Fréttablaðið - 10.04.2017, Side 20
Merkisatburöir
837 Haley hala-
stjarnan flaug framhjá
jörðinni í um 5,1 millj-
ón kílómetra flarlægð.
Hún hafði og hefur
aldrei verið svo nærri
plánetunni.
1656FeðgarnirJón
Jónsson eldri ogJón
Jónsson yngri.frá
Kirkjubóli í Skutuls-
firði, voru brenndir
á báli fyrir galdra
eftir kæru síra Jóns
Magnússonará Eyri.
1710 Fyrstu lög sem
varða höfundarrétt
tóku gildi í Bretlandi.
1815 Eldgos hófst
ífjallinuTambora
á Indónesiu. Cosið
hófstmeð hvelli, sem
heyrðist í 2.000 kílómetra f|arlægð, og stóð yfir i þrjá
mánuði. Minnst 71.000 fórust vegna gossins ogafleiðingar
þess mátti merkja í loftslagi næstu tvö árin.
1870 Vladimir Lenín fæddist.
1886 Magnús Stephensen skipaður landshöfðingi.
1912 Titanic leggur upp í jómfrúarsiglingu sína frá Sout-
hampton. Skipið náði aldrei á leiðarenda en það sökk eftir
að hafa siglt á ísjaka fimm dögum síðar. Af 2.224 um borð
fórust 1.514.
1925 The Great Gatsby eftir F. Scott Fitzgerald kom út
fyrsta sinni.
1933 Togarinn Skúli fógeti strandaði skammt frá Grindavík.
Meðlimir Þorbjörns í Grindavík björguðu 24 mönnum með
fluglínutækjum. Tólf höfðu farist áður en björgunarmenn
barað strandstað.
1940Alþingi fól rikisstjórninni konungsvald eftirað Þjóð-
verjar hernámu Danmörk.
1957 Súez-skurðurinn opnar á ný eftir að umferð um hann
hafði verið stöðvuð í þrjá mánuði.
1962 Stuart Stutcliffe, fyrri bassaleikari Bítlanna, lést aðeins
21 árs að aldri. Hann hafði fengið slagæðargúlp í heila.
1970 Paul McCartney sagði skilið við Bítlana.
Lenín fæddist þennan dag
+
Ástkærfaðirokkarogafi,
Gunnlaugur Gunnlaugsson
Ólafsfirði,
verður jarðsunginn frá
Ólafsflarðarkirkju miðvikudaginn
12 apríl kl. 14.00.
BirkirGunnlaugsson
Ágústa Gunnlaugsdóttir
Dalla Gunnlaugsdóttir
og barnabörn.
+
Föðursystirokkar,
Rannveig Magnúsdóttir
frá Völium á Kjalarnesi,
Sléttuvegi 13,
andaðist á Vífilsstöðum 27. mars.
verðurjarðsunginfrá Lágafellskirkju
miðvikudaginn 12. apríl kl. 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Grensáskirkju
eða liknarfélög.
Jóhann Ólafsson
Sigrún Ólafsdóttir
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangió
timamot@365.is.
Auglýsingar á aö senda á auglysingar@frettabladid.is
eöa hringja í síma 512 5000.
T mmsgsm
Svanur í hópi nemenda sem sátu siðustu kennslustund hans. Þær eru orðnar ansi margar enda kenndi Svanur i tæp 44 ár og kom að
stofnun stjórnmálafræðideildarinnar. mynd/tómas cudjónsson
Aldrei ásakaöur um aö
halda uppi áróöri í tímum
Tæplega hálfrar aldar ferli dr. Svans Kristjánssonar sem háskólakennari lauk í liðinni
viku. Nemendur síöustu kennslustundar heiðruðu lærimeistara sinn á tímamótunum.
Prófessorinn segir að á ferlinum hafí hann reynt eftir fremsta megni aö vera fyrirmynd.
að er ekki hægt að lýsa því
á annan veg en að ég hafi
verið hrærður," segir stjórn-
málafræðiprófessorinn
Svanur Kristjánsson. Síðasta
kennslustund Svans var í
liðinni vilcu en nemendur hans mættu
með konfekt, blóm og bakkelsi í tilefni
af tímamótunum.
Ferill Svans sem kennari spannar hátt
í hálfa öld. Hann nam stjórnmálafræði
vestanhafs í Bandaríkjunum, í Minne-
sota og Illinois, en hóf aö kenna sam-
hliða doktorsnámi. Síðar kenndi hann
við Háskóla íslands í tæp 44 ár.
