Fréttablaðið - 10.04.2017, Blaðsíða 4
4
FRÉTTIR ■ FRÉTTABLAÐIÐ
10. APRÍL 2017 MÁNUDAGUR
Stúdentar opna dyr aö ferðaþjónustu
stúdentar „Viö ákváðum aö reka
þetta sjálf til að geta sinnt háskóla-
samfélaginu betur. Viö höfum verð-
lagningu eins lága og mögulegt er
eins og í öllum okkar rekstri," segir
Rebekka Siguröardóttir, upplýsinga-
fulltrúi Félagsstofnunar stúdenta
sem hefur reksturs hostels á Gamla
Garöi í sumar.
Hótel hefur verið rekiö í Gamla
Garöi í mörg ár og hefur FS hingað
til fengið aöila innan hótelgeirans til
aö sjá um reksturinn. Þegar síðasti
samningur var aö renna út ákváðum
viö aö gera þetta sjálf og brey ta í hos-
tel sem hentar háskólasamfélginu.
„Félagsstofnun stúdenta er sjálfs-
eignastofnun sem nýtur engra
styrkja og stendur undir sér sjálf.
Markmiðið meö reltstrinum er að
Stúdentar eiga
stofnunina, þjón-
ustan er iyrir þá og fá þeir
því aö sjáifsögóu bestu
kjörin.
Rebekka Sigurðardóttir, upplýsingfull-
trúi Félagsstofnunar stúdenta
veita stúdentum ódýra og góða
þjónustu og vera bara á núlli því
hjá okkur eru engir eigendur sem
þurfa aö fá greiddan arð. Stúdentar
eiga stofnunina, þjónustan er fyrir
þá og fá þeir því aö sjálfsögðu bestu
kjörin,“ segir Rebekka í samtali viö
Fréttablaðiö.
„Tilgangurinn er ekki að græða á
þessu frekar en ööru sem stofnunin
gerir og rekstrarformið er eins og á
öllu hinu sem við rekum, Stúdenta-
görðum, í Stúdentakjallaranum,
Hámu og annari veitingasölu, leik-
skólum og Bóksölu stúdenta," bætir
Rebekka við.
Hostelið verður opnað í júní en
43 herbergi eru á Gamla Garði og
standa þau öllum til boða í sumar.
benediktboas(á>365.is
Horflr grátandi á afa sinn í
óvissu um framtíöina
Ragnar vill helst fá að vera hjá eiginkonu sinni siðustu æviár þeirra. Það er hins-
vegar ekki möguleiki að mati færni- og heilsumatsnefndar. fréttablaðið/gva
Meira áhorf eftir
áreitnisásakanir
bandaríkin Ásakanir um að hafa
áreitt samstarfsmenn kynferðis-
lega og fréttir um að hafa greitt
viðkomandi samstarfsmönnum til
að greina ekki frá áreitninni hafa
ekki haft áhrif á áhorf á þátt banda-
ríska fréttamannsins Bill O'Reilly,
The O'Reilly Factor. Fjölmiðlar
vestanhafs hafa sagt fréttir af athæfi
O’Reilly undanfarið.
Washington Post greindi hins
vegar frá því að 3,7 milljónir hafí
horft á þátt hans síðastliðinn mánu-
dag og 3,8 milljónir á þriðjudags-
þáttinn. Vikuna áður, það er áður
en fréttir af áreitni birtust, horfðu
2,3 milljónir á þann þátt vikunnar
sem fékk mest áhorf. - þea
Ráðuneyti
dómsmála tekur
til starfa l. maí
stjórnsýsla Nýtt dómsmálaráðu-
neyti mun taka til starfa um kom-
andi mánaðamót. Samhliða verður
til samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðuneyti.
Forseti íslands staðfesti tillögu
forsætisráðherra um breytt skipulag
Stjórnarráðs íslands fyrir helgi. For-
setaúrskurðinn felur í sér að ráðu-
neytunum fjölgar um eitt.
Málefnasvið hinna nýju ráðu-
neyta munu vera á sama hátt og var
innan veggja innanríkisráðuneytis-
ins með þeirri undantekningu að
mál Þjóðskrár og Yfírfasteignamats-
nefndar munu heyra undir sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðuneyti.
Samhliða þessum breytingum
voru nokkrar breytingar gerðar á
verkaskiptingu milli forsætisráðu-
neytis og fjármála- og efnahagsráðu-
neytis sem varða framkvæmd laga
um Seðlabanka íslands. - jóe
algjörri
Haraldur Ragnarsson er
fæddur 1925 ogbýr einn
á heimili sínu í Reykja-
vík. Heilsumatsnefnd
heilbrigðisráöherra veit-
ir honum ekki leyfi til
vistunar á Hrafnistu þar
sem konan hans býr.
