Fréttablaðið - 10.04.2017, Page 18
18
• FRÉTTABLAÐIÐ
10. APRÍL 2017 MÁNUDAGUR
«Promicr
Leogue
Enska úrvalsdeiklin
Sunderland - Man. Utd 0-3
0-1 Zlatan Ibrahimovic (30.), 0-2 Henrikh
Mkhitaryan (46.), 0-3 Marcus Rashford (89.).
Everton - Leicester 4-2
1-0 Tom Davies (1.), 1-1 Islam Slimani (4.),
1-2 Marc Albrighton (10.), 2-2 Romelu Lu-
kaku (23.), 3-2 Phil Jagielka (41.), 4-2 Romelu
Lukaku (57.).
Tottenham - Watford 4-0
1-0 Dele Alli (33.), 2-0 Eric Dier (39.), 3-0
Heung-Min Son (44.), 4-0 Heung-Min Son
(55.).
Man. City- Hull City 3-1
1-0 Ahmed El Mohamady, sjm (31.), 2-0
Sergio Aguero (48.), 3-0 Fabian Delph (64.),
3-1 Andrea Ranocchia (85.).
Middlesbr. - Burnley 0-0
Stoke - Liverpool 1-2 1-0 Jonathan Walters (44.), 1-1 Philippe Coutinho (70.), 1-2 Roberto Firmino (72.).
WBA - Southampton 0-1 Jordy Clasie (25.). 0-1
West Ham - Swansea 1-0 Chekhou Kouyate (44.). 1-0
Bournem.-Chelsea 1-3
0-1 Adam Smith, sjm (17.), 0-2 Eden Hazard
(20.), 1-2 Joshua King (42.), 1-3 Marcos
Alonso (68.).
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmem
Staóan FÉLAC L U J T MÖRK S
Chelsea 31 24 3 4 65-25 75
Tottenham 31 20 8 3 64-22 68
Liverpool 32 18 9 5 68-40 63
Man. City 31 18 7 6 60-35 61
Man.Utd. 30 15 12 3 46-24 57
Arsenal 29 16 6 7 61-36 54
Everton 33 15 9 8 57-36 54
WBA 32 12 8 12 39-41 44
Southamp. 30 11 7 12 37-37 40
Watford 31 10 7 14 36-52 37
Leicester 30 10 6 14 37-47 36
Burnley 32 10 6 16 32-44 36
Stoke 32 9 9 14 34-47 36
West Ham 32 10 6 16 42-57 36
Bournem. 32 9 8 15 45-59 35
Crystal P. 30 9 4 17 39-50 31
HullCity 32 8 6 18 33-64 30
Swansea 32 8 4 20 37-67 28
Middlesbr. 31 4 12 15 22-37 24
Sunderland 30 5 5 20 24-53 20
Okkar menn
íslendingar í efstu tveimur
deildunum i Englandi
Swansea City
Gylfi Þór Sigurðsson
Var sem fyrr í byrjunarliði
Swansea sem tapaði gegn
West Ham. Swansea er i
erfiðum málum ogífallsæti.
Burnley
Jóhann BergGuðm.
Er meiddur og kom þvi
ekki við sögu er Burnley
gerði markalaust jafntefli
gegn Middlesbrough.
Cardiff City
Aron Einar Cunnarsson
Var í byrjunarliði Cardiff
og lék allan leikinn er liðið
vann Brentford, 2-1.
Wolverhampton Wanderers
ión Daði Böðvarsson
Skoraði sittfyrsta mark
síðan í ágúst en það dugði
ekki til sigurs. 3-1 tap.
Fulham
Ragnar Sigurðsson
Var ekki íTeikmannahópi
Fulhamerliðiðvann3-1
sigurá Ipswich.
Bristol City
Hörður B. Magnússon
Satá bekknum 190
mínútur er Bristol vann
Wolves.
Tom Davies kom Everton yfir eftir aðeins 31 sekúndu gegn Leicester sem. Enginn skorað jafnsnemma leiksí ensku úrvalsdeildinni í vetur. nordicphoto getty
Ævintýri Shakespeare á enda
Öll góð ævintýri veröa einhvern tímann að enda og ótrúleg byrjun Leicester City undir stjórn Craig Shake-
speare endaði á Goodison Park í gær. Everton tapar ekki leik á heimavelli og vann þann sjöunda í röð.
Leikri
clU.U
Romelu Lukaku getur ekki hætt að
skora og skoraði tvö mörk er Ever-
ton stöðvaði sigurgöngu Leicester
City. Það sem meira er þá var
þetta sjöundi heimasigur Everton
(röð.
Lukaku er langmarkahæstur í ensku
úrvalsdeildinni með 23 mörk. Þremur
mörkum meira en Harry Kane hjá
Tottenham sem er næstmarkahæstur.