„Það sem mér þykir vænst um, eftir
allan þennan tíma, er að ég hef aldrei
verið ásakaður um það á mínum ferli að
vera með áróður í tímum," segir Svanur.
„í háskóla eru nemendur að læra fagleg
vinnubrögð. Átti ég að ætlast til þess
að nemendur stunduðu þau ef ég gerði
það elcki sjálfur í tímum? Það að vera
fyrirmynd er ekki besta leiðin til að hafa
áhrif á fóllc, það er eina leiðin."
Prófessorinn segir að hann hafi í
gegnum tíðina reynt að vanda sig og
vera öðrum til eftirbreytni. Það hafi
meðal annars skilað sér í því að þegar
gamlir nemendur hitta hann á förnum
vegi sýni þeir honum þakklæti og þylji
jafnvel línur úr lcennslustundum.
Upphaflega ætlaði Svanur aö nema
lögfræði og einhvern tímann hafði
hann hug á aö fara í stjórnmál sjálfur.
Hins vegar endaði hann á því að starfa
bak við tjöldin. Meðal annars tók hann
þátt í stofnun R-listans sem kom Sjálf-
stæðisflokknum úr meirihluta í borginni
árið 1994 þar sem hann hafði setið nær
óslitiðfrá 1932.
„Við töluðum um það 1986 að sam-
eina alla flokka, að Sjálfstæðisflokknum
undanskildum, og hafa Ingibjörgu Sól-
rúnu sem borgarstjórakandídat. Það
tók átta ár því það var innbyggt í vinstri
menn að þeir væru lúserar sem stæðu
í biðröð eftir því að vinna með Sjálf-
stæðisflokknum. Það þurfti að gera þá
að vinningsliði," segir Svanur.
Meðal liða í þeirri uppbyggingu var
tímaritið Þjóðlíf sem lcom út á níunda
áratugnum. Árið 1986 birtist í því grein
eftir Svan sem heitir Valdið og borgin og
var að sögn prófessorsins hugmynda-
fræðilegur grundvöllur R-listans.
„í umræðunni er alltaf verið að rugla
saman hlutlægni og hlutleysi," segir
Svanur. „Stjórnmálafræðingur á ekki
að vera hlutlaus. Stjórnmálafræöingur
sem ann eldd lýðræðinu hann er einskis
virði. Þú átt að hafa þin gildi á hreinu. Ef
þú hefur þau ekki á hreinu og stendur
eklci með lýðræðinu þá brotnar allt.
Andvaraleysið kostar."
johannoli@frettab!adid.is
ÞETTA GERÐIST 10. APRÍL 2010
Flugvél forseta Póllands fórst í Rússlandi
Sjö ár eru liðin frá því að flugvél með Lech
Kaczynski og92 önnurpólskfyrirmenni
innanborðs hrapaði skammtfrá herflug-
vellinum í Smolensk í Rússlandi. Enn i dag
er deilt um flugslysið.
Forsetinn var á leið til Katyn I Rúss-
landi þar sem minnast átti fjöldamorða
Jósef Stalín á 20 þúsund yfirmönnum í
pólska hernum. Skyggni við flugvöllinn var
lítið og lækkuðu flugmennirnir flugið of
snemma og enduðu utan brautar. Eða það
var niðurstaða rússneskrar rannsóknar-
nefndar. Meðal þeirra sem voru um borð
má nefna fyrrverandi forseta Póllands,
Ryszard Kaczorowski, fjölda yfirmanna úr
pólska hernum, seðlabankastjórann og
átján þingmennaf pólska þinginu.
Bæði pólskog rússneskyfirvöld hafa
rannsakað hvað það var sem grandaði
vélinni en enn hefur ekki fengist niður-
staða í málið. Meðal þeirra sem hafa
dregið þá niðurstöðu i efa að flugmönn-
um vélarinnar hafi verið um að kenna er
Jaroslaw Kaczynski, tvíburabróðir Lech
og þáverandi forsætisráðherra Póllands.
Telur hann að sprengja hafi grandað flug-
vélinni.
í nóvember í fyrra voru likforseta-
hjónanna grafin upp til að unnt væri að
rannsaka þau fremur. Hið sama var gert
við önnur fórnarlömb slyssins. Aðgerðin
þótti umdeild enda höfðu ekki allir aðilar
samþykktgjörninginn. Enn hefurekki
fengist botn í málið.
v