Fréttablaðið - 13.05.2017, Blaðsíða 114
Feneyjatvíæringurinn er óneitanlega stærsti vettvangur myndlistar-heimsins enda hafa mörg af stærstu nöfnum list-heimsins sýnt þar í nafni
sinna þjóða. Aldrei hafa þó jafn
stórar verur sýnt í Feneyjum og í ár
og það fyrir jafn smáa þjóð en full-
trúi Íslands er myndlistarmaðurinn
Egill Sæbjörnsson sem sýnir í sam-
starfi við íslensku mannætutröllin
Ūghs og Bõögâr undir yfirskriftinni
Egill Sæbjörnsson – Out of Controll
in Venice.
Vikan sem var að líða var opn-
unarvika tvíæringsins og Egill, sem
hefur orð fyrir þeim félögum, segir
að viðtökurnar hafi verið framar
öllum vonum. „Þetta er búið að
vera alveg ótrúlegt. Fjöldinn allur
af stórum miðlum hefur verið að
heimsækja okkur og viðtökurnar
hafa verið alveg stórkostlegar.“
Ūghs og Bõögâr
Egilll segir að hann sé að vinna með
þessum tveimur ímynduðu vinum
sínum tröllunum Ūghs og Bõögâr.
„Þeir eru þrjátíu og sex metra háir
en ég er búinn að vera að leika mér
með þeim alveg síðan 2008. Það átti
ekkert að vera tengt list þegar við
byrjuðum að leika okkur saman en
síðan kom það skyndilega upp að
þeir tækju að sér að gera sýningu í
i8 en það frestaðist þegar Feneyja-
tvíæringurinn kom upp á. Þeir urðu
svo öfundsjúkir og vildu fá að gera
svona pavilion (sýningarskála) og
ég varð að leyfa þeim að gera það.“
En hvað skyldi það vera við
tröllin sem heillar Egil? „Ætli það sé
ekki aðallega hvað þeir eru mikið
öðruvísi en ég og allir aðrir. Það er
það sem er svo skemmtilegt. Það
er svona náttúra og frumkraftur í
þeim enda eru þeir ekkert að pæla
í því sem venjulegt fólk sem er lista-
fólk er að pæla í. Þeir taka alltaf
sitt „take“ á þetta. Muggur málaði
svona, Kjarval hinsegin og Ásgrímur
þannig en tröllin eru ekkert að pæla
í þessu. Þau eru einstakar verur sem
gera hlutina á sinn hátt.“
Aðspurður hvort tröllin séu
raunsæ og hagsýn í hugsun segir
Egill einfaldlega: „Nei. Það er það
sem ég er búinn að vera að gera.
Verkin þeirra eru gríðarlega til-
raunakennd. Mitt hlutverk er
eiginlega að vera eins og barnapía
því þeir eru eins og stór, mjög stór,
börn.
Ég reyni samt að halda ekki aftur
af þeim, heldur frekar að lempa
svona mestu vitleysuna. Það er oft
mjög auðvelt eins og um daginn
þegar þeir sáu hérna sýningu eftir
Damien Hirst sem mér finnst nú
ekki vera neitt sérstaklega skemmti-
legur listamaður.
Þeim hins vegar fannst það rosa-
lega flott. Í framhaldinu vildu þeir
gera allt úr gulli og demöntum eins
og þeir sáu á sýningunni hjá Hirst
en ég sagði þeim að það væri ein-
faldlega allt of dýrt fyrir okkur. Þá
datt einhverjum í hug að kaupa bara
gullsprey og við erum búin að vera
að spreyja draslið síðan og þeir eru
rosalega ánægðir með það. Það er
alveg nóg fyrir þá.
Við spreyjuðum einhverja skíta-
hrúgu sem þeir voru búnir að gera
í fyrradag og þeim finnst það vera
það flottasta sem þeir hafa gert.
Alveg æðislegt.“
Borðuðu Biesenbach
Þeir eru í augnablikinu uppteknir
af því að skoða það sem er á tvíær-
ingnum en það er soldið vandamál
hvað þeir eiga erfitt með að halda
aftur af sér. Þeir til að mynda borð-
uðu Klaus Biesenbach, stjórnanda
MoMA, um daginn þannig að hann
er farinn, blessaður. Galleristinn
Larry Gagosian endaði í pottinum
hjá þeim þegar þeir voru að búa til
ilmvatn þannig að hann endaði í
innihaldslýsingu. Monu Lisu mál-
verkið og eitt Pollock-málverk end-
uðu líka í ilmvatninu sem við erum
að vinna að og reyndar líka einhver
kjarnaúrgangur frá Rússlandi. Allt
í pottinn.“
Feneyjatvíæringurinn og allt í
kringum hann þykir nú alla jafna
vera mjög siðmenntaður viðburður
og Egill segir að þrátt fyrir að tröllin
séu í nokkurri andstöðu við þetta
þá reyni þau líka að aðlagast því
sem er efst á baugi hverju sinni.