Ein magnaðasta tölfræðin hjá Lukaku
í vetur er sú staðreynd að hann er búinn
að skora marki meira en allt lið Midd-
lesbrough í vetur. Lukaku er búinn að
skora fleiri mörk á þessu ári en fimm lið í
deildinni. Rosalegt. Hann hefur þess utan
komið að 51 prósent allra marka Everton
á leiktíðinni. Það verður ekki auðvelt fyrir
Everton að halda framherjanum sem
sjálfur vill komastannað.
FórBoœ Leicester City var búið að
vinna alla sex leiki sína undir stjóm
Craig Shakespeare. Goodison Park
var aftur á móti hindrunin sem Lei-
cester komst ekki yfir.
Fyrri hálfleikurinn var ótrúleg
skemmtun þar sem fýrsta markið
kom á fyrstu mínútu. Það mark
skoruðu heimamenn en það virtist
eingöngu kveikja neistann hjá Lei-
cester.
Markaveisla
Meistararnir svöruðu nefnilega
með tveimur mörkum á sex mín-
útna kafla og komust yfir. Sveinar
Shakespeare voru þó ekki lengi í
paradís því Everton var komið í 3-2
fyrir hlé. Ótrúlegur hálfleikur.
Markahæsti leikmaður deildar-
innar, Romelu Lukaku, afgreiddi
síðan leikinn með sínu 23 marki í
deildinni í vetur í síðari hálfleik.
Þessi sigur Everton var ekki síður
merkilegur fyrir þær sakir að þetta
var sjöundi heimaleikurinn í röð
sem liðið vinnur.
„Við stóðum okkur mjög vel og
þurfum að gera það sama er við
spilum útileiki," sagði tveggja marka
maðurinn, Romelu Lukaku.
Vill berjast við Man. Utd
„Við viljum berjast um sætin við
Man. Utd og Arsenal. Þá verðum
við að vinna fleiri leiki og ekki bara
heimaleiki. Það var gott að spila
með Ross Barkley í dag og hann bjó
mikið til fyrir mig. Vonandi heldur
þetta áfram hjá okkur.“
Þau voru þung og leiðinleg skrefin
hjá Shakespeare eftir leikinn enda
Stóru málin
eftír helgina í enska boltanum
Stærstu úrslltin
Sigur West Ham á Swansea var
griðarlega mikilvægur. Kemur
liðinu frá fallsvæðinu en skilur
að sama skapi Swansea eftir í
mjög erfiðum málum. Menn geta •
aðeins andað léttar hjá West Ham
núna.
Hvað kom á óvart?
Það var fátt sem kom á óvart
þessa helgina fyrir utan að
Marouane Fellaini var gerður að
fyrirliða Man. Utd. I fyrsta skipti á
ferlinum þarsem hann erfyrirliði.
Fullt af fólki út um allan heim er
enn að klóra sér i hausnum yfir
þessari ákvörðun Jose Mourinho,
stjóra Man. Utd.
Mestu vonbrigðin
Sunderland getur ekkert þessa
dagana og hefur ekki skorað mark
í yfir tíu klukkutíma. Hver getur
kveikt neistann þar er erfitt að
segja til um.
alltaf ömurlegt er sigurhrina tekur
enda. Ekki heldur besti undirbún-
ingurinn fyrir Meistaradeildarleik-
inn gegn Atletico Madrid í vilcunni.
„Þaö eru erfiðir leikir fram undan
þannig að við megum ekki dvelja
við þennan leik of lengi," sagði
Shakespeare eftir leildnn.
„Ég var mjög ósáttur viö hvernig
við hófum þennan leik en sýndum
karakter meö því að koma til baka.
Það var samt svekkjandi að tapa
leiknum að lokum á föstum leikat-
riðum. Við ræddum saman eftir leik-
inn og vitum að við verðum að vera
grimmari í föstu leikatriðunum."
Elskar þessa stráka
Shakespeare hristi aðeins upp
í byrjunarliðinu fyrir Ieikinn en
vildi ekki meina að það hafi lcomið
niður á leik liðsins. Hann elskar sína
drengi og hefur endalausa trú.
„Mér fannst það ekki trufla takt-
inn í leik liðsins. Við erum með
sterkan hóp og ég hef mikla trú
á öllum okkar leikmönnum. Viö
reyndum að vinna og verðum bara
að sætta okkur við að það gekk
ekki upp. Mér finnst ég hafa náð
að setja mitt mark á liðið síðan ég
tók viö stjórnartaumunum. Þetta
er einstakur hópur leikmanna sem
ég fæ aö vinna með og ég hef aldrei
unnið með drengjum sem hafa eins
gott viðhorf og strákarnir í þessu
liði. Ég er afar stoltur af þeim öllum
saman." henry@frettabladid.is