Fréttablaðið - 05.04.2017, Síða 20
Með kjöri Svanhild-ar Nönnu Vigfús-dóttur, fjárfestis og eins af stærstu hluthöfum VÍS, sem formanns
stjórnar tryggingafélagsins í síðasta
mánuði hefur einkafjárfestum í hlut-
hafahópnum tekist að ná völdum í
stjórn fyrirtækisins. Mikil átök hafa
sett mark sitt á störf stjórnar VÍS á
undanförnum misserum, sem hafa
öðrum þræði snúist um ólíkar áhersl-
ur annars vegar fulltrúa lífeyrissjóð-
anna og hins vegar helstu einkafjár-
festa félagsins, og birtist meðal annars
í því að samtals hafa fimmtán manns
setið í stjórn frá því í ársbyrjun 2015
og fjórir einstaklingar gegnt stöðu
stjórnarformanns yfir sama tímabil.
Jafn tíð stjórnarskipti á svo skömmum
tíma er einsdæmi á meðal félaga sem
eru skráð í Kauphöllinni.
Í aðdraganda aðalfundar VÍS var
ljóst að ákveðinn hópur hluthafa,
sem samanstóð einkum af hjón-
unum Svanhildi og Guðmundi Erni
Þórðarsyni, Sigurði Bollasyni, fjár-
festingafélaginu Óskabeini og sjóða-
stýringarfyrirtækinu Stefni, vildi ná
fram breytingum á stjórn og stefnu
félagsins. Þá hafði Svanhildur uppi
áform að taka við sem formaður af
Herdísi Dröfn Fjeldsted, sem hefur
verið studd af Lífeyrissjóði verslunar-
manna, stærsta hluthafa VÍS, en hún
hafði gegnt þeirri stöðu frá því í nóv-
ember 2015. Svanhildur, en hún og
eiginmaður hennar komu fyrst inn í
hluthafahóp VÍS 2014 eftir að hafa selt
Skeljung skömmu áður með milljarða
hagnaði, átti í því skyni fundi með
flestum af stærstu hluthöfum VÍS þar
sem hún útlistaði sínar áherslur og
Taka völdin og hafa augastað á Kviku
Eftir kjör Svanhildar Nönnu til formennsku í VÍS er hópur einkafjárfesta sestur við stýrið í félaginu. Mikil átök einkennt störf stjórnar
og fimmtán manns setið í stjórninni á tveimur árum. Ný stjórn vill bæta tryggingareksturinn og horfir til þess að fá meirihluta í Kviku.
Samanlagður eignarhlutur þeirra lífeyrissjóða sem eru á meðal tuttugu stærstu hluthafa VÍS nemur í dag um 36 prósentum. Fréttablaðið/anton
Lagði fram tillögu á stjórnarfundi að ráða Birnu Einarsdóttur sem forstjóra
Ákvörðun þáverandi stjórnar VÍS
að ráða Jakob Sigurðsson sem for-
stjóra í stað Sigrúnar Rögnu Ólafs-
dóttur, sem þá var eini kvenfor-
stjóri fyrirtækis í Kauphöllinni, í lok
ágústmánaðar í fyrra kom fæstum
aðilum á markaði á óvart. Þrálátur
orðrómur hafði verið um að staða
hennar væri ótraust enda þótti af-
koma af tryggingahluta rekstrarins
óviðunandi og ávöxtun af fjárfest-
ingaeignum var sömuleiðis mun
lakari en hjá Sjóvá og TM.
Þrátt fyrir að ýmsir hluthafar VÍS,
einkum á meðal helstu einkafjár-
festa félagsins, hafi þrýst mjög
á að ráðast í slíkar aðgerðir strax
eftir að ný stjórn var kjörin í apríl
2016, þar sem inn komu þrír nýir
stjórnarmenn, þá náðist ekki um
það samstaða innan stjórnarinnar
á þeim tímapunkti. Fallist var á
málamyndatillögu, sem var einkum
fyrir tilstuðlan Norðmannsins
Josteins Sørvoll, að bíða með þá
ákvörðun fram yfir sumarið sama
ár, samkvæmt heimildum
Markaðarins. Það gekk
eftir og þegar tilkynnt
var um afkomu VÍS
á fyrri árshelmingi
2016, sem var undir
væntingum, var ljóst
að dagar Sigrúnar
Rögnu í stóli forstjóra
voru taldir.
Aðdragandinn að ráðn-
ingu nýs forstjóra var afar skammur
og hófst leit að eftirmanni Sigrúnar
Rögnu í reynd ekki fyrr en sama
dag og árshlutauppgjör VÍS var gert
opinbert fimmtudaginn 25. ágúst.
Nöfn ýmissa stjórnenda komu til
umræðu á meðal stjórnarmanna
félagsins en á fundi sem þeir
áttu síðar í vikunni, samkvæmt
öruggum heimildum Markaðarins,
lagði Herdís Dröfn, þáverandi
stjórnarformaður, fram þá tillögu
að ráða Birnu Einarsdóttur, banka-
stjóra Íslandsbanka, sem nýjan for-
stjóra VÍS. Helga Hlín Hákonardóttir,
sem er meðal annars studd
af Gildi lífeyrissjóði til
setu í stjórninni, sagðist
á fundinum styðja þá
tillögu Herdísar.