„Þeir komu til mín um daginn og
sögðust vilja gera það sem er kallað
sósíal-interaktíft verk. Ég hef ekki
hugmynd um hvar þeir lærðu þetta
orð en þeir eru líka eins krakkar
sem herma bara eftir og segja bara
eitthvað til þess að þykjast vera
með í leiknum.
En til þess að koma til móts við
þá með þetta bjuggum við til líkan
af hausnum á þeim. Tvo ferkantaða
kassa. Það var fljótlegt en reyndar
líka frekar illa gert. Síðan settum
við nef utan á kassann sem lítur
út eins og þeir þannig að fólk á
eftir að labba inn í hausinn á
þeim og horfa þaðan út um
göt. Þeir eru síðan að tala
saman sem eru svona smá
vídeó sem er varpað af
samræðum þeirra á milli.
Kannski hafa þeir viljað
að fólk gæti séð heim-
inn með þeirra augum
eða eitthvað svoleiðis.
Þeir eru nefnilega
stundum gáfulegri
en maður á von á en
þeir eiga bara svo
erfitt með að tjá sig
um það. Þeir eru þó
greinilega eitthvað
pæla.“
Mitt hlutverk er eiginlega að vera barnapían þeirra
Egill Sæbjörnsson og ímynduðu tröllin hans, Ūghs og Bõögâr, ráða ríkjum í íslenska skálanum á Feneyja-
tvíæringnum sem hófst í vikunni. Egill segir að tröllin séu einstakar verur sem geri hlutina á sinn hátt.
Kona horfir út um tröllshöfuð á sýningu Egils Sæbjörnssonar – Out of Controll in Venice. Birt með leyfi listamannsins og i8. Mynd/IVO COrda
Hver stjórnar hverjum? Hver
stjórnar gjörðum okkar, þekk-
ingu, hugsunum – jafnvel ímynd-
unarafli okkar? Hvað hefur áhrif á
heimssýn okkar? Þetta eru spurn-
ingarnar sem Egill Sæbjörnsson
veltir fyrir sér þegar hann grefur
stöðugt undan sambandinu við
yfirvöld og stigveldi, hvort slíkt
sé að finna í smættuðum heimi
fjölskyldunnar, samfélagsins, eða
í því hvernig samfélagið bregst
við umhverfinu. Þegar strok-
leður takast á loft, steinar byrja
að syngja eða handtöskur stíga
dans, fara dauðir hlutir yfir mörk
raunveruleika og ímyndunar. Þeir
verða ófyrirsjáanlegir og taka að
stýra sýningunni. Þeir kasta frá
sér hlutverki sínu sem líflausir
fylgihlutir eða tæki sem fólk
notar og mynda sína eigin sjálf-
stæðu tilvist lausa undan reglum
og náttúrulögmálum.
Í draumkenndu umhverfi
gæðir Egill óvirk efni lífi með
því að leggja ofan á þau hreyfi-
myndir sem eru allt frá því að
vera abstrakt yfir í fígúratífar, og
þannig ljær hann þeim raddir
sem má heyra og persónuleika
sem má upplifa. Þó hefur hann
aldrei gengið jafn langt og nú
med Out of Controll in Venice,
þar sem hann lætur allt tveimur
goðsagnaverum í té. Með því
að veita þeim tækifæri á að eiga
í samskiptum við okkur, leyfir
hann þeim að stofna sinn eigin
heim og blómstra. Þökk sé agli,
hafa sögur og ævintýri Ūghs og
Bõögârs brúað bilið milli þess
veruleika sem við skynjum og
skáldskapar. Listheimurinn og
raunheimurinn verða óaðskiljan-
legir; þeir tilheyra og eru háðir
hver öðrum.
Stefanie Böttcher
Brot úr ávarpi Stefanie Böttcher,
sýningarstjóra Out of Controll in Venice
GallEriStinn larry
GaGoSian Endaði í
pottinum hjá þEim þEGar
þEir voru að Búa til ilmvatn
þanniG að hann Endaði í
innihaldSlýSinGu.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Egill Sæbjörns-
son segist hafa
verið að leika
sér með tröll-
unum allar
götur síðan
2008.
1 3 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R54 m e n n i n G ∙ F R É T T a B L a ð i ð
menning
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
D
9
-2
F
0
4
1
C
D
9
-2
D
C
8
1
C
D
9
-2
C
8
C
1
C
D
9
-2
B
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K