Fréttablaðið - 10.04.2017, Page 10
10
FRÉTTIR • FRÉTTABLAÐIÐ
10. APRÍL 2017 MÁNUDAGUR
Foreldrar Birnu krefjast
tugmilljóna miskabóta
dómsmáL Foreldrar Birnu Brjáns-
dóttur krefjast samtals rúmlega 21
milljóna ltróna í miskabætur frá
Thomasi Möller Olsen sem ákærður
hefur verið fyrir að hafa myrt Birnu
Brjánsdóttur. Að auki er þess krafist
að Thomas greiði 767 þúsund krón-
ur fyrir útfararkostnað og jafnframt
að hann greiði málskostnað.
Ákæra gegn Thomasi verður
þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í
dag. Hann er grunaður um að hafa
veist að Birnu í Kia Rio-bifreið sem
lagt var nálægt flotkví við enda
hafnarkantsins í Hafnarfjarðar-
höfn, og/eða á öðrum óþekktum
stað, og slegið hana ítrekað í andlit
og höfuð, tekið hana kverkataki og
hert kröftuglega að hálsi hennar og
í framhaldi varpað Birnu í sjó eða
vatn með þeim afleiðingum að hún
drukknaði.
Þá er Thomasi Möller einnig gert
að sök að hafa haft í káetu sinni í
fiskveiðiskipinu Polar Nanoq rúm
23 kíló af kannabisefnum sem hann
Ákæra gegn Thomas Möller verður
þingfest I dag. fréttablaðið/eyþór
hugðist flytja til Grænlands í ágóða-
skyni.
Thomas hefur hingað til neitað að
hafa orðið valdur að dauða Birnu en
viðurkennt smyglið. - jhh
Landsig vid jaröhita-
virkjanir vekur athygli
Eldgos og jaröskjálftar skilja eftir sig mikil ummerld. Þaö gerir landnýting
manna einnig en landsig viö jaröhitavirkjanir sýnir þaö best. Vatnajökull rís og
skýrist bæöi af þynningu hans og vegna kvikusöfnunar undir honum.
Þrjú teymi mældu 150 punkta auk mæligagna frá um 100 föstum mælistöðv-
um. Cæslan aðstoðaði þar sem þess þurfti með. myno/landmælincar íslands
vÍsindi Endurmæling Landmæl-
inga íslands (LÍ) sumarið 2016 á
landshnitakerfi íslands leiddi í ljós
ummerki eldgosa og jarðskjálfta, en
jafnframt eru áhrif af landnýtingu
manna eins og í kringum jarðhita-
virkjanir eftirtektarverð.
Landshnitakerfið hefur verið
mælt tvisvar áður með GPS-tækni,
fyrst árið 1993 og svo aftur árið
2004, en frá verkefninu segir i nýj-
ustu ársskýrslu LÍ.
Guðmundur Valsson, mælinga-
verkfræðingur hjá LÍ, bendir á að
frumniðurstöður mælinganna lágu
fyrir í lok desember; landið rekur
í sundur með mjög jöfnum hraða
eða um einn sentimetra á ári í hvora
átt - nokkuð sem lengi hefur verið
vitað. Landshnitakerfið hefur verið
mælt tvisvar áður með GPS-tækni,
fyrst árið 1993 og svo aftur árið
2004 og frá síðustu mælingu má sjá
hvar mest hefur gengið á í náttúru
íslands. Hreyfingar í kringum upp-
tök Suðurlandsskjálftanna 2008 eru
til dæmis allt aðrar en víðast hvar
annars staðar á landinu.
„Þetta voru 40 sentimetrar sem
gliðnunin varð í skjálftunum á
milli Selfoss og Hveragerðis," segir
Guðmundur en hreyfingar norðan
Vatnajökuls skera sig nokkuð úr við
mælingarnar nú, en þar má merkja
áhrifeldgossins í Holuhrauni 2014-
2015. Má nefna gliðnun upp á 60
sentimetra við Kverkfjöll en tals-
verðar hæðarbreytingar hafa einnig
orðið á þessu 12 ára tímabili á milli
mælinga.
Þar má m.a. nefna ris á Vatna-
jökli og umhverfis hann og má leiða
líkur að því að þar séu að koma fram
áhrif þynningar jökulsins en einn-
ig aukinnar kvikumyndunar undir
honum. Mest mældist risið í Jökul-
heimum eða um 40 sentimetrar. Til
Áratugur líóur milli
mælinga
• Landshnitakerfið er grunn-
kerfi i öllum nákvæmum
mælingum á landinu.
• Það er notað t.d. við fram-
kvæmdir, nákvæma kortagerð
eða vöktun eldfjalla.
• Mældir voru um 150 punktar
sérstaklega. Auk þess voru
notuð mæligögn frá um 100
föstum mælistöðvum.
• Landshnitakerfið hefur verið
mælt tvisvar áður með GPS-
tækni, fyrst árið 1993 og svo
aftur árið 2004.
samanburðar var risið þar á tímabil-
inu 1993 til 2004 helmingi minna.
„Það sem er merkilegt er að það
virðist vera mikið landris í og við
Vatnajökul almennt - sést það
greinilega við Svlnafell í Öræfum og
nálægt Hala í Suðursveit, svo dæmi
sé tekið," segir Guðmundur sem
segir jafnframt áhugavert að skoða
mikið landsig í kringum helstu jarð-
hitavirkjanir landsins - bæði við
Hellisheiðarvirkjun og á Reykjanesi
- en þar nemur sigið einum senti-
metra á ári, eða 18 sentimetra síðan
2004 þegar það mældist mest.
„Ég skoðaði mælingar sem Orku-
stofnun gerði í kringum árið 2000
og þá var ekki þetta sig, sýndist mér.
Það verður athyglisvert hvað gerist í
Þeistareykjum eftir að vinnsla hefst
þar, við erum með mælipunkt þar
nálægt svo það er nærtælct."
Hæðarbreytingar meðfram
ströndinni vöktu einnig athygli vís-
indamanna, þar sem þærgeta ýmist
unnið með eða gegn áhrifum hækk-
andi sjávarborðs, en þær eru greini-
legastar á Reykjanesi.
svavar@frettabladid.is
TIL afgreiðslu STRAX!
ALVORU
ATVINNUBÍLL
Dacia Dokker
VERÐ: 2.340.000 Kr.
VERÐ ÁN VSK: 1.887.096 Kr.
Dacia Dokker er einn hagkvæmasti kosturinn sem í boði
er fyrir þá sem leita að litlum sendibíl. Dacia Dokker er
með 1,51,90 hestafla díslivél sem notar einungis 4,51 í
blönduðum akstri*. Dacia bílarnir hafa komið einskalega
vel út hvað varðar áreiðanleika í rekstri.
GE bilar Bilasalan Bílás
• Reykjanesbæ Akranesi
www.gebilar.iswww.bilas.is
420 0400 431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
wwW.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IBehf. BL söluumboð
Selfossi Vestmannaeyjum
www.ib.is 481 1313
480 8080 862 2516
BLehf
Sævarhöfða 2/110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is