ÖLDRUNARMÁL Systurnar Halla Ósk
Haraldsdóttir og Sigrún Elín Har-
aldsdóttir segja það mikla byrði
fyrir afa þeirra, Ragnar Haralds-
son, að fá ekki vistun á Hrafnistu
í Reykjavík á sama tíma og konan
hans til fjölda áratuga er komin
inn. Hann er einn heima lungann
úr deginum og sökum heilsuleysis
treystir hann sér ekki til aö heim-
sækja eiginkonu sína nema annan
hvern dag.
Ragnar Haraldsson er fæddur árið
1925 en konan hans, Sigrún Einars-
dóttir er fædd árið 1929. Þau hafa
verið í sambandi frá því árið 1950
eða í 67 ár. Ragnar fékk hvíldarinn-
lögn á Hrafnistu fyrir nokkru síðan í
fjórarvikur. Þegarhann óskaði eftir
framlengingu á hvíldarinnlögninni
var beiðni hans hafnað af færni- og
heilsumatsnefnd
„Hann afi okkar fær mjög oft
svimaköst og hefur hann margoft
slasast heima hjá sér við það eitt að
standa uppréttur. Hann hefur axlar-
brotnað, marist í andliti, rotast svo
dæmi séu tekin. Hann fær þjónustu
heim til sín tvisvar sinnum á dag en
á milli þess er hann einsamall. Það
veldur okkur miklum áhyggjum,"
segir Halla Ósk.
Laura Scheving Thorsteinsson,
sviðsstjóra eftirlits oggæða hjá emb-
ætti landlæknis, segir öldrunarrými
takmörkuð gæði og ef einstaklingar
komist inn gæti það verið á kostnað
annars. „Það eru allir sammála um
að það vill enginn stía í sundur hjón-
um,“ segir Laura. „Hinsvegar eru
dvalar- og hjúkrunarrými fullnýtt
í dag og biðlistar fyrir hendi og ef
einstaklingur kemur inn með maka
sínum gæti hann hugsanlega verið
að taka pláss af öðrum sem þyrfti
sannarlega á slíku rými að halda."
Fréttablaðið sagði frá því í síð-
ustu viku að hjón á Akureyri til 65
Afi viil auövitaö fá
aö vera meö kon-
unni sinni síóustu æviárin.
Þaö er ómannúólegt aö taka
þau í sundur á þennan hátt.
Halla Ósk Haraldsdóttir, aðstandandi
ára gætu ekki lengur búið saman
vegna meints heilsuhreystis annars
aðilans. Sama saga er uppi á ten-
ingnum hvað varðar föðurforelda
þeirra Höllu og Sigrúnar.
„Afi vill auðvitað fá að vera með
konunni sinni síðustu æviárin.
Það er ómannúðlegt að taka þau í
sundur á þennan hátt,“ segir Halla
Ósk. „Hinsvegar er það svo að
heilsan hans leyfir ekki að hann sé
einn heima. Við hjálpum honum
mjög mikið á hverjum einasta degi
og höfum gert í noltkur ár. þau vilja
búa saman en geta það ekki."
Pétur Magnússon, forstjóri
Hrafnistu, segir viðlíka mál hafa
komið áður upp og muni koma upp
í framtíðinni aftur þar sem hjón fái
ekki sameiginlega vist á öldrunar-
heimili sökum hraustleika annars
aðilans. „Stjórnvöld verða að sjá
vandann og gera allt sem hægt er til
að fjölga öldrunarrýmum í landinu
og komast hjá svona málurn," segir
Pétur. „Við á Hrafnistu höfum reynt
að hafa íbúðir á leigu fyrir maka ein-
staklinga nálægt Hrafnistu þannig
að við tryggjum að hjón geti verið
saman yfír daginn."
Sigrún Elín segir þessa stöðu
valda sér vanlíðan flesta daga. „Ég
sit heima grátandi, veit ekki hvern-
ig þetta fer og í hvorn fótinn ég á að
stíga og við hvern eigi að tala. Að
horfa upp á afa og sjá hann í van-
líðan heima í óvissu um framtíð
sína og geta ekki haldið í hönd konu
sinnar þegar honum hentar," segir
Sigrún. sveinn@frettabladid.is
jeep.is
QDDDDDD
FÁGUN STAÐALBÚNAÐUR
Öflugur, kraftmikill og ríkulega útbúinn
jeppi meö frábæra aksturseiginleika.
Sjálfskiptur 9 þrepa
2,2 I dísel 185 hestöfl eða 200 hestöfl
Eyðsla 5,7 L/100 km*
Verð frá 6.990.000 kr.
Komdu og reynsluaktu.
Umboðsaðili Jeep á íslandi - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433
www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16