Fréttablaðið - 13.05.2017, Blaðsíða 124
Leikstjóri og höfundur þáttanna The Valhalla Murders, Þórður Páls-son, var nýútskrifaður frá The National Film and Television School
í Bretlandi þegar hugmyndin að
sjónvarpsþáttunum kviknaði.
Stuttu eftir að hann kynnti hug-
myndina fyrir framleiðslufyrir-
tækinu True North var sett saman
teymi sem vinnur að því að skrifa
þættina.
„Við erum að skrifa núna og erum
komin frekar langt á leið með skrif-
in. Margrét Örnólfsdóttir yfirhand-
ritshöfundur og Óttar M. Norðfjörð
skipta með sér skrifunum. Kristinn
Þórðarson og Davíð Óskar Ólafsson
eru framleiðendur þáttanna. Teym-
ið í kringum verkefnið gæti því
eiginlega ekki verið betra frá mínu
sjónarhorni séð,“ segir Þórður.
Spurður út í söguþráð þátt-
anna segir Þórður þá fjalla um tvö
óvenjuleg morðmál. „Þættirnir
fjalla um fyrsta íslenska raðmorð-
ingjann. Það eru framin tvö morð
á Íslandi á mjög stuttum tíma þar
sem bæði fórnarlömbin eru myrt á
sama hátt. Það eru þó engin tengsl á
milli þeirra, sem gerir þetta enn þá
erfiðara fyrir lögregluna því morð
á Íslandi eru yfirleitt ástríðuglæpir.
Lögreglan er því undir mikilli
pressu og fá áhorfendur að fylgjast
með rannsóknarlögreglumönnum
reyna að leysa morðgátuna.
Svo koma fjölmiðlar inn í þetta
og þeir setja pressu á lögregluna og
velta upp spurningunni hvort lög-
reglan á Íslandi geti höndlað svona
stórt mál,“ segir Þórður.
Finnur fyrir áhuga fólks
Í þáttunum fá áhorfendur að fylgj-
ast náið með tveimur rannsóknar-
lögreglumönnum við rannsókn
málsins.
„Það eru þau Arnar og Kata.
Arnar er sérfræðingur sem fenginn
er að láni frá dönsku rannsóknar-
lögreglunni. Hann er Íslendingur
sem hefur verið búsettur í Dan-
mörku í 15 ár. Kata starfar fyrir
íslensku lögregluna og sér um rann-
sókn málsins. Það myndast smá
rígur á milli þeirra því Kata taldi sig
vera fullfæra um að sjá um málið án
utanaðkomandi hjálpar.
Við fylgjumst náið með þessum
tveimur persónum við rannsókn
málsins og um leið fáum við sýn
inn í fortíð þeirra beggja. Það
ríkir nefnilega ákveðin mystería
í kringum þau. Arnar er til dæmis
búinn að búa lengi í Danmörku og
vill helst ekki koma aftur til Íslands,
þá fer áhorfandinn vonandi að velta
fyrir sér hver ástæðan fyrir því sé,“
segir Þórður sem finnur fyrir mikl-
um áhuga hjá almenningi á þáttum
sem fjalla um fyrsta raðmorðingja
Íslands.
„Ég held að þessi pæling, rað-
morðingi á Íslandi, og þessir kar-
akterar þyki spennandi. Fólk hefur
sýnt þessari sögu mikinn áhuga og
einnig hvernig lögreglan á Íslandi
myndi fara að því að rannsaka mál
af þessari stærðargráðu.“
En hvenær líta þættirnir dagsins
ljós? „Við erum að fara í tökur í vetur,
og væntanlega verða þættirnir sýnd-
ir veturinn eftir það. Þessa stundina
erum við að ráða inn leikara, við
erum að fá fólk í prufur og ræða við
hina og þessa. Það er allt í vinnslu
eins og er, það er ekki búið að negla
neitt niður.“ gudnyhronn@365.is
Þættir um raðmorðingja á Íslandi
Veturinn 2018 verða sjónvarpsþættirnir The Valhalla Murders frumsýndir. Þættirnir fjalla ekki bara um rannsókn
dularfullra morðmála heldur einnig um einkalíf tveggja rannsóknarlögreglumanna sem stýra rannsókninni.
Þórður Pálsson er maðurinn á bak við þættina The Valhalla Murders sem líta dagsins ljós á næsta ári. MYND/EVa RilEY
Aldursmunurinn á milli Emmanuels
Macron, nýkjörins forseta Frakk-
lands, og eiginkonu hans Brigitte
Trogneux, hefur verið töluvert í um-
ræðunni undanfarið en forsetinn
er 24 árum yngri en eiginkonan. En
Brigitte er hreint ekki eina þekkta
konan sem hefur smekk fyrir yngri
mönnum. Meðfylgjandi er saman-
tekt yfir nokkur pör sem eru eða
voru saman þar sem konan er eldri.
Frægar konur með smekk fyrir yngri mönnum
Kris Jenner og Corey Gamble.
amy Schumer og Ben Hanisch.
Cheryl og liam Payne.
Deborra-lee Furness og Hugh Jackman. Cameron Diaz og Benji Madden. Kate Hudson og Derek Hough. Halle Berry og Gabriel aubry.
Það eru Framin tvö
morð á Íslandi á
mjög stuttum tÍma Þar sem
bæði Fórnarlömbin eru
myrt á sama hátt.
aldursmunur er á
Emmanuel Macron og
Brigitte Trogneux.
24 ára
10 ár
6 ár 9 ár 7 ár 5 ár 12 ár
25 ár
1 3 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R64 L í f i ð ∙ f R É T T a B L a ð i ð
Lífið
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
D
9
-5
1
9
4
1
C
D
9
-5
0
5
8
1
C
D
9
-4
F
1
C
1
C
D
9
-4
D
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K