Fréttablaðið - 10.04.2017, Page 12
10. APRÍL 2017 MÁNUDAGUR
Q
5
Ekki aftur
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Þad er nefni-
lega hlutverk
listarinnar að
ganga gegn
vaidi, hvort
sem það ér til
staðar í krafti
pcninga eöa
pólitikur, og
ef listlngerir
það ekki cr
hætt við að
illa fari.
að sem við munum og það sem við munum
ekki er og verður víst alltaf okkar. Þann-
ig virðist Valgerður Sverrisdóttir ekki
muna almennilega eftir aðkomu sinni að
einkavæöingu bankanna frá ráðherratið
sinni, þó svo það teljist líklega til stærri
viðburða á hennar starfsferli. Seinna átti svo einka-
væöing bankanna eftir að hafa í för með sér skelíilegar
afleiðingar sem byrjuðu að koma í Ijós þegar Geir H.
Haarde bað guð að blessa Island og þess vegna viljum
við vita hvemig hlutimir gerðust Skoða söguna til þess
að geta lært af henni.
En ef það fólk sem mótaði upphaf þessarar sögu,
skrifaði uppkastið ef svo má segja, ýmist man hana ekki
eða hefúr lítinn sem engan áhuga á slíkri söguskoðun
þá er það miður. Það ætti þó alls ekld að þýða að við
hin getum ekki rifjað upp og reynt að læra af liðinni
tíð. Þegar minnið brestur höfúm við ýmsar leiðir til
að skoða sögu okkar og samfélag. Ein mildlvægasta
leiðin til þess er í gegnum listina í sínum margbreyti-
legu myndum. Listræn tjáning á því sem við höfúm séð
og sjáum í kringum okkur ftá degi til dags. Auðvitað
er þetta ekki eina hlutverk listarinnar en þó eitt af
mörgum.
Það er margt í samfélagi samtímans sem er farið
að minna ansi mikið á þá stemningu sem hér ríkti á
árunum fyrir hrun og Iistin virðist ekki vera undan-
skilin þessu. í því samhengi nægir að líta m.a. til þess
að Gamma er aðalstyrktaraðili Sinfóniuhljómsveitar
íslands og Hins íslenska bókmenntafélags, Borgar-
leikhúsið endumýjaði nýverið samstarfsamning við
Valitor, Reykjavílturborg og Grandi vinna saman að því
að byggja upp listina í Marshallhúsinu og þannig mættí
áfram telja. Líkast til er þetta einlcum til marlcs um
hversu undirfjármagnaðar listir em á íslandi en þetta
hlýtur samt að hreyfa við minninu hjá einhverjum.
Minna okkur á þá tíma þegar listir og fjármálalíf virtust
dansa hér einn allsherjar hrunadans hinu margum-
rædda góðæri til lofs og dýrðar. Nú gætí reynt á að bæði
muna, vilja muna og læra af reynslunni.
Það er ekki endilega svo að listin eigi alls ekki að
þiggja eitt né neitt af atvinnulífi. Að í því felist einhver
dauðadómur yfir sjálfstæði listamanna og möguleikum
til þess að leggja til atlögu við hvaða efnivið sem er. En
allt getur þetta haft áhrif og ekki síst í litlu samfélagi þar
sem möguleikar listamanna til afkomu era mun tak-
markaðri en í stærri samfélögum. Þetta getur óneitan-
lega leitt til ákveðins afkomuótta og það er eðlilegt við
þessar aðstæður en að sama skapi ekki ásættanlegL Það
er nefnilega hlutverk listarinnar að ganga gegn valdi,
hvort sem það er til staðar í loaftí peninga eða pólitíkur,
og ef listin gerir það ekki er hætt við að illa fari. Það
gerði það síðast og það getur hæglega gert það aftur.
Þjóð sem situr uppi með gleymna stjómmála- og
peningamenn má búast við því að illa fari ef hún
gætir ekki að sér. Ein mikilvægasta leiðin til þess að
koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig er að styðja vel
við listsköpun í landinu og gera jafúframt þá kröfú til
listarinnar að hún veiti valdinu aðhald. Án þess er hætt
við að illa fari - aftur.
HAFtS:
+ Jji
íslenskur ís með ítalskri hefð
Komdu og fáðu rjómaís og laktósafrían vegan ís
Bæjarhrauni 2 | Hafnarfirði | Sími: 4370000 | hafis@hafis.is
Halldór
Frá degi til dags
Taktlausir ráðherrar
Sitjandi rikisstjóm hefur á
köflum gengið illa að ganga í takt.
Athygli vakti á dögunum þegar
fjármálaráðherrann lýsti þvf yfir í
erlendum fjöimiðlum að i skoðun
væri að festa gengi krónunnar við
evru. Forsætisráðherra svaraði
frænda sínum fullum hálsi á
sama vettvangi að hann teldi
slíkt óráðlegt í gær var sagt frá
þvi að utanríkisráðherra ætli að
fúnda með breskum starfsbróður
sínum til að styrkja bönd íslands
við Breta. Er það broslegt i Ijósi
ummæla fjármálaráðherra. Orðin
Samfylking og áramótaskaup
koma upp í hugann.
