Fréttablaðið - 13.05.2017, Blaðsíða 38
Okkur í Pennanum Eymundsson þykir einkar dásamlegt að fá til okkar
káta krakka í leit að fyrstu skóla-
töskunni og má með sanni segja að
upphaf námsferils ævinnar hefjist
í bókabúðinni,“ segir Eygló Birgis-
dóttir, verslunarstjóri Pennans
Eymundsson í Smáralind.
Verslunin er sú best búna af
verslunum Pennans Eymundsson
þegar kemur að skólavörum og er
námsfólki mætt í hvívetna með
framúrskarandi þjónustu og yfir-
gripsmikilli þekkingu starfsfólks.
„Námsmenn á öllum skóla-
stigum finna það sem þeir
þarfnast til skólans hjá okkur,
bæði vetur, sumar, vor og haust.
Hér í Smáralind höldum við líka
stærstu skiptibókamarkaðina, á
haustdögum og í byrjun janúar,“
upplýsir Eygló. „Við erum með
allar skólabækur, einstakt úrval af
skólatöskum fyrir allan aldur og
öll hugsanleg ritföng. Allt eru það
gæðavörur á góðu og samkeppnis-
hæfu verði,“ segir Eygló.
Um þessar mundir eru liðin
sextán ár síðan Eymundsson
opnaði stórverslun sína í Smára-
lind, vestan megin á neðri hæð. Í
sumarbyrjun dregur til tíðinda því
þá flytur verslunin sig um set yfir
í nýja miðju Smáralindar, beint á
móti Hagkaupum.
„Við förum á enn betri stað,
ætlum að gera enn betur og
hlökkum mikið til,“ segir Eygló
um nýju búðina og lofar að hún
verði skemmtileg heim að sækja.
„Því fylgir alveg sérstök upplifun
að stinga sér inn í bókabúð. Þar
ríkir jafnan notaleg stemning og
maður fær nasasjón af menningu
heimsins. Hægt er að glugga í
bækur sem geyma flestan fróð-
leik og skáldskap veraldar, blaða
í nýjustu tímaritum og lesa með
börnunum í ævintýralegu barna-
horninu, sem vitaskuld verður á
sínum stað í nýju búðinni,“ segir
Eygló, full tilhlökkunar.
Hún segir marga nota sumarið
til að sækja námskeið í útlöndum
eða sem tengjast áhugamálum hér
heima.
„Við mætum því námsfólki
með heillandi úrvali ferðahand-
bóka, ferðafylgihluta og frábærum
ferðatöskum af öllum stærðum
og gerðum. Það ýtir svo enn undir
námsáhugann og ferðaskapið og
ekki má gleyma að hjá okkur fæst
lesefni fyrir sumarfríið, föndur-
vörur til að hafa ofan af fyrir
börnunum og spennandi tæki-
færisgjafir sem gaman er að stinga
ofan í tösku til að gleða vini og
ættingja á ferðalögum heima og að
heiman.“
Með aðstoð appsins
Scribzee má taka
myndir af glósum og deila
sem PDF í gegnum síma
og spjaldtölvur.
Eygló Birgisdóttir er verslunarstjóri Pennans Eymundsson í Smáralind, sem á næstunni flytur sig um set innan Smáralindar. Þar verður sem endranær mesta úrval
námsbóka, ritfanga, skólataska og annars sem námsmaðurinn þarf. MYNDIR/GVA
Allir geta fundið draumaskólatöskuna
sína í Pennanum Eymundsson, sama
á hvaða aldri námsmaðurinn er.
Það er gaman að velja sér ritföng í
Pennanum Eymundsson enda úr-
valið endalaust spennandi.
Möppur af öllum stærðum og gerðum halda utan um námsefnið.
Heillandi heimur náms og
ævintýra flytur sig um set
Oxford stílabækurnar eru af einstökum gæðum og skara fram úr í hefðbundinni
ritfangaflórunni með skemmti-
legri tækninýjung. Með aðstoð
smáforritsins (appsins) Scribzee
eru stílabækurnar þeim nýstárlega
eiginleika gæddar að á einfaldan
og auðveldan hátt er hægt að taka
myndir af glósum eða hverju því
sem blaðsíðurnar geyma og vista
sem PDF-skjal sem hægt er að deila
áfram í gegnum síma eða spjald-
tölvu. Draumurinn um að njóta
bæði einfaldleika handskriftar og
stafrænnar tækni nútímans hefur
því ræst með litlum kassa í horni
hverrar blaðsíðu sem mátar sig við
Scribzee.
Gamaldags handskrift mætir stafrænum nútíma
Penninn
Eymunds son
í Smáralind er
gósenland náms-
mannsins. Þar úir
og grúir af öllu
sem þarf til náms.
Verslunin verður
opnuð brátt á
nýjum stað í
Smáralind.
4 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . m a í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
9
-A
5
8
4
1
C
D
9
-A
4
4
8
1
C
D
9
-A
3
0
C
1
C
D
9
-A
1
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K