Fréttablaðið - 13.05.2017, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 13.05.2017, Blaðsíða 24
Katrín Oddsdóttir l ö g f ræ ð i n g u r o g Kristín Eysteinsdóttir borgar leikhússtjóri búa saman í gömlu húsi í Þingholtunum með börn sín tvö. Þær hafa sömu gildi í lífinu þó ólíkar séu, meta ferðalög, listir og frelsi mikils en líka gott heimilislíf. Kristín er rólega týpan en Katrín ör í eðli sínu og elskar spuna og karókí. Þingholtin, járnhlið og tröppur. Kristín Eysteinsdóttir kemur til dyra, Katrín Oddsdóttir, kölluð Kata, hefur nýlokið við að hella á könnuna og býður til sætis við borð- stofuborðið. Eru þær miðbæjar- rottur? Kristín verður fyrir svörum – hugsandi til baka: „Ja, Kata ólst upp í Skjólunum og ég var mikið að leika mér þar, ég hef örugglega hitt hana í Einarsbúð og strítt henni. Svo fór ég í Kvennó og Kata í MR. Við bjuggum saman í Hlíðunum í fimm ár og svo á Lindargötunni þann- ig að radíusinn er ekkert rosalega stór. Það á fáránlega vel við okkur að vera nálægt miðbænum.“ Kristín: „Þessi hluti Þingholtanna er líka bara eins og dásamlegur smá- bær úti á landi. Hér eru litlir leik- vellir og leynigarðar víða og bara falleg og góð stemning. Maður þekkir alla nágrannana, fær lánaða hluti og stutt á leikskólann. Allt rólegt. Svipað og að vera á Seyðis- firði nema með þeim kosti að geta farið niður í bæ á átta mínútum.“ Katrín: „Ég hélt það væri eitthvert snobb að búa í Þingholtunum en það eru alveg falleg gildi bak við það. Að vera nærri hringiðu menn- ingar og sjá líf þegar maður kemur út en samt ekki í sollinum.“ Kristín og Katrín keyptu húsið nýlega af þriðju kynslóð frá þeim sem byggðu það. Þær eru búnar að breyta eldhúsi í baðherbergi, svefn- herbergi í eldhús, taka niður veggi milli þess og stofu og stækka dyr inn í aðra stofu. „Allar breytingar sem við höfum gert reyndum við að hafa í anda hússins,“ segir Kata. „Ætlum að fara að gera upp gluggana smátt og smátt og hafa þá í upprunalegri mynd.“ „Það er eilífðarverkefni að eiga gamalt hús en ótrúleg gleði sem fylgir því,“ segir Kristín og lýsir draumnum um svalir út frá stof- unni og tröppur þaðan niður í garð þar sem börnin geti leikið sér. Þær eiga nefnilega tvö börn, dótturina Díu sem verður fjögurra ára í júlí og soninn Aron, tveggja ára. Hún segir börnin vera sálufélaga. „Þau ná ótrúlega vel saman. Það er eins og þau hafi verið ætluð hvort öðru sem systkini.“ Katrín hefur starfað sem lög- maður undanfarin ár en tók sér frí frá því starfi um sinn. „Ég byrjaði á að taka mér launalaust leyfi í eitt ár, frá þarsíðustu áramótum til að vera með dótturinni og líka að berjast fyrir stjórnarskrármálinu sem ég hef mikinn áhuga á. Er búin að kenna dálítið uppi í HR, halda fyrirlestra í ýmsum löndum um stjórnarskrár- málið og gera ýmislegt skemmtilegt. En ég er frjáls með tímann minn og það á ótrúlega vel við mig. Nú eru börnin orðin tvö til að sinna. Það er yndislegt. Sakna samt stundum lögmennskunnar og frábærra sam- starfsfélaga á Rétti. Það er gaman að berjast þar því ég hef verið svo heppin að fá að vinna í mörgum málum sem mér finnst ég virkilega vera að gera gagn í. Sem var ástæðan fyrir að ég fór í þetta fag.“ Á leið hvor í sína átt Katrín er formaður Stjórnarskrár- félagsins og er að búa sig undir ráðstefnu í Bandaríkjunum með Berkley-háskóla í byrjun júní. „Íslenska stjórnarskrármálið hefur vakið gríðarlega athygli fræðimanna úti um allan heim og ekki síður sú tregða sem er á framgangi þess hér. Prófessorar við flottustu háskólana í Bandaríkjunum, eins og Har- vard, Stanford og Yale, hafa verið Minni peningar en fleiri gæðastundir Katrín Oddsdóttir lögfræðingur og Kristín Eysteinsdóttir borgar- leikhússtjóri búa saman í gömlu húsi í Þingholtunum með börn sín tvö. Þær hafa sömu gildi í lífinu þó ólíkar séu, meta ferðalög, listir og frelsi. Kristín er rólega týpan en Katrín ör í eðli sínu og elskar karókí. Katrín og Kristín í nýja eldhúsinu í gamla húsinu. Fréttablaðið/GVa Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is að kenna um þetta íslenska ferli í lagadeildum og víðar. Það eru yfir þrjátíu manns að fara frá Íslandi á þessa ráðstefnu, þar á meðal þing- menn, og ég held að hún muni hafa áhrif. Þetta er langhlaup en klárast eins og annað. Það eru svo ótrúlega margar breytingar fólgnar í stjórnarskrár- drögunum sem samfélagið þarfnast. Nú þegar lýðræðissamfélög standa víða höllum fæti og traust gagn- vart kjörnum fulltrúum rýrnar úti um allt, er það dýrmætt á heims- vísu að eiga dæmi um framtak eins og íslenska stjórnarskrárferlið því það gefur öðrum innblástur, jafn- vel þótt við höfum ekki enn náð að klára málið með því að lögfesta nýju stjórnarskrána. Ráðstefnan er í San Francisco 3. júní og verður með nokkurs konar þjóðfundarsniði, það mega allir taka þátt en þurfa að skrá sig.