝTT FLOTTINN´ ´ HELDUR AFRAM 5 . a p r í l 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r14 s K o Ð U n ∙ F r É T T a B l a Ð I Ð 0 5 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :5 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 9 C -7 0 5 C 1 C 9 C -6 F 2 0 1 C 9 C -6 D E 4 1 C 9 C -6 C A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 4 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.