Fréttablaðið - 10.04.2017, Side 32
32
LIFIÐ • FRETTABLAÐIÐ
10. APRÍL 2017 MÁNUDAGUR
Svipta hulunni af íslenskri jaðartónlist
Þær Kinnat Sóley Lydon og Sólvelg Matthildur Kristjánsdóttir eru stofnendur nýs íslensks tímarits um íslenska
jaðartónlist en þær eru sammála um að jaðartónlistarsenan á íslandi fái ekki verðskuldaða athygli.
yrsta tölublaöiö er enn-
þá í vinnslu en viö erum
núna aö einbeita okkur
aö söfnuninni og kynn-
ingu á tímaritinu. Þaö
skemmtilegasta er hvaö
fólk er jákvætt og tilbúið aö vinna
með okkur! Þaö erfiðasta er aö ná
aö skipuleggja tímann sinn rétt, en
viö erum búnar aö vera í fullri vinnu/
skóla seinustu mánuöi," segirgrafíski
hönnuðurinn Kinnat Sóley Lydon um
tímaritiö MYRKFÆLNI sem hún eraö
gefa út ásamt tónlistarkonunni Sól-
veigu Matthildi Kristjánsdóttur.
Kinnat og Sólveig eru báðar búsett-
ar í Berlín. Spurðar út í hvort þaö sé
ekkert erfitt aö fjalla um íslenska
tónlistarsenu þegar þær eru búsettar
erlendis svara þær neitandi. „Sólveig
hefur verið að skipuleggja tónleika
og hátíöir á íslandi síðan við fluttum
til Berlínar, ásamt því að ferðast til
íslands til að koma ffam en hún er í
hljómsveitinni Kælunni Miklu. Svo
er mikið á netinu um nýjar útgáfur
og viðburði þannig að maður kemst
ekki hjá því aö vita hvað er í gangi.
Okkur finnst það vera mikill kostur að
vera búsettar í Berlín með þetta verk-
efni, bæði auðveldar það okkur að
fá íslenskar hljómsveitir til að koma
út og spila, ásamt því að vera betur
tengdar við jaðarsenumar í Evrópu,
það er ekkert mál að taka bara 20
evm flug á hátíðir. Svo er prentið líka
? ;«3 m
.
Kinnat Sóley og Sólveig Matthildur eru að gefa út tímaritið MYRKFÆLNI.
mm MED HVERJU TÖLU-
BLAÐIVERÐUR GERÐ
SAFNPLATA MEÐ NÝRRIÍS-
LENSKRIJAÐARTÓNLIST.
ódýrt," segir KinnaL
En þó að prentið sé tiltölulega ódýrt
í Berlín kostar útgáfan samt sitt. „Til
þess að safna pening fyrir prent- og
dreifingarkostnaði á fyrstu útgáfu
ákváðum við að stofha söfnun á Karo-
linafund þar sem fólk getur styrkt
oldrur með kaupum á fýrsta tölublaði
tímaritsins, ásamt því að kaupa aug-
lýsingar í blaðinu," segir Kinnat og
bendir fólld á að skoða Facebook-síðu
tímaritsins MYRKFÆLNI til að nálgast
upplýsingar um söfnunina.
Það krefst vissulega mikillar vinnu
að gefa út tímarit en þær segja þá stað-
reynd að þær séu vinnualkar koma
sér vel. „Það mætti segja að við séum
stundum svokallaðar „workaholics".
En það er bæði mjög krefjandi og
skemmtilegt að taka að sér svona
a—a
MHJHH|Hfl|HBflMHEflBHHBHfl|
_ ^
Það borgar sig að vera hjá 365
iPhone7
Á FRÁBÆRU VERÐI
iPhone 7 Jet Black /128 GB
99.990 kr,
Fullt verð: 134.990 kr.
stgr
verkefni. Það er auðvitað mikill kostn-
aður fólginn í því að gefa út tímarit en
við höldum í „do it yourself ‘ hugs-
unarháttinn og fáum milda hjálp frá
öðmm. Við emm búnar að fá marga
til að slcrifa og ljósmynda fyrir tíma-
ritið."
Spurð út í innihald tímaritsins
segir Kinnat: „Megin áherslan verður
á umfjöllun um íslensku jaðarút-
gáfufyrirtækin í samstarfi við okkur.
I tímaritinu verða svo m.a. viðtöl við
listamenn, sögur frá tónlistarmönn-
um á tónleikaferðalögum, umsagnir
og almennar vangaveltur um tónlist.
Með hverju tölublaði verður gerð
safnplata með nýrri íslenskri jaðar-
tónlist sem tengist efni tölublaðsins.“
Dreifa tímaritinu um allan heim
„Fyrsta tölublað MYRKFÆLNI kemur
út í 1000 eintölcum en af þeim verður
250 eintökum dreift til 50 borga um
allan heim. Einnigverðurtímaritið til
sölu á Bandcamp-síðu MYRKFÆLNI
og á tónleilcum og tónlistarhátíðum
víðs vegar um heiminn," segir Kinnat
sem ætlar að gera sitt besta til að brúa
bilið á milli jaðarsenunnar á íslandi
og jaðarsenunnar út í heimi.
Kinnat hefúr orðið vör við að fólk sé
sammála þeim Sólveigu um að það sé
skortur á umfjöliun um íslenska jaðar-
tónlist. „Við erum búnar að fá ótrúlega
jálcvæð viðbrögð við verkefninu."
gudnyhronn@365.is
GLÆSILEGUR
KAUPAUKI
AÐ VERÐMÆT115.000KR.
- Mánaðaráskrift af Fjölvarpi Veröld
- Inngöngutilboð í GSM áskrift hjá 365
-Tvönýjustu GLAMOUR tímaritin
Tilboðið gildir í verslun 365, Skaftahlíð 24 og útibúi okkar í Kringlunni.