Fréttablaðið - 10.04.2017, Qupperneq 16
9
10. APRÍL 2017 MÁNUDAGUR
Gieðin var við völd hjá Stjörnustúlkum er þær fengu afhentan deildarmeistarabikarinn eftir magnaðan sigur á Fram í Safamýrinni. fréttablaðíð/andri
Viö erum eldd orönar saddar
Stjarnan er deildarmeistari kvenna í handbolta eftir magnaöan sex marka sigur á Fram. Garöbæingar eru
því búnir aö vinna tvo stóra titla í vetur en Stjörnustúlkur eru eldd hættar og ætla sér meira.
Helena sækir hér að marki Fram um helgina. fréttablaðið/andri
HANDBOLTI Fram var í kjörstöðu fyrir
leikinn gegn Stjömunni um helgina.
Tveim stigum á undan og mátti tapa
leiknum með fjórum mörkum og
jafnvel fimm. Stjörnustúlkur vissu
alveg hvað þær þurftu að gera og
unnu leikinn með sex marka mun,
21-27, og tryggðu sér deildarmeistara-
titilinn með stæl.
Helena Rut Örvarsdóttir skoraði
markið mikilvæga undir loldn en hún
fór á kostum í leiknum og skoraði níu
mörk
Einn okkar besti leikur
„Þetta var mjög góður leikur og einn
sá besti h já okkur í vetur. Mér leið vel
alla vikuna og var ldár í þennan slag.
Við ætluðum okkur alltaf að ná þessu
og það gekk sem betur fer eftir," segir
Helena Rut en Stjörnustúlkur byrjuðu
leildnn af krafti og leiddu með fimm
mörkum í hálfleik.
„Vió náðum að halda forskotinu
út allan leikinn. Misstum bara niður
í fjögur en komumst svo upp í sex.
Fram fékk lokasóknina en mér fannst
það ekkert standa tæptfrekar en allan
leikinn. Vömin hélt vel allan tímann
og stelpurnar í markinu mjög góðar
fyrir aftan. Það var svo ljúft að sjá
boltann liggja í netinu hjá mér í lolca-
markinu."
Stjarnan varð með þessum sigri
tvöfaldur meistari í vetur en þær
unnu einnig bikarkeppnina fyrr í
vetur. Liðið er þó ekki búið að fá
nóg. „Við erum ekki orðnar saddar
og ætlum okkur alla Ieið. Ég hef ekki
enn unnið fslandsmeistaratitilinn.
Hann er einn eftir og ég stefni á að fá
hann núna. Við erum allar staðráðnar
í að taka þennan titil,“ segir skyttan
sterka en hvað gerir þetta Stjömulið
svonagott?
Mikil breidd
„Við emm með rosalega góðan mann-
skap og milda breidd. Eigum tvo ffá-
bæra markverði. Vömin hefúr verið
góð og liðið hefur bætt sig jafnt og
þétt í allan vetur. Breiddin er sterk og
ef einhver finnur sig ekki þá er alltaf
einhver önnur góð ldár í að koma af
bekknum."
Stjaman mætir Gróttu í undanúr-
slitunum á meðan Fram spilar við
Hauka. Stjarnan er búin að tapa fyrir
Gróttunni tvö ár i röð í úrslitum
íslandsmótsins og er búið að tapa
úrslitaeinvíginu fjögur ár í röð. Það á
ekki að koma fyrir aftur.
Nóg af silfri
„Ég er mjög spennt fyrir því að mæta
Gróttu og við eigum heldur betur
harma að hefna gegn þeim. Ég eigin-
lega get ekki beðið yfir páskana eftir
að byrja. Ég held að þetta verði jafnt
og spennandi einvígi. Þessi síðustu
tvö ár sitja í oklcur. Við erum vel
stemmdar og ákveðnar í að komast
áfram," segir Helena en Stjarnan og
Fram vom yfirburðalið í deildinni í
vetur. Flestir spá þar af leiðandi þeim
í úrslitum en Helena segir að það sé
ekkertgefið.
„Úrslitakeppnin er allt annað mót
og allt öðruvísi. Stjaman og Fram hafa
samt sýnt sinn styrkleika en Fram
hefur tapaö gegn Haukum og við
gegn Gróttu. Þau eiga því séns í þessi
einvígi. Grótta nær alltaf góðum leik
gegn okkur og ég á því von á mjög erf-
iðum leikjum. Eftir fjögur silfur í röð
kemur samt ekkert annað til greina
hjáokkurengull."
Festa sig í sessi með landsliðinu
Helena Rut hefúr sífellt verið að bæta
sinn leik og er lykilmaður í Stjömu-
liðinu. Hún skoraði 112 mörk í
deildinni og var markahæst Stjömu-
kvenna.
„Ég hef náð að bæta mig í ár sem
er alltaf stefhan. Ég hef bætt leikskiln-
inginn og er skynsamari í sókninni en
áður. Ég er orðin fjölhæfari ogfarin að
opna betur fyrir hinar í kringum mig,“
segir Helena en hún ætlar að festa sig
í sessi með landsliðinu.
„Ég fékk tækifæri í síðasta lands-
liðsverkefni og það gekk ágætlega.
Vonandi fæ ég fleiri tældfæri þar. Ég
stefni alltaf lengra og langar að ná
langt í íþróttinni. Vonandi næ ég að
festa mig í sessi þar eftir að hafa verið
inn og út úr hópnum."
Ef skyttan heldur áfram á sömu
braut þá hljóta erlend lið að fara að
banka á dyrnar.
„Það væri gaman að komast út.
Ég ætla samt fyrst að vinna íslands-
meistaratitilinn áður en ég reyni það.
Vonandi gerist það í ár. Draumurinn
er að komast út einhvern tímann. Mér
líður samt vel í Stjörnunni og er ekki
að hugsa um neitt annað en að vinna
íslandsmeistaratitilinn núna.“
henry@frettabiadid.is
Hamilton fagnar. nordicphoto/Getty
Hamilton var
fyrstur í mark
Fi Önnur keppni ársins í Formúlu
1-kappakstrinum fórfram í Kína um
helgina. Bretinn Lewis Hamilton á
Mercedes varð fyrstur í mark eftir að
hafa leitt frá upphafi.
Sebastian Vettel kom annar í
mark á Ferrari-bíl sínum og Red
Bull-ökumaðurinn, Max Verstap-
pen, varð þriðji að þessu sinni.
Hamilton og Vettel eru því efstir og
jafnir í keppni ölcuþóra eftir fyrstu
mótin. Verstappen er þriðji.
Miðað við byrjun keppnistíma-
bilsins þá stefnir í mikið einvígi á
milli Hamilton og Vettel.
„Ég er gríðarlega spenntur fyrir
framhaldinu því þessi barátta við
Ferrari er raunveruleg. Þetta verður
gaman," sagði Hamilton og er
greinilega hæstánægður með mót-
spyrnuna frá Ferrari-mönnum.
Vettel var noklcuð sáttur en sagð-
ist hafa verið óheppinn er öryggis-
bíllinn lokaði hann inni og setti
hann í pakkann í stað þess að geta
ekið Hamilton uppi.
„Eftir að ég losnaði úr lestinni
náði ég að gera þetta spennandi
og efhlutirnir hefðu þróast aðeins
öðruvísi hefði éggetað veitt Hamil-
ton enn meiri keppni. Það kemur,"
sagði Vettel.