“ Kristín kveðst því miður ekki komast með vestur um haf enda sé hún að fara í átta daga ferð til Kína síðar í þessum mánuði. „Sýningu frá Borgarleikhúsinu er boðið á lista- hátíð í Macau, sem er ansi sérstök borg og oft kölluð Las Vegas Kína, enda er hún full af spilavítum og karókístöðum. Við erum rúmlega 20 manna hópur sem fer frá leik- húsinu og við sýnum Mávinn eftir Tsjekov, en þetta er þriðja hátíðin sem þeirri sýningu er boðið á, hinar voru í Póllandi og Finnlandi. Sýningin er löguð að Íslandi, gerist í sumarbústað í íslenskri sveit og vakti mikla athygli þegar hún var sýnd hérlendis. Það er mikill spenn- ingur og tilhlökkun að sýna á svona framandi menningarsvæði og afar nærandi fyrir leikhópinn.“ Kata kveðst alveg hefði þegið að fara með til Kína, en þegar þær hafi farið að horfa á skipulagið hafi þeim fundist ómögulegt að vera svona lengi í burtu og tekið hagsmuni barnanna fram yfir eigin. „Það er samt mjög slæmt fyrir mig að missa af þessu og þegar ég heyrði að það væri sérstakt karókíherbergi á hótelinu fann ég til virkilegrar öfundsýki. Þá bara sagði ég: Ég trúi þessu ekki, ég vil koma með!“ Kristín: „Ég get staðfest að ef ég ætla að gleðja Kötu þá fer ég með hana í karókí. Þar eru, eins og hún segir, fullorðnir að leika sér og ég held að henni finnist fátt skemmti- legra en fara í karókí eða út í brennó.“ Kata: „Eða spuna, ég er á fullu í spuna, það er ótrúlega skemmtilegt. Maður má ekki gleyma að leika sér. Það er nefnilega dálítil gildra þetta fullorðinskonsept. Við látum teyma okkur inn í eitthvert ástand sem er bara hundleiðinlegt. Hvað gerðum við til að verðskulda þetta? Enda situr fólk bara og hellir í sig, það er eina leiðin til að fá útrás.“ Súrefni í lífið Kristín: „Fyrir einu og hálfu ári vorum við báðar í ótrúlega krefj- andi vinnu þótt hvorug okkar hefði stefnt á það. Sumir eru með fimm ára plan um að vera orðnir eitthvað sérstakt eða klífa metorðastigann að ákveðnu takmarki, en í eðli okkar viljum við hafa frekar mikið frelsi í lífinu og ég er oft bara frekar löt. Mér finnst það vera kostur. Það virðist stöðutákn að vera á fullu alls staðar en mér líður best þegar ég hef mikinn tíma til að lesa og hugsa. Þegar við tókum ákvörðun um að Kata hætti í fastri vinnu utan heimilis kom bara rosa mikið súr- efni inn í líf okkar. Fyrst og fremst vorum við að gera þetta með hags- muni barnanna okkar í huga og líka sambands okkar. Við eigum minni pening en miklu fleiri gæðastundir og miklu betra líf.“ Katrín: „Já, eyðsla er bara visst fall af tekjum. Við erum búnar að vera saman frá 2002 og það er alveg ljóst að við höfum aldrei átt feita sjóði, eyðum bara þeim peningum sem okkur áskotnast, í ýmsa gáfu- lega hluti svo sem. Nú eigum við yndislegt heimili og höfum nóg, því ættum við þá báðar að eyða þeim tíma sem við höfum núna í að vinna og vinna, meðan við erum báðar fullfrískar og með lítil börn? Það er engin góð ástæða sem poppar upp í hugann nema hvað við njótum þess báðar að vinna við það sem við höfum valið okkur og ég held að við höfum ýmislegt til málanna að leggja báðar – en þessi ákvörðun reyndist alger snilld.“ Kristín: „Ég held það sé veruleiki rosa margra foreldra að hittast í dyr- unum og hafa vaktaskipti.“ Katrín: „Það geta auðvitað ekki allir leyft sér að gera þetta eins og við.“ Kristín: „Nei, okkar uppskrift Kata Er til dæmis mjög hjátrúarfull, hún á mynd af ömmu sinni Og alltaf þEgar við höfum flutt á nýjan stað þá sEtur hún þEssa mynd upp inni í svEfn- hErbErgi, áður En allt annað fEr inn. Kristín 1 3 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R24 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 1 3 -0 5 -2 0 1 7 0 3 :5 6 F B 1 2 8 s _ P 1 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C D 9 -7 4 2 4 1 C D 9 -7 2 E 8 1 C D 9 -7 1 A C 1 C D 9 -7 0 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 2 8 s _ 1 2 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.