Fréttablaðið - 05.04.2017, Blaðsíða 14
Þegar ég ákvað að skrifa meist-araritgerð í hagfræði um fram-leiðni á byggingamarkaði á
Íslandi og bera saman við fram-
leiðni á byggingamarkaði í Noregi
þá varð mér strax ljóst að erfitt
gæti reynst að fá gögn og mikil-
vægar upplýsingar. Gagnaöflunin
tók langan tíma og á tímabili var
ég efins um að þetta tækist. En með
frábæran leiðbeinanda, dr. Þórólf
Matthíasson, tókst þetta að lokum.
Fæðingin var sum sé mjög erfið.
Til að byrja með fór ég til Sam-
taka iðnaðarins, Samtaka atvinnu-
lífsins og ASÍ. Mér til mikillar furðu
þá höfðu þau ekkert velt þessum
málum fyrir sér og það sem verra
var að mér fannst, þá höfðu þau
engan áhuga á viðfangsefninu.
Á tyllidögum kjarasamninga er
tönglast á því að framleiðni þurfi
að aukast svo að ekki sé samið um
hækkanir umfram framleiðni. Ann-
ars fer það bara út í verðlagið. Jú,
það er alveg rétt. En af hverju þetta
áhugaleysi gagnvart afkastagetu
einstakra starfsgreina?
Þegar ég gekk á fund þessara sam-
taka árið 2015 sýndi ég þeim hvað
hefði verið byggt á árunum 2009-
2014. Þetta voru tölur beint frá
Hagstofunni þannig að ég býst við
að þessir aðilar hafi verið meðvit-
aðir um þennan uppsafnaða skort …
eða hvað? Á þessum árum var full-
kláruð 4.141 íbúð á höfuðborgar-
svæðinu samkvæmt Hagstofunni
sem gerir um 690 íbúðir á ári. En
árleg eftirspurn er um 1.600-1.800
íbúðir á ári. Þarna var strax ljóst í
hvað stefndi.
Í Kastljósi þann 21. mars var við-
tal við framkvæmdastjóra Samtaka
iðnaðarins. En þar kom hann inn á
eftirfarandi atriði:
1) Þeir töldu að framleiðslan yrði
2001 íbúð árið 2017 en í raun
varð framleiðslan 1.598 íbúðir.
Þar sem ég reiknaði framleiðni
í byggingariðnaði í minni mast-
ersritgerð er áhugavert að sjá
hvað rúmlega 20% framleiðni-
aukning hefði haft mikil áhrif á
þessar tölur. Í rannsókn minni
kom í ljós að við erum með
66% af framleiðslugetu Noregs.
Segjum að við hefðum 80% af
framleiðslugetu Noregs, þá hefði
þessi spá verið nærri lagi. Þannig
að augljóslega skiptir framleiðni
miklu máli.
2) Framleiðsla á minni íbúðum
er dýrari. Vinnustundir aukast
um 6% við hverja 10 fermetra
minnkun á íbúðum, sem segir
að uppbygging á minni íbúðum
tekur lengri tíma.
3) Hann segist ekki hafa áhyggjur
af vinnuaflsskorti í byggingar-
iðnaði. Við erum með frjálst
flæði vinnuafls innan EES og
því liggur það ljóst fyrir að besta
vinnuaflið í Evrópu leitar þangað
sem raunlaunin eru hæst og það
er ekki á Íslandi, auk þess sem
eftirliti með fagskírteinum er
mjög ábótavant hérlendis. Í dag
gengur mjög erfiðlega að manna
byggingariðnaðinn og því finnst
mér ákveðið virðingarleysi felast
í þessum ummælum. Það tekur
langan tíma að ná upp færni og
ef menn halda að hvaða Jón sem
er geti sinnt þessu þá eru menn
á villigötum. Við þurfum 80%
meiri tíma til innanhússfrágangs
miðað við Noreg en það er akk-
úrat þessi innanhússfrágangur
sem þarfnast hæfni og aukins
vinnuhraða sem næst bara með
nokkurra ára þjálfun. Þannig að
aukning á faglærðu vinnuafli
skilar betri árangri.
Óraunhæf spá
Iðnaðarmenn sem ég tala við dag-
lega eru sammála um að spá Sam-
taka iðnaðarins sé ekki raunhæf, og
þá sérstaklega vegna ruðningsáhrifa
af hótelbyggingum og eins og fyrr
segir, vegna skorts á faglærðu og vel
þjálfuðu vinnuafli. Þessi atvinnu-
grein þarf að fá meiri athygli og
hefja þarf vinnu við stefnumótun til
langs tíma. Við erum ekki sjálfbær
með svo fáa iðnaðarmenn og við
erum einfaldlega ekki samkeppnis-
hæf um besta vinnuaflið í Evrópu.
Við erum með góða iðnaðarmenn
en þeir eru bara of fáir til þess að
ráða við svona mikla uppbyggingu
á svona stuttum tíma.
Staðan sem við erum komin í er
mjög erfið en því miður verður hún
ekki leyst með skyndilausnum og
mun staðan því vera erfið áfram
næstu árin. Menn verða hins vegar
að vera hreinskilnir með þessa
stöðu. Það er ekki til neins að búa
til væntingar sem standast ekki.
Framleiðslugetunni verður ekki
breytt eins og hendi sé veifað, en
við getum allavega búið okkur
undir framtíðina og reynt að koma
í veg fyrir að svona gerist aftur.
ASÍ, SI og SA … úlfur, úlfur
Ævar Rafn
Hafþórsson
iðnaðarmaður
og hagfræðingur
Iðnaðarmenn sem ég tala við
daglega eru sammála um að
spá Samtaka iðnaðarins sé
ekki raunhæf, og þá sérstak-
lega vegna ruðningsáhrifa af
hótelbyggingum og eins og
fyrr segir, vegna skorts á fag-
lærðu og vel þjálfuðu vinnu-
afli. Þessi atvinnugrein þarf
að fá meiri athygli og hefja
þarf vinnu við stefnumótun
til langs tíma.
365.is Sími 1817
Á MORGUN KL. 21:50NÝTT
FLOTTINN´ ´ HELDUR AFRAM
5 . a p r í l 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r14 s K o Ð U n ∙ F r É T T a B l a Ð I Ð
0
5
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:5
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
C
-7
0
5
C
1
C
9
C
-6
F
2
0
1
C
9
C
-6
D
E
4
1
C
9
C
-6
C
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K