Litla gula hænan
Á dögunum líkti stjómmála-
fræðiprófessorinn Eiríkur
Bergmann Sjálfstæðisflokknum
við hákarl sem æti upp fýlgi
samstarfsflokkanna. Flokkurinn
stærði sig af góðum málum en
skildi makkerinn eftir með
Svarta-Péturinn. Þegar Viðreisn
vann að því að koma undir sig
fótunum kynnti flokkurinn jafti-
launavottunarfrumvarpið sem
átti að vera fyrsta mál flokksins
inn á gólf þingsins. Nú er hægt
að fylgjast með forsætisráðherra
fara mikinn og stæra sig af málinu
á erlendri grund meöan flokks-
systkin hans tala gegn þvi. Fróð-
legt verður að sjá hvort Viðreisn
bjóði Sjálfstæðisflokknum bita af
brauðinu sem flokkurinn bakaöi
eða sleppi því að gefa með sér.
johannoli@frettabladid.is
Sókn fyrir velferöina
Katrín
fakobsdóttir
formaður
Vinstri grænna
Á ísiandi ciga
ríkustu tiu
prósentin
uni 70% alls
auðs. Rik-
ustu tuttugu
prósentin
elga um 90%
alls auðs á
landinu.
fjármálaáætlun til næstu fimm ára era lagöar línur
um hvemig á að afla tekna og hvernig á að ráðstafa
fjármunum hins opinbera. I þeirri umræðu er mikil-
vægt að hafa í huga að rikissjóður er ekki einungis efna-
hagsreikningur sem þarf að stemma af. Hann á að standa
undir því samfélagi sem við viljum byggja. Það skiptir máli
hvemig við fjármögnum þennan sama ríldssjóð og í hvaða
verkefni hann er nýttur.
Á íslandi eiga ríkustu tíu prósentin um 70% alls auðs.
Ríkustu tuttugu prósentín eiga um 90% alls auðs á land-
inu. Stjómvöldum ber skylda að takast á við þessa ójafn-
aðarþróun, tryggja aukinn jöfnuð og fjármögnun nauð-
synlegra samfélagslegra verkefna sem snúast bæöi um
jöfúuð og velferð.
Það er þörf á að því aö efla hið opinbera heilbrigðiskerfi
og menntakerfi; einnig þarf aö bæta kjör öryrkja og aldr-
aðra og byggja upp margs konar innviði, Ld. samgöngur og
ferðamannastaöi. Til þess aö gera þetta þarf að afla tekna
með réttlátum hætti sem er þvert á þessa öfgakenndu
þróun í átt til ójafnaðar. Því miður hefur þróun skatt-
byrðinnar verið öfúg á síðustu árum þar sem skattbyrðin
á þá telcjuhæstu heíúr minnkað en þyngst á aðra hópa.
Ný fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar stendur ekki
undir þeim væntíngum sem gefhar voru fyrir kosningar.
í henni er skattlagningu stillt upp sem andstæöu frelsis
og flúið frá loforðum á ólíkum málefnasviðum. Þar má
nefna stefnumótun Vísinda- og tækniráðs um framlög til
háskóla, áætlanir um að efla framhaldsskólana þrátt fyrir
styttingu, samgönguáætlun og samþykkt þingsins um
iippbyggingu Náttúruminjasafns. Eldd er heldur komið
til móts við áskorun meira en 86 þúsund íslendinga um
að framlög tíl heilbrigðismála verði aukin sem hlutfall af
vergri landsframleiðslu.
Allar þessar ákvarðanir eru rammpólitíslcar og snúast
um hvemig samfélag við viljum byggja og hvemig sú upp-
byggmg er fjármögnuð. Þar er stefna okkar Vinstri-grænna
alveg skýr og sú sama nú og fyrir kosningan Tekjustofúa
rikisins má styrkja með réttlátum hætti og hefja sókn til
raunverulegrar uppbyggingar samfélagsins. Slík sókn er
nauðsynleg fyrir íslenskt samfélag en í hana verður ekki
ráðist undir forystu þessarar ríkisstjómar.
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 midlarehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar ÞórSverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefania Pálmadóttir ÚTGEFANDIOG AÐALRITSTJÓRI: Kristin Þorsteinsdðttirkristln0frettabladid.is
adstoðarritstjOrar: Andri ólafssonandri@ifrettabladid.is. Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.ís, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út i90.000 eintökum oger dreift ókeypis á heimili á höfuöborgarsvæðinu ogAkureyri.
Einnig er hægt að fá blaOlð I völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskllur sér rétttil að birta allt efni blaðsins I stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlið 24,105 Reyklavik Simi- 512 5000
ntstiorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveínsson tinnl@365.is HELGARBLAÐ: Kristjana BjörgGuðbrandsdðttirkrist/onobjorgfffrettoblod/d/s MARKAÐURINN:HðrðurÆgissonhordur«ifretMbtod/d./s IMENN/NG:MagnúsCuðmundsson
magnus@frettabladid.is LlFIÐ: Guðný Hrönn Antonsdóttirgudnyhronn@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Vilheím Gunnarsson vllli@365.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Arnason sfa@frettabiadid.is