Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.04.2017, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 05.04.2017, Qupperneq 30
„Þetta er fjölskyldufyrirtæki ef svo má segja en við konan mín stönd- um að þessu,“ segir Kristinn Ólafur Smárason, eigandi vefverslunnar Retrólíf, sem selur gamlar leikjatölv- ur og tölvuleiki ásamt unnustu sinni Heiðrúnu Matthildi Atladóttur. Vefverslunin var opnuð í nóvem- ber í fyrra en þar selja þau Kristinn og Heiðrún notaðar tölvur á borð við Nintendo NES, Sega Mega Drive og PlayStation. Þar má einnig finna sjaldgæfa tölvuleiki sem ekki hafa verið seldir hér á landi í um 30 ár, eða jafnvel aldrei, og aukahluti eins og fjarstýringar og minniskubba. „Ég hef verið að væflast í þessum klassísku tölvum síðasta áratuginn eða svo og safnað þeim og gömlum leikjum í langan tíma. Á endanum var ég kominn með gott safn af alls konar dóti og maður var farinn að fá fyrirspurnir á Facebook, Blandi og fleiri stöðum. Mig langaði því að prufa að opna litla vefverslun með þessar vörur og lét verða af því. Þetta fékk strax talsverða athygli og ég fæ mikið af fyrirspurnum um hina ýmsu leiki og tölvur og þá reynir maður að hlaupa til og redda,“ segir Kristinn. Nintendo NES sló í gegn á níunda áratug síðustu aldar og hana mátti finna á mörgum íslenskum heimil- um. Tölvan og leikir hennar eru að sögn Kristins vinsælustu vörurnar hjá Retrólífi en einnig er talsverð eftirspurn eftir leikjatölvu sem kom út um fimmtán árum síðar. Gamla Nintendo NES langvinsælust Kristinn Ólafur Smárason stofnaði Retrolif.is eftir að hann hafði safnað tölvuleikjum í meira en áratug. FRéttablaðið/ERniR Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðj- unnar, er 43 ára viðskiptafræðingur með MBA frá Háskólanum í Reykja- vík. Hann var áður framkvæmda- stjóri Bílanausts, framkvæmdastjóri vöru- og rekstrarsviðs N1 og for- stöðumaður markaðs- og rekstrar- deildar fyrirtækjasviðs Olíufélagsins Esso. Að auki er hann nýskipaður í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunar- manna, er í stjórn Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) og situr hér fyrir svörum í Svipmynd Markaðarins. Hvað hefur komið þér mest á óvart það sem af er ári? Það hefur komið mér á óvart að Donald Trump láti enn eins og hann sé að stýra raun- veruleikaþætti þar sem stöðugt þarf að koma með bombur til að halda áhorfstölum uppi. Hér heima hefur veðurblíðan í janúar og febrúar komið mér nokkuð á óvart ásamt því að Seðlabankinn hafi enn ekki lækkað vexti. Hvaða app notarðu mest? Ég nota Strava og Spotify líklega mest. Svo kíkir maður öðru hvoru á Facebook eins og Íslendingi sæmir. Hvað gerir þú í frístundum þínum? Um daginn fór ég annað árið í röð í Vasaloppet sem er 90 kílómetra skíðaganga og mikil upplifun. Hjóla- della er líklega aðaláhugamálið og nokkuð tímafrekt. Við fjölskyldan erum dugleg að fara á skíði eftir vinnu og um helgar. Við ferðuðumst töluvert innanlands þegar strákarnir okkar voru yngri og nú gefast fleiri tækifæri til að fara til útlanda í fríum. Þá er gaman að komast öðru hvoru í stangveiði á sumrin. Ég er líka mikill græjukall og hef gaman af því að stúdera alls kyns „nauðsynlegan“ nútímaóþarfa í frístundum. Hvernig heldur þú þér í formi? Hjólreiðar og gönguskíði eru fín leið til þess. Um helgina hjólaði ég 70 kílómetra úti í rokinu og sunnu- dagsmorguninn byrjaði snemma á 60 kílómetra inniæfingu á smarttra- iner. Í fyrra hjólaði ég rúmlega 5.000 km sem er fín brennsla, sérstaklega þar sem ég er 193 cm á hæð og lítið fyrir það að fara hægt. Svo spila ég badminton og fer nokkuð reglulega í ræktina. Hvernig tónlist hlustar þú á? Coldplay er í sérstöku uppáhaldi hjá mér og Nýdönsk er í hávegum höfð á heimilinu. Á hjólatrainernum vil ég helst hafa hraðan takt og á þeim laga- listum er alls kyns konfekt frá ekki