Fréttablaðið - 10.04.2017, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 10.04.2017, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 10. APRÍL 2017 SKOÐUN • FRÉTTABLAÐIÐ 13 Hryöjuverk og kærleiksverk Sviar eru i sárum eftir árás í höfudborginni á föstudaginn. Forsætisráðherr- ann iagði blóm á árásarstaðinn á föstudagskvöld. fréttablaoið. epa í ÐAG nn hefur karlmaður sem játar einhvers konar islam ráðist á almenning í evrópsku lýðræðisríki með því að aka bíl inn í mannfjölda í því skyni að drepa eins margt fólk og hann getur. Enn einn einstaldingur, sýktur af hugmyndum, sem telur það ásættan- legan tjáningarmáta á viðhorfum sínum að aka bíl inn í mannfjölda. Þessi menn þekkjast ekki úr hinum sem eru sómakærir en varpa skugga grunsemda og tortryggni á alla þá sem líta út eins, það er að segja, eru með brúna húð og dökkt hár. Erfítt er að setja sig inn í það dauðadýrkunarkölt sem þessir menn hafa ánetjast. Kannsld halda þeir að þeir séu að drýgja einhvers konar dáð. Kannsld eru þeir að tjá andstyggð sína á lífsháttum fólks sem lifir venjulegu lífí á veraldarvísu. Menn sem tengja sig við ISIS ómaka sig eldd lengur við að réttlæta morð- æðið með þjáningum trúbræðra sinna, eins og fyrirrennarar þeirra gerðu þó. Þeir gangast fúsir við því að eini tilgangur ódæðanna sé að skapa ótta ogglundroða. Sjálfír erugerend- umir oftast nær landeyður; einrænar mannafælur sem viðra kannski skringilegar skoðanir á netinu. Þetta em menn sem eru núll og nix, em ekkert og leitast við það með ódæðisverkum sínum að verða eitthvað. En eyða sjálfum sérgjaman um leið með sjálfsmorði. Verða með öðrum orðum ekkert til að verða eitthvað. Hernaðurgegn almenningi Nútímahernaður beinist eingöngu gegn almenningi, mér og þér, sam- félagi „venjulegs fólks“. Hermenn- irnir sitja við tölvu og senda dróna með sprengjur inn á svæði þar sem fólk býr, að sögn í þvi skyni að drepa hryðjuverkamenn sem leynast innan um og saman við fólkið. Þessi dróna- hemaður er aðferð stórþjóðanna, einkum Bandaríkjamanna, ffam að Trump-stjóminni að minnsta kosti, en margt bendir til þess að Trump sé hrifnari af mannfómum úr eigin liði en fyrirrennari hans var. Önnur tegund af nútímahernaði felst í því að karlmenn fara um í hópum slitnir úr tengslum við mannlegt samfélag, ærðir af áfengi, eiturlyfjum og morðvímu og rífa niður, sprengja, eyða og drepa vamarlaust fólk í nafni þjóðemis eða trúar; við sáum slíkan óþjóðalýð í stríðinu í Júgóslavíu. Og loks em það hermennimir sem leynast inni í stór- borgunum og fara þegar minnst varir á stjá til að drepa þar sem allra flest fólk, og helst farga sér í leiðinni. Þeir starfa í nafni islam en hafa þó einkum einbeitt sér að þvi að drepa múslima. Langflest þessara ódæða em framin í löndum múslima í Afr- íku og Asíu, en þegar leikurinn berst til Evrópu vekur það meiri athygli okkar, enda nær okkur höggvið. Næst er þó höggvið múslimum í Evrópu. Hryðjuverk á borð við það sem framið var í Stokkhólmi núna bitnar svo sannarlega á vegfarendum en um leið em slíkar aðgerðir nánast eins og hernaður á hendur mús- limum í Evrópu, til þess ætlaður að koma í veg fyrir aðlögun. Lífíð á að verða óþærilegt karlmönnum með brúna húð í Evrópu - verkin beinast gegn fjölmenningu og sambúð ólíkra trúarhópa. Markmiðið er að gera sambúð kristinna manna og múslima í Evrópu óhugsanlega, sá fræjum tortryggni og haturs milli þeirra. Að bald liggja hugsjónir um einangran, hugmyndaþrengsli og hreinlíft kalífadæmi í anda miðalda með niðurnjörvuðum lífsháttum, stífum kynhlutverkum, karlveldi og virloi eftirliti klerka með hugsunarhætti og hegðun, til dæmis kynhegðun þar sem harðbannað er að laðast að eigin kyni. Óbærileg tilhugsun Þessi eftirlitshyggja, kynhlutverkas- tífnin, kvennaltúgunin, rasisminn, fáránleg boð og bönn, vandlæt- ingin í garð þeirra sem skera sig úr norminu - hatrið á fjölbreytninni og andúðin á öðmm húðlit en maður hefur sjálfúr, annarri kyn- hegðun, annarri sjálfsmynd - allt erþetta sameiginlegt í trúarbrögð- unum stóru sem við kennum við Abraham - islam, gyðingdóm og kristni - þegar þessi hugmyndakeríi em orðin trénuð og inntakslaus og þeim fýlgt afbókstafstrú. Þess vegna hljóma bókstafstrúarklerkar í Bandaríkjunum nokloxm veginn eins og múllarnir sem predika í moskum heimsins. Rasistamir hvítu á Norðurlöndum sem lcveikja í flóttamannabúðum aðhyllast ekki ólíka hugmyndafiæði og þeir sem kenna sig við islam og aka tmkltum inn í mannfjölda. Það er eiginlega óbærileg til- hugsun að árið 2017 slculi fólk vera drepið í nafni trúarbragða. I öllum þessum hugmyndakerfúm er ýmislegt sem nýtist okkur vel þegar við finnum hjá okkur þörf fyrir að tengjast alheimsvitundinni - hvort sem hún er nú til eða ekki. En trúar- brögð era líka eitt versta böl mann- kynsins. Það segir sig sjálft að öll þessi hugmyndakerfi hafa að geyma heilræði og hugarfar úr öðmm tíma og aðstæðum sem rétt er að slíta tengsl við. Annað má nota: Múslimum er kennt að mannslífið sé heilagt og það sé glæpur gegn guði að drepa fólk. Kristnir menn ganga almennt út frá því að Guð hafi gefið þeim frjálsan vilja og leggi svo mat á ffammistöðu þeirra á jörðinni á hinum efsta degi - og er þá spurt um kærleiksboðorðið fyrst og fr emst, þar sem aldrei má fara í manngreinaráliL Aldrei: og þá ætti til dæmis að vera kærleiksverk í algjörum forgangi að taka vel á móti því fólld sem er á flótta undir morðvörgunum sem kenna sig við islamskt ríki. * . ♦♦ þigá Verð f rá aðeins 2.220.000 kr, Hlokkum til að WHATCAR? theYear 2017 HEKLA • Laugavegi 170-174 • Reykjavík ■ Sími 590 5000 ■ hekla.is Höldur Akureyri ■ Bilasala Selfoss ■ Bilás Akranesi • HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is RSINS 2017 ÞINN í HEILAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.