Fréttablaðið - 10.04.2017, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 10. APRÍL 2017
SKOÐUN • FRÉTTABLAÐIÐ
13
Hryöjuverk og kærleiksverk
Sviar eru i sárum eftir árás í höfudborginni á föstudaginn. Forsætisráðherr-
ann iagði blóm á árásarstaðinn á föstudagskvöld. fréttablaoið. epa
í ÐAG
nn hefur karlmaður sem
játar einhvers konar
islam ráðist á almenning
í evrópsku lýðræðisríki
með því að aka bíl inn í
mannfjölda í því skyni að
drepa eins margt fólk og hann getur.
Enn einn einstaldingur, sýktur af
hugmyndum, sem telur það ásættan-
legan tjáningarmáta á viðhorfum
sínum að aka bíl inn í mannfjölda.
Þessi menn þekkjast ekki úr
hinum sem eru sómakærir en varpa
skugga grunsemda og tortryggni
á alla þá sem líta út eins, það er að
segja, eru með brúna húð og dökkt
hár.
Erfítt er að setja sig inn í það
dauðadýrkunarkölt sem þessir
menn hafa ánetjast. Kannsld halda
þeir að þeir séu að drýgja einhvers
konar dáð. Kannsld eru þeir að tjá
andstyggð sína á lífsháttum fólks
sem lifir venjulegu lífí á veraldarvísu.
Menn sem tengja sig við ISIS ómaka
sig eldd lengur við að réttlæta morð-
æðið með þjáningum trúbræðra
sinna, eins og fyrirrennarar þeirra
gerðu þó. Þeir gangast fúsir við því að
eini tilgangur ódæðanna sé að skapa
ótta ogglundroða. Sjálfír erugerend-
umir oftast nær landeyður; einrænar
mannafælur sem viðra kannski
skringilegar skoðanir á netinu.
Þetta em menn sem eru núll og
nix, em ekkert og leitast við það
með ódæðisverkum sínum að verða
eitthvað. En eyða sjálfum sérgjaman
um leið með sjálfsmorði. Verða með
öðrum orðum ekkert til að verða
eitthvað.
Hernaðurgegn almenningi
Nútímahernaður beinist eingöngu
gegn almenningi, mér og þér, sam-
félagi „venjulegs fólks“. Hermenn-
irnir sitja við tölvu og senda dróna
með sprengjur inn á svæði þar sem
fólk býr, að sögn í þvi skyni að drepa
hryðjuverkamenn sem leynast innan
um og saman við fólkið. Þessi dróna-
hemaður er aðferð stórþjóðanna,
einkum Bandaríkjamanna, ffam að
Trump-stjóminni að minnsta kosti,
en margt bendir til þess að Trump sé
hrifnari af mannfómum úr eigin liði
en fyrirrennari hans var.
Önnur tegund af nútímahernaði
felst í því að karlmenn fara um
í hópum slitnir úr tengslum við
mannlegt samfélag, ærðir af áfengi,
eiturlyfjum og morðvímu og rífa
niður, sprengja, eyða og drepa
vamarlaust fólk í nafni þjóðemis eða
trúar; við sáum slíkan óþjóðalýð í
stríðinu í Júgóslavíu. Og loks em það
hermennimir sem leynast inni í stór-
borgunum og fara þegar minnst varir
á stjá til að drepa þar sem allra flest
fólk, og helst farga sér í leiðinni.
Þeir starfa í nafni islam en hafa þó
einkum einbeitt sér að þvi að drepa
múslima. Langflest þessara ódæða
em framin í löndum múslima í Afr-
íku og Asíu, en þegar leikurinn berst
til Evrópu vekur það meiri athygli
okkar, enda nær okkur höggvið.
Næst er þó höggvið múslimum í
Evrópu. Hryðjuverk á borð við það
sem framið var í Stokkhólmi núna
bitnar svo sannarlega á vegfarendum
en um leið em slíkar aðgerðir nánast
eins og hernaður á hendur mús-
limum í Evrópu, til þess ætlaður að
koma í veg fyrir aðlögun. Lífíð á að
verða óþærilegt karlmönnum með
brúna húð í Evrópu - verkin beinast
gegn fjölmenningu og sambúð ólíkra
trúarhópa.
Markmiðið er að gera sambúð
kristinna manna og múslima í
Evrópu óhugsanlega, sá fræjum
tortryggni og haturs milli þeirra. Að
bald liggja hugsjónir um einangran,
hugmyndaþrengsli og hreinlíft
kalífadæmi í anda miðalda með
niðurnjörvuðum lífsháttum, stífum
kynhlutverkum, karlveldi og virloi
eftirliti klerka með hugsunarhætti
og hegðun, til dæmis kynhegðun
þar sem harðbannað er að laðast að
eigin kyni.
Óbærileg tilhugsun
Þessi eftirlitshyggja, kynhlutverkas-
tífnin, kvennaltúgunin, rasisminn,
fáránleg boð og bönn, vandlæt-
ingin í garð þeirra sem skera sig úr
norminu - hatrið á fjölbreytninni
og andúðin á öðmm húðlit en
maður hefur sjálfúr, annarri kyn-
hegðun, annarri sjálfsmynd - allt
erþetta sameiginlegt í trúarbrögð-
unum stóru sem við kennum við
Abraham - islam, gyðingdóm og
kristni - þegar þessi hugmyndakeríi
em orðin trénuð og inntakslaus
og þeim fýlgt afbókstafstrú. Þess
vegna hljóma bókstafstrúarklerkar
í Bandaríkjunum nokloxm veginn
eins og múllarnir sem predika í
moskum heimsins. Rasistamir
hvítu á Norðurlöndum sem lcveikja
í flóttamannabúðum aðhyllast ekki
ólíka hugmyndafiæði og þeir sem
kenna sig við islam og aka tmkltum
inn í mannfjölda.
Það er eiginlega óbærileg til-
hugsun að árið 2017 slculi fólk
vera drepið í nafni trúarbragða. I
öllum þessum hugmyndakerfúm er
ýmislegt sem nýtist okkur vel þegar
við finnum hjá okkur þörf fyrir að
tengjast alheimsvitundinni - hvort
sem hún er nú til eða ekki. En trúar-
brögð era líka eitt versta böl mann-
kynsins. Það segir sig sjálft að öll
þessi hugmyndakerfi hafa að geyma
heilræði og hugarfar úr öðmm
tíma og aðstæðum sem rétt er að
slíta tengsl við. Annað má nota:
Múslimum er kennt að mannslífið
sé heilagt og það sé glæpur gegn
guði að drepa fólk. Kristnir menn
ganga almennt út frá því að Guð
hafi gefið þeim frjálsan vilja og
leggi svo mat á ffammistöðu þeirra
á jörðinni á hinum efsta degi - og
er þá spurt um kærleiksboðorðið
fyrst og fr emst, þar sem aldrei má
fara í manngreinaráliL Aldrei: og þá
ætti til dæmis að vera kærleiksverk
í algjörum forgangi að taka vel á
móti því fólld sem er á flótta undir
morðvörgunum sem kenna sig við
islamskt ríki.
* . ♦♦
þigá
Verð f rá aðeins 2.220.000 kr,
Hlokkum til að
WHATCAR?
theYear
2017
HEKLA • Laugavegi 170-174 • Reykjavík ■ Sími 590 5000 ■ hekla.is
Höldur Akureyri ■ Bilasala Selfoss ■ Bilás Akranesi • HEKLA Reykjanesbæ
www.skoda.is
RSINS 2017
ÞINN í HEILAN