minni spámönnum en David Guetta, Muse, Pitbull, Flo Rida og Rihönnu. Ertu í þínu draumastarfi? Ég er í krefjandi starfi sem kallar á mikið frumkvæði og býður upp á fjölda spennandi verkefna. Ég vinn með frábæru samstarfsfólki og á þess kost að vera töluvert á ferðinni sem er frá- bært. Þá er starfið vel launað sem er auðvitað viðbótarkostur. Líklega er þetta draumastarf. Hjólaði um 5.000 kílómetra í fyrra Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar. FRéttablaðið/EyþÓR Ég hef verið að væflast í þessum klassísku tölvum síðasta áratuginn eða svo og safnað þeim og gömlum leikjum í langan tíma. Kristinn Ólafur Smárason Par í Kópavogi stofnaði vefverslunina Retrólíf þar sem það selur gamlar leikjatölvur og tölvuleiki. Byrjaði sem áhugamál fyrir rúmum áratug en selja nú Nintendo, Sega Mega Drive og PlayStat­ ion. „Margir vilja finna aftur æskuárin í gegnum gamla tölvuleiki.“ Við vinnum að sölu á eftirtöldum fyrirtækjum: Lækjargötu 2, 2. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is • Verslun með alþjóðlegt vörumerki, fatnaður fyrir konur og karla. Mjög góður hagnaður. • Veitingastaðir í verslunarkjarna. • Kaffihús í 101 Reykjavík, mjög góður hagnaður. • Apótek í úthverfi Reykjavíkur. • Sérhæft matvinnslufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Framleiðsla matvæla í háum gæðaflokki. Góður hagnaður. • Toppveitingastaður í 101 Reykjavík. Velta frá 150 milljónum. • Heildverslun með sælgæti. • Sérhæfð bílaleiga með pallbíla, mjög góður hagnaður. • Við vinnum að sölu á veitingaþjónustu í golfskála á Reykjavíkursvæðinu, góð velta og mikil tækifæri. Við hvetjum fyrirtækjaeigendur í söluhugleiðingum til að hafa samband. • Iðnfyrirtæki á Reykjavíkursvæðinu sem þjónustar nokkur stærstu fyrirtæki landsins, smíða úr áli, stáli og sinna sérhæfðum viðhaldsverkefnum. • Veitingaþjónusta hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. • Sérhæft atvinnsl fyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu. Framleiðsla matvæla í háum gæðaflokki. Góður hagnaður. • Verslun með alþjóðlegt vörumerki, fatnaður fyrir konur og karla. Mjög góður hagnaður. • Topp veitingastaðir í 101 Reykjavík og víðar. • Kaffihús í 101, mjög arðbær rekstur. • Heildverslun með sælgæti. • Sérhæfð bílaleiga. • Sérverslun í austurbæ Reykjavíkur – Tengir þig við framtíðina! Sjónvarpsdreifikerfi fyrir hótel, gistiheimili og skip. Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660 oreind@oreind.is • www.oreind.is Svipmynd Árni Stefánsson „Það kom mér mjög á óvart hversu vinsæl PlayStation 2 er og leikir henni tengdir. Það er augljóslega eitthvert „költ-following“ í kringum hana hér á landi,“ segir Kristinn. Er mikil eftirspurn eftir þessum vörum? „Ég segi nú ekki að það sé talsverð eftirspurn en þetta er sér- stakur markaður og það er alltaf einhver sala. Ég er ekki á kafi í vinnu yfir þessu en það er vissulega áhugi og margir sem vilja finna aftur æsku- árin í gegnum gamla tölvuleiki,“ segir Kristinn og bætir við að hann sé í fullu starfi hjá tæknifyrirtækinu GoMobile. Kaupirðu tölvurnar og leikina hér heima eða á netinu? „Ég geri hvort tveggja. Ég er búinn að vera á spjallborðum um alls konar tölvur og farinn að þekkja fólk með sama áhugamál um allan heim; í Japan, Þýskalandi, Skandinavíu og Ástr- alíu. Ef fólk vantar eitthvað mjög sérstakt get ég alltaf leitað til vissra aðila en maður reynir að halda inn- kaupunum þannig ef það er hægt.“ haraldur@frettabladid.is 5 . a p r í l 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r8 markaðurinn 0 5 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :5 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 9 C -9 7 D C 1 C 9 C -9 6 A 0 1 C 9 C -9 5 6 4 1 C 9 C -9 4 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 4 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.