Því fór hins vegar
fjarri að einhugur
væri í stjórninni um að
ganga til viðræðna við
Birnu um að hún tæki við
forstjórastólnum. Þá er þess
skemmst að minnast að Svan-
hildur og Guðmundur höfðu átt í
hatrömmum deilum við Birnu og
Íslandsbanka þegar þau voru eig-
endur Skeljungs á árunum 2009 til
2013. Þegar sumir af hluthöfum VÍS
fréttu af tillögu Herdísar, einkum
úr röðum einkafjárfesta, varð fljótt
ljóst að það myndi aldrei nást sátt
um ráðningu hennar – hvorki innan
stjórnarinnar né meðal stærstu
hluthafa VÍS – og var þeim skila-
boðum komið skýrt á framfæri.
Í samtali við Markaðinn vildi
Herdís aðspurð ekkert tjá sig um
þá tillögu að leita til Birnu um að
taka við sem forstjóri né heldur
hvort hún hefði verið búin að ræða
þann möguleika við hana áður en
tillagan var sett fram. Birna segir í
svari til Markaðarins að enginn í VÍS
hafi rætt þetta við hana.
Í kjölfarið stóð valið á milli
Jakobs Sigurðssonar, fyrrverandi
forstjóra Promens, og Sigurðar
Hannessonar, framkvæmda-
stjóra eignastýringar Kviku banka.
Benedikt Gíslason, stjórnarmaður
og fyrrverandi samstarfsmaður
Sigurðar í MP banka og við vinnu
stjórnvalda að áætlun um losun
hafta, talaði helst fyrir því innan
stjórnarinnar, með stuðningi einka-
fjárfesta félagsins, að Sigurður yrði
ráðinn forstjóri. Af því varð ekki en
eftir að hafa verið boðaðir í viðtöl
náðist um það samstaða í stjórn-
inni að ganga frá samkomulagi við
Jakob sunnudaginn 29. ágúst að
hann tæki við sem forstjóri. Sama
dag var Sigrúnu Rögnu sagt upp.
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
upplýsti þá að hún myndi sækjast eftir
formennsku, samkvæmt heimildum
Markaðarins.
taldi sig hafa stuðning
Herdís taldi sig aftur á móti hafa
stuðning meirihluta nýrrar fimm
manna stjórnar til að gegna áfram for-
mennsku í félaginu. Þannig var Helga
Hlín Hákonardóttur, sem hafði setið
í stjórn félagsins frá því í apríl 2016,
þeirrar skoðunar að ekki væri ástæða
til að skipta um formann og þá hélt
Herdís að Valdimar Svavarsson, sem
kom nýr inn í stjórnina og var einkum
teflt fram af Sigurði Bollasyni, hefði
jafnframt heitið henni stuðningi í
aðdraganda aðalfundar. Valdimar
var áður í fyrirtækjaráðgjöf Virðingar
en hafði látið þar af störfum skömmu
áður en tilkynnt var um framboð hans
til stjórnar VÍS.
Það fór hins vegar á annan veg – og
jafnframt eru deildar meiningar um
það á meðal hluthafa hvort Valdimar
og Sigurður hafi nokkurn tíma lofað
því að styðja Herdísi – og Valdimar
studdi að lokum þá tillögu að Svan-
hildur yrði að formaður. Slíkt hið
sama gerði Gestur Breiðfjörð Gestsson
en hann er einn þeirra fjárfesta, ásamt
meðal annars Andra Gunnarssyni
lögmanni og Fannari Ólafssyni, sem
standa að baki félaginu Óskabeini sem
á 5,9 prósent í VÍS. Aðrir möguleikar
voru ræddir varðandi verkaskiptingu
nýrrar stjórnar, til dæmis að Herdís
yrði áfram formaður en Valdimar
Svavarsson varaformaður, en ekki
náðist sátt um þá niðurstöðu.
tókst í annarri tilraun
Þá hafði Þórður Már Jóhannesson,
fjárfestir og fyrrverandi forstjóri
Straums-Burðaráss, einnig kannað
þann möguleika að gefa kost á sér í
framboð til stjórnar og hitt hluthafa
félagsins – bæði lífeyrissjóði og einka-
fjárfesta – og leitað eftir stuðningi,
samkvæmt heimildum Markaðarins.
Ekkert varð hins vegar af þeim áform-
um og Þórður Már ákvað að gefa ekki
kost á sér skömmu áður en frestur til
þess rann út.
Aðeins um tveimur vikum eftir
aðalfund VÍS þann 15. mars síðast-
liðinn tilkynnti Herdís að hún hefði
ákveðið að segja sig úr stjórn félags-
ins. Í bréfi sem Svanhildur sendi í kjöl-
farið á ýmsa hluthafa félagsins, sem
Markaðurinn hefur undir höndum
og Vísir.is hefur áður greint frá, sagði
hún ákvörðun Herdísar „vonbrigði“
en að hún hafi verið meðvituð um að
Herdís hefði haft „væntingar“ um að
vera áfram stjórnarformaður. Stjórn
VÍS hafi talið að þetta væri „góður
tímapunktur“ til breytinga. „Það er
mín skoðun,“ segir í bréfi Svanhildar,
að „þegar fólk er í stjórn félags […] að
þá sé óeðlilegt að gera þá kröfu að ef
viðkomandi fái ekki stól formanns
Ef traust
er ekki
til staðar er ekki
hægt að ætlast til
stjórnarsetu af
viðkomandi
stjórnarmanni.
Herdís Dröfn
Fjeldsted
Það er
óeðlilegt
að gera þá kröfu
að ef viðkom-
andi fái ekki stól
formanns þá hafi
hann ekki áhuga
á að starfa að
málefnum
félagsins.
Svanhildur nanna
Vigfúsdóttir
5 . a p r í l 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r6 markaðurinn
0
5
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:5
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
C
-9
2
E
C
1
C
9
C
-9
1
B
0
1
C
9
C
-9
0
7
4
1
C
9
C
-8
F
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